-min-84a10725-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Skynjar potta og stærð þeirra
Besta mögulega orkunýting
Ef pottur er staðsettur á eldunarsvæði kviknar sjálfkrafa á tilheyrandi talnarunu þegar kveikt er á helluborðinu. Óþarfi er að kveikja handvikt á eldunarsvæðinu. Þetta tryggir bestu mögulegu orkunýtingu.
-min-36a62556-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
SmartSelect
Auðveld notkun með SmartSelect
Aflstillingar og tíma er hægt að stilla með ótrúlega auðveldum og hröðum hætti með SmartSelect. Hvert eldunarsvæði hefur sitt eigið talnaborð með gulu ljósi sem er auðvelt álestrar frá hvaða sjónarhorni sem er. Tímastillingar eru auðveldari með SmartSelect, þar sem "Tímastilli" og "Hella slekkur á sér sjálfvirkt" er hægt að stilla inn sitt í hvoru lagi.

Öryggisvirkni
Fyrir aukið öryggi og fullvissu
Besta vörnin í öllum aðstæðum: öryggislæsing helluborðsins veitir áhrifaríka vörn gegn því að óvart sé breytt um stillingar á meðan helluborðið er í notkun. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, en það minnir þig á að snerta ekki eldunarsvæði sem eru ennþá heit viðkomu.
-min-7d7520b8-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Keramikgler
Auðvelt í þrifum
Keramikgler er mjög auðvelt í þrifum. Skvettur og önnur óhreinindi eru fjarlægð á einfaldan og þægilegan hátt, þökk sé sléttu yfirborðinu. Þrif spanhelluborða eru sérstaklega auðveld þar sem yfirborð þeirra helst tiltölulega kalt og matur brennur þar af leiðandi mjög sjaldan við þau.
