Um Eirvík
Eirvík ehf er sérverslun sem býður upp á glæsilegar og vandaðar vörur fyrir heimilið jafnt sem vinnustaðinn. Vörumerkin okkar eru meðal þeirra best þekktu og virtu á markaðinum.Helstu vörumerkin eru Miele, bulthaup, Liebherr, Häcker, Jura, Smeg , Elica og Magimix, en þau eru aðallega frá Þýskalandi, Sviss, Ítalíu og Frakklandi.
Markmið okkar er að bjóða viðskiptavinum upp á vandaðar vörur og góða þjónustu. Hollusta okkar nær jafnt til viðskiptavina, starfsfólks, birgja, umhverfisins og samfélagsins sjálfs. Við trúum því að ábyrg viðskipti fáist með gagnkvæmri virðingu og grundvallist á góðum samskiptum. Kjörorð Eirvíkur eru: „Sérverslun með vandaðar vörur fyrir heimilið jafnt sem vinnustaðinn“.

Sagan
Fyrirtækið var stofnað af Eyjólfi Baldurssyni og Þórdísi Sigurgeirsdóttur við eldhúsborðið á heimili þeirra í Reykjavík. Dagurinn var 1. maí árið 1994. Í fyrstu opnaði lítill sýningarsalur í kjallara heimilis þeirra á Vesturgötu 25, með sýningartækjum frá Miele og Smeg. Seinna sama ár fluttist verslunin að Suðurlandsbraut 22 og byrjaði að vaxa jafnt og þétt. Árið 1996 flutti Eirvík í eigið húsnæði og á núverandi staðsetningu sína, Suðurlandsbraut 20. Þökk sé mikilli vinnu og einstökum mannauði hefur Eirvík ehf náð sterkri og aðgreinandi stöðu á markaðinum í dag.
Samfélagsleg ábyrgð og framtíð
Eirvík er umburðarlyndur vinnustaður sem er rekinn með fjölskylduvænni stefnu. Allt starfsfólk er metið að verðleikum og gert kleift að sameina vinnu og fjölskyldulíf. Umhverfismál eru okkur einnig mikilvæg. Við leggjum bæði áherslu á að minnka frá okkur úrgang sem og flokka rétt það sem fellur til.
Við kappkostum við að vera sú vandaða sérverslun sem við erum í dag. Ávalt dygg okkar viðskiptavinum og ófrávíkjanlegri skuldbindingu til gæða.

Styrkir
Stefna Eirvíkur varðandi styrktarbeiðnir hefur frá stofnun fyrirtækisins ávallt verið eins. Öllu styrktarfé sem ráðstafað er á ári hverju er veitt til Barnaspítala Hringsins og langveikra barna.