Fara í meginmál

Vörunúmer: PRF0171193

Elica

WAVE UX

WAVE eyjuháfur frá Elica með möttum svörtum kúpli. Háfurinn er fágaður, nettur og hangir í vírum niður úr loftinu. Einkennandi bylgjur eru á kúplinum sem hleypa mjúkri umhverfislýsingu út frá háfnum, en auk þess skín falleg LED lýsing niður á helluborðið. Háfurinn er hringrásandi og með þægilegu stjórnborði með snertitökkum. 

Hönnun: FABRIZIO CRISÀ

229.990 kr.

Ekki til á lager

WAVE UX

Einstök lýsing og vandað efnisval 

Vandað efnisval, einfalt form og leikur að ljósi eru hvað mest einkennandi fyrir WAVE UX. Háfurinn er hannaður af FABRIZIO CRISÀ og eru tvenns konar kúplar fáanlegir; ryðfrítt stál og mattur svartur. Einkennandi bylgjur, sem háfurinn dregur nafn sitt af, eru útskornar í kúpulinn og hleypa ræmurnar  mjúkri LED lýsingu út frá háfnum. Þrjú stök LED ljós eru staðsett neðst á háfnum, en þau skína beint niður á helluborðið og veita bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. Eftirtektarverður háfur sem verður auðveldlega í brennidepli í eldhúsinu.

WAVE UX

Fágaður háfur fyrir opin rými

Samhliða vinsældum opinna rýma þar sem eldhús eru tengd við setustofu, hefur orðið vinsælla að setja upp háfa sem skyggja sem minnst á útsýnið. Uppsetningarmöguleikar WAVE UX eru tvenns konar. Annars vegar er hægt að hengja hann upp á vegg og hins vegar er hægt að hafa hann hangandi í vírum niður úr loftinu. Hangandi háfar eru mjög léttir á að líta og sóma sér þar af leiðandi mjög vel uppsettir yfir helluborði á eyju í eldhúsinu. Háfurinn er hringrásandi, stjórnborð með snertitökkum er einfalt í notkun og fjórar aflstillingar í boði. Einnig er mögulegt að kaupa fjarstýringu, sem stýrir öllum stillingum háfsins, til þæginda.

WAVE UX

Einföld þrif og LongLife kolafilter

Regluleg þrif háfsins tryggja ekki aðeins hreinlæti í eldhúsinu, heldur einnig lengri líftíma vörunnar.  Filterar WAVE UX eru staðsettir fyrir ofansvartan stílhreinan svartan skjöld. Aðgengi að bæði fitufilterum úr áli og LongLife kolafilterum er einfalt, auðvelt er að fjarlægja filterana og setja þá aftur á sinn stað. LongLife kolafiltera má endurnýta með því að þrífa þá í uppþvottavél 2 til 3 hvern mánuð. Líftími kolafiltersins verður allt að þrjú ár með þessu móti og komist verður hjá tíðum og eyðslusömum útskiptum filtera.