Fara í meginmál

Vörunúmer: UWGBI3682

Liebherr

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 32 Bordeaux (82-88cm) - Vinidor Selection

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Stórglæsilegur innbyggður undirborðs vínkæliskápur frá Liebherr. Skápurinn er með mjúklokun og höldulausri glerhurð með svörtum ramma sem opnast þegar ýtt er létt á hana. Hann tekur mest 32 Bordeaux flöskur, er 82-88 cm á hæð, með sökkulöndun og LED lýsingu. Vínkæliskápurinn er Vinidor skápur sem getur hentað jafnt sem neyslu- og geymsluskápur, hann er með tveimur aðskildum hitasvæðum og er hitastig stillanlegt í þeim báðum. Skápurinn hentar því vel til þess að geyma t.d. rauðvín og hvítvín við fullkomið neysluhitastig. Vínkæliskápar frá Liebherr verja vín gegn útfjólubláum geislum, viðhalda réttum hita- og rakaskilyrðum auk þess sem bestu skilyrði á lofti eru tryggð með virkum kolafilter sem dregur í sig óæskilega lykt.

704.990 kr.

Ekki til á lager

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 38 Bordeaux (86-92cm) - Vinidor Selection

Undirbyggður vínkæliskápur með framhlið

Undirbyggðir vínkæliskápar passa undir borðplötu og eru prýði í hvers kyns eldhúsum. Öndun fer fram í gegnum hæðarstillanlegan sökkul skápsins, sem þýðir að ekki er þörf fyrir að setja loftop og rist í borðplötuna. Skáparnir varpa fallegu LED ljósi á vínflöskurnar og eru með vandaðri glerhurð sem veitir bestu mögulegu yfirsýn yfir þær.

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 38 Bordeaux (86-92cm) - Vinidor Selection

Vínkæliskápur með aðskildum kælisvæðum

Vinidor vínkæliskápar geta geymt rauðvín, hvítvín og freyðivín við kjörhitastig í tveimur eða þremur fullkomlega aðskildum kælisvæðum. Hitastig er stillanlegt frá +5°C til +20°C, hitastýring rýmanna er algerlega óháð hvoru öðru og eru hólfin misstór sem hentar fyrir fjölbreyttar gerðir vína. Hámarks sveigjanleiki í notkun fæst með Vinidor vínkæliskápum, því auk þess að henta sem neysluskápur er einnig mögulegt að nota vínkæliskápinn fyrir langtímageymslu víns.

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 38 Bordeaux (86-92cm) - Vinidor Selection

TipOpen 

TipOpen snertitækni gerir þér kleift að fella vínkæliskápinn á fullkominn hátt inn í höldulausar innréttingar. Þegar ýtt er á hurðina, opnast dyrnar sjálfkrafa um 7 cm sem veitir þægilegt aðgengi. Dyrnar lokast síðan aftur sjálfkrafa með SoftSystem mjúklokun ef þær er ekki opnaðar að fullu á næstu 3 sekúndum.

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 38 Bordeaux (86-92cm) - Vinidor Selection

LED lýsing 

Falleg LED lýsing er í innanrými vínkæliskápsins sem tryggir fallega birtu um allan skápinn. Hitamyndun er í algjöru lágmarki, LED lýsingin gefur ekki frá sér útfjólubláa geisla og óhætt er þar af leiðandi að baða vínflöskurnar í ljósinu í lengri tíma. Lýsingin er auk þess dimmanleg og gefur afskaplega fallega umhverfislýsingu.

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 38 Bordeaux (86-92cm) - Vinidor Selection

Mjúklokun 

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðinni, dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað og tryggir þannig að hurðin lokist varlega. Hurðin lokast að sjálfsdáðun ef opnun er minni en u.þ.b. 45° hjá frístandandi skápum eða minni en u.þ.b. 30° hjá innbyggðum skápum.

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 38 Bordeaux (86-92cm) - Vinidor Selection

Útdraganlegar hillur á brautum

Vínkæliskápurinn er með gegnheilum viðarhillum sem sitja á útdraganlegum brautum. Hillurnar henta einstaklega vel til þess að geyma Bordeaux flöskur á öruggan hátt, veita bæði góða yfirsýn og þægilegt aðgengi. Hillurnar eru handgerðar úr ómeðhöndluðum við og mögulegt er að smella á þær merkimiðum sem veita þér skýra yfirsýn yfir vínsafnið þitt. Hægt er að færa til burðarbitana í hillum og koma þannig fyrir Burgundy- og kampavínsflöskum

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 38 Bordeaux (86-92cm) - Vinidor Selection

Nákvæm hitastýring 

Til þess að vín geti þroskast á fullkominn hátt þarf það að geymast við stöðug og jöfn hitaskilyrði. Kjörhitastig fyrir þroska víns er það sama hjá öllum víntegundum, hvort sem um ræðir rauðvín eða hvítvín, og liggur á milli +10°C og +12°C. Vínkæliskápurinn er bæði með öflugri blástursviftu og nákvæmri elektrónískri hitastýringu sem heldur stöðugara hitastigi í skápnum en hefðbundið thermostat, jafnvel þó að hitastig umhverfis sveiflist mjög mikið. Að auki er þéttikanntur á milli kælisvæða sem tryggir að hvert einasta kælisvæði er með fullkomlega aðskildri og sjálfstæðri hitastjórnun.

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 38 Bordeaux (86-92cm) - Vinidor Selection

Fullkomið rakastig - HumiditySelect

Rétt rakastig er lykilþáttur fyrir farsæla langtímageymslu víns. Vínflöskur ætti almennt alltaf að geyma í láréttri stöðu til þess að korktapparnir haldist rakir innan frá, en rakastig í umhverfi er ekki síður mikilvægt. Í vínkæliskápnum eru fullkomin rakaskilyrði og hægt er að velja á milli "venjulegt rakastig" og "Hátt rakastig", sem tryggir góða öndun gegnum rakann korktappa víns á meðan þroskun þess fer fram.

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 38 Bordeaux (86-92cm) - Vinidor Selection

Lágmarks titringur og UV- vörn 

Vægur titringur getur truflað þroska víns og komið í veg fyrir botnfall tanníns. Sérþróuð pressa vínkæliskápsins gefur frá sér algjöran lágmarks titring sem tryggir bestu mögulegu geymsluskilyrði víns. Litað glerið í vínkæliskápnum veitir síðan nauðsynlega vörn gegn útfjólubláum geislum.

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 38 Bordeaux (86-92cm) - Vinidor Selection

Virkur kolafilter

Lykt úr umhverfi getur haft áhrif á þroska víns sem er geymt í lengri tíma. Hámarks loftgæði eru til staðar í vínkæliskápnum þökk sé skilvirkri lofthringrás og virkum kolafilter sem dregur í sig alla óæskilega lykt. Loftgæði eru mjög mikilvæg fyrir þroskun og varðveislu víns.

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 38 Bordeaux (86-92cm) - Vinidor Selection

Hægt að snúa hurðaropnun

Vínkæliskápurinn kemur staðlað hægri hengdur, það er með hurðarhjörunum hægra megin. Mögulegt er að snúa hurðaropnuninni og hafa skápinn vinstri hengdan, allt eftir því sem hentar þér og hvar staðsetja á skápinn.