
Víngeymsluskápur
Við réttar geymsluaðstæður halda vín áfram að þroskast í flöskum. Hægar efnabreytingar eiga sér stað við þroskann sem mynda flóknari bragð- og ilmefni í vínunum og ná þau einnig meiri dýpt. Góð og stöðug geymsluskilyrði eru forsenda farsællar langtímageymslu. Víngeymsluskápar frá Liebherr bjóða upp á sömu geymsluskilyrði vína og fyrirfinnast í vínkjöllurum. Skáparnir halda mjög stöðugu og nákvæmu hitastigi í öllu innanrými sem gerir þá að fullkomnum kosti fyrir langtímageymslu og þroskun vína.

GrandCru
GrandCru vínkæliskápar bjóða upp á sömu skilyrði og fyrirfinnast í vínkjöllurum. Mögulegt er að stilla hitastig í innanrými frá +5°C til +20°C eftir þörfum, sem gerir skápana að fullkomnum kosti fyrir langtímageymslu og þroskun víns. Völdu hitastigi er haldið fullkomlega jöfnu og stöðugu í öllu innanrými vínkæliskápsins. Auk langtímageymslu á fjölbreyttum gerðum vína, henta GrandCru skápar einnig einstaklega vel til þess að geyma mikið magn af einni víngerð við kjörhitastig til neyslu.

LED lýsing
Falleg LED ljósasúla er í innanrými vínkæliskápsins sem tryggir jafna birtu um allan skápinn. Hitamyndun er í algjöru lágmarki, LED lýsingin gefur ekki frá sér útfjólubláa geisla og óhætt er þar af leiðandi að baða vínflöskurnar í ljósinu í lengri tíma.

Nákvæm hita- og rakastýring
Til þess að vín geti þroskast á fullkominn hátt þarf það að geymast við stöðug og jöfn hita- og rakaskilyrði. Vínkæliskápurinn er bæði með öflugri blástursviftu og nákvæmri elektrónískri hitastýringu sem heldur stöðugra hitastigi í skápnum en hefðbundið thermostat, jafnvel þó að hitastig umhverfis skápinn sveiflist mjög mikið. Rétt rakastig er einnig lykilþáttur fyrir farsæla langtímageymslu víns. Vínflöskur ætti almennt alltaf að geyma í láréttri stöðu til þess að korktapparnir haldist rakir innan frá, en rakastig í umhverfi er ekki síður mikilvægt. Bæði hitastig og rakastig skápsins eru sýnileg á skjá, hitastig er stillanlegt frá +5°C til +20 °C og rakastig frá 50%-80%.

Lágmarks titringur og UV- vörn
Vægur titringur getur truflað þroska víns og komið í veg fyrir botnfall tanníns. Sérþróuð pressa vínkæliskápsins gefur frá sér algjöran lágmarks titring sem tryggir bestu mögulegu geymsluskilyrði víns. Litað glerið í vínkæliskápnum veitir síðan nauðsynlega vörn gegn útfjólubláum geislum.

Virkur kolafilter
Lykt úr umhverfi getur haft áhrif á þroska víns sem er geymt í lengri tíma. Hámarks loftgæði eru til staðar í vínkæliskápnum þökk sé skilvirkri lofthringrás og virkum kolafilter sem dregur í sig alla óæskilega lykt. Loftgæði eru mjög mikilvæg fyrir þroskun og varðveislu víns.

Hægt að snúa hurðaropnun
Vínkæliskápurinn kemur staðlað hægri hengdur, það er með hurðarhjörunum hægra megin. Mögulegt er að snúa hurðaropnuninni og hafa skápinn vinstri hengdan, allt eftir því sem hentar þér og hvar staðsetja á skápinn.
