Fara í meginmál

Vörunúmer: WPGBI7483

Liebherr

Vínkæliskápur, 149 Bordeaux - Vinidor Selection

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Stórglæsilegur frístandandi vínkæliskápur frá Liebherr sem er 201 cm á hæð, tekur mest 149 Bordeaux flöskur, er með dimmanlegri LED lýsingu, mjúklokun og glæsilegri Sommelier hillu. Vínkæliskápurinn tilheyrir Vinidor Selection línu og getur hentað jafnt fyrir geymslu vína og fyrir almenna notkun. Hann er með þremur aðskildum hitasvæðum og er hitastig stillanlegt í þeim öllum frá +5°C til +20°C. Vínkæliskápar frá Liebherr verja vín gegn útfjólubláum geislum, viðhalda réttum hita- og rakaskilyrðum auk þess sem bestu skilyrði á lofti eru tryggð með virkum kolafilter sem dregur í sig óæskilega lykt.  Einkar glæsilegur vínkæliskápur sem tekur sig vel út í stofunni eða í eldhúsinu.

1.189.990 kr.

Ekki til á lager

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

TempProtect Plus 

TempProtect Plus veitir tvöfalda vörn. Tveir skynjarar eru í innanrými vínkæliskápsins sem mæla hitastigið stöðugt. Þetta gefur þér tvöfalda tryggingu fyrir því að vínin þín séu varin fyrir hitasveiflum. Um leið og annar skynjaranna skynjar tvísýna breytingu á hitastigi, færð þú viðvörun, sem gerir þér kleift að grípa fljótt til aðgerða.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

HumiditySelect 

Komdu í veg fyrir að korktapparnir molni. HumiditySelect gerir þér kleift að velja á milli tveggja stillinga fyrir rakastig á skjá Vinidor vínkæliskápsins: ”Hefðbundið rakastig” eða ”Hátt rakastig”. Ákjósanlegur raki tryggir innsiglaðar flöskur vegna þess að korktapparnir haldast rakir. Einfalt og afskaplega gott fyrir vínin þín.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

UVProtect Plus 

Þreföld vörn. Vínkæliskápurinn er með glerhurð sem er gædd vörn gegn útfjólubláum geislum af áður óþekktri stærðargráðu: þrjú lög til varnar sem samanstanda af lituðu gleri og tveimur lögum af málmi í lofttæmi (Low-E). Mjög skilvirk vörn fyrir vínið þitt gegn skaðlegum sólargeislum.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

FreshAir kolafilter 

Vínskápurinn er með virkum kolafilter sem hlutleysir hvers kyns lykt á áreiðanlegan hátt og tryggir þannig að vínin þín geti þroskast í bestu mögulegu loftgæðum. Vínin viðhalda með þessu öllum sínum gæðum hvað varðar lykt og bragð. Til að tryggja að loftgæðin haldist þannig minnir Liebherr vínkæliskápurinn þig á að skipta um kolafilter á 6 mánaða fresti, sem þú getur auðveldlega gert sjálfur.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

VibrateSafe 

Vínið þitt þarf frið og ró. Hljóðlátar pressur sem eru sérstaklega þróaðar af Liebherr og stöðugar viðarhillur úr gegnheilum beykiviði tryggja sérstaklega varlega geymslu. Þetta gerir víninu þínu kleift að þroskast ótruflað.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

FlexFit viðarhillur 

FlexFit hillurnar er hægt að aðlaga með því að færa viðarspýturnar til og þannig koma fyrir hvers kyns flöskum á fullkominn hátt – jafnvel flöskum í Magnum stærð. Meiri snyrtimennska einkennir vínsafnið þitt fyrir vikið og áhyggjur af því að rauðvín slettist á viðarspýturnar verða óþarfar því þeim er einfaldlega hægt að skipta út

Vínkæliskápur, 149 Bordeaux - Vinidor Selection

Sommelier hilla 

Innanrýmið verður enn áhrifaríkara með Sommelier hillu. Hillan er afar fáguð og sýnir vínin þín, vínglös, karöflur og áhöld á glæsilegan hátt. Sommelier hillan lítur ekki bara frábærlega út, hún er líka einstaklega hagnýt þökk sé innbyggðu geymsluhólfi og vinnuborði sem hægt er að nota þegar vínflöskur eru opnaðar og bornar fram.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

Hæðarstillanlegar viðarhillur 

Hámarks rúmtak. Liebherr víngeymsluskápur gerir þér einnig kleift að skipuleggja vaxandi vínsafnið á auðveldan hátt. Innvols skápsins er hannað þannig að mögulegt sé að geyma vínflöskurnar þannig að flöskuhálsarnir mætist á þeim miðjum og tryggir það fulla nýtni á innanrýminu. Nægt rými er þar af leiðandi fyrir sívaxandi vínbirgðir, svo ekki hika við að halda áfram að safna.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

SoftTelescopic – útdraganlegar brautir 

Virtu vínsafnið þitt fyrir þér á ánægjulegri hátt. Hillur Vinidor selection vínkæliskápsins sitja á vandlega úthugsuðum, mjúkum útdraganlegum brautum. Þetta tryggir að mýkt þegar hillurnar eru dregnar til, færir vínin til þín á þægilegan hátt með sem minnstri truflun fyrir vínin sjálf – sem skilur eftir þá einföldu ánægju fyrir þig að velja hvaða vín hentar fyrir tilefnið.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

Touch & Swipe gler-snertiskjár

Viðhaltu fullkomnu hitastigi inni í vínkæliskápnum án þess að þurfa nokkru sinni að opna hurðina. Touch & Swipe snertiskjárinn er framan á hurðinni og gerir þér kleift að vafra á einfaldan hátt um glæsilegt og notendavænt viðmót og stjórna bæði hita og raka í vínkælinum. Skjárinn sýnir alltaf raunhitastig fyrir hvert svæði, jafnvel þegar skápurinn er ekki í notkun. 

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

EasyFill – auðveld hleðsla 

Hurðin á vínskápnum þínum helst opin ef hún er opnuð meira en sem nemur 90° sem tryggir einstaklega auðvelda hleðslu. Auk þess lokast hurðin sjálfkrafa þegar hún stendur opin sem nemur minna en 90°, alltaf jafn mjúklega og þörf er á fyrir dýrmætt innihald vínkæliskápsins.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

Glæsileg lýsing 

Falleg lýsing umvefur vínin í vínkæliskápnum og sýnir uppstillinguna í sínu besta ljósi. Mögulegt er að stilla skápinn þannig að kveikt sé á lýsingu jafnvel þó að hurðin sé lokuð og hægt er að stilla birtustig ljóssins bæði á skjánum og með SmartDevice appinu. Glæsileg lýsing sem tryggir að vínsafnið þitt veki ávallt eftirtekt.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

BlackSteel innra byrði 

Fullkominn bakgrunnur fyrir vínsafnið þitt: bakhlið úr svörtu ryðfríu stáli. Eftirtektarvert svart stálið gefur innanrými vínkæliskápsins ákveðið “je ne sais quoi” Útlitið er hins vegar bara einn af kostum hráefnisins, bakhliðin tryggir einnig jafna blástursdreifingu og fullkomna stjórn á raka.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

Nákvæmar hitastillingar 

Ef vín er ekki geymt við rétt hitastig getur það versnað að gæðum. Nákvæm hitastýring Liebherr vínkæliskápsins tryggir það að ákjósanlegu hitastigi er stöðugt viðhaldið. Nákvæma gráðu er hægt að stilla á bilinu +5 °C og +20 °C. Núverandi hitastig birtist á skjánum.

Vínkæliskápur, 204 Bordeaux - Vinidor Selection

Geymslusvæði 

Botnsvæði vínkæliskápsins hentar einstaklega vel fyrir geymslu vína og þar er hægt að stjórna rakastigi á fullkominn hátt. Þú getur valið ákjósanlegt rakastig sem hentar þínum þörfum og þannig geymt vín við bestu mögulegu aðstæður sem varðveitir gæði þeirra fyrir þig til að njóta.