Fara í meginmál

Vörunúmer: KSED65PE

Smeg

Veggháfur - Victoria

Hönnun og glæsileiki eldhússins endurspeglast oft á tíðum í háfnum sem setur punkinn yfir i-ið. Veggháfurinn er 60 cm breiður og tilheyrir Victoriu línu.


124.990 kr.

Sérpöntun

Gashelluborð - Victoria

Ástríða fyrir hefðum og smáatriðum

Fagurfræði Victoria línunnar er tileinkuð fólki sem vill hlýlegt eldhúsrými sem tekur vel á móti því. Þeim sem vilja skapa andrúmsloft sem er uppfullt af friðsæld, gleði og hlátri, þar sem tíminn virðist standa í stað. Innblástur línunnar kemur frá "Elisabeth" eldavélinni, þeirri fyrstu sem Smeg framleiddi árið 1948 og töfrar fram nostalgíska sveitarómantík. Línan sameinar tímalausa, klassíska hönnun og einstaka fegurð.

Veggháfur - Victoria

Breytileg loftrás og LED lýsing

Mögulegt er að nota veggháfinn annað hvort til útblásturs eða í hringblæstri. Veggháfur sem er settur upp til útblásturs dregur að sér lykt og gufu sem myndast við matreiðslu og knýr út úr húsinu. Fullkomin loftskipti eiga sér þannig stað í eldhúsinu. Háfnum má breyta í hringrásandi háf með hringrásarsetti og kolafilter. Í hringblæstri dregur háfurinn að sér lykt og gufu, knýr loftið í gegnum kolafilter sem hreinsar það og skilar hreinsuðu loftinu aftur inn í eldhúsið. Háfurinn er með LED ljósum sem eru endingargóð, hagkvæm og lýsa vinnuflötinn undir háfnum fullkomlega upp. Lýsing háfsins er algerlega óháð viftunni og þar af leiðandi er mögulegt að skapa fallega umhverfislýsingu með háfnum í eldhúsinu.