Fara í meginmál

Vörunúmer: DA6698WR

Miele

Veggháfur - Puristic Ed. 6000

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Veggháfur frá Miele með LED lýsingu og birtudeyfi. Háfurinn er um það bil 90 cm breiður, úr ryðfríu stáli og svörtu gleri. Háfurinn er mjög öflugur eða 640 m3/h á booster stillingu og hægt er að nota hann bæði til útblásturs og hringblásturs. Stjórnborð er með snertitökkum og ECO mótor hljóðlátur og orkunýtinn. Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli og má fara í uppþvottavél. Veggháfurinn sjálfur er öruggur og auðveldur í þrifum. Veggháfurinn er með Con@ctivity 3.0 (WLAN) samskiptatækni, en tæknin gerir það að verkum að háfurinn kveikir sjálfkrafa á sér þegar kveikt er á helluborðinu.

679.990 kr.

Sérpöntun

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Con@ctivity

Snjöll stjórnun

Með Con@ctivity getur þú einbeitt þér algjörlega að eldamennskunni. Þetta er vegna þess að háfurinn og helluborðið eiga í þráðlausum samskiptum við hvort annað. Helluborðið sendir upplýsingar um aflstillingar sínar til háfsins, sem aðlagar sogkraft sinn sjálfkrafa eftir þeim og tryggir hámarks loftgæði öllum stundum. Samskiptin milli helluborðs og háfs er komið á annað hvort með ZigBee (Con@ctivity 2.0) eða WiFi (Con@ctivity 3.0).

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

CleanCover 

Auðveld og örugg þrif á innrarými

Miele CleanCover er staðsett bak við fitufilter: engin hætta er á að komast í snertingu við beittar brúnir málma, raflagnir eða mótor. CleanCover yfirborðið bak við filterinn er viðloðunarfrítt, einstaklega slétt og fellt og þar af leiðandi mjög auðvelt í þrifum. Ótrúlega þægilegt og öruggt.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Fitufilter úr ryðfríu stáli

Fagurfræði og góð hönnun

Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli sem virkar frábærlega við að fjarlægja fitu. Innbyggð fallvörn tryggir örugga notkun og verndar helluborðið gegn skemmdum. Ystu lög og rammi filtersins eru úr hágæða ryðfríu stáli. Filterinn heldur hágæða útliti sínu í langan tíma og engin sjáanleg litabreyting verður á honum þegar hann er þrifinn í uppþvottavél.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Hljóðlátur

Þægindi í fyrirrúmi

Öflugur og mjög hljóðlátur. Mótorinn og strompurinn eru sérstaklega hljóðeinangraðir svo auðvelt sé að tala saman með eðlilegum hætti á meðan háfurinn er í gangi, jafnvel ef háfurinn er stilltur á hæstu sogkraftsstillingu.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Virkur AirClean kolafilter

Algerlega lyktarlaust eldhús

Þegar háfurinn er notaður í hringblæstri getur þú notað virkan kolafilter til þess að fjarlægja lykt sem myndast við eldamennsku. Þessum einnota filter þarf að skipta út reglulega.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Miele sérsmíði

Sérsniðnar lausnir frá Miele

Óskir viðskiptavina eru forgangskröfur hjá Miele. Hafa verður marga þætti í huga við val á háfi, til dæmis óskir varðandi hönnun, lengd tengibúnaðs, uppstillingu í herbergi, tegund eldamennsku, hæð notanda og aðrar sérkröfur. Háfinn er hægt að fá sérsmíðaðann eftir þínum þörfum. Þú hefur einnig möguleika á því að sérpanta háfinn í þeim RAL lit sem þú villt.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Háfur heldur sogi áfram 

Lyktarlaust loft í eldhúsi

Alger hreinsun lofts næst með því að láta háfinn ganga áfram að eldun lokinni. Mögulegt er að stilla háfinn þannig að hann slökkvi sjálfvirkt á sér eftir 5 eða 15 mínútur.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Gaumljós fyrir filtera

Niðurtalning í augnsýn

Þegar fitufilter eða kolafilter Miele háfsins mettast, er það gefið til kynna með rauðu LED ljósi.  Fitufilter ætti þá að þrífa sem fyrst og skipta kolafilter út eins fljótt og mögulegt er. Þú getur aðlagað fyrirfram stillta tímalengd fyrir gaumljós filtera eftir þínum þörfum. Gaumljós fyrir mettun fitufilters er hægt að stilla milli 20, 30, 40 og 50 klukkutíma, gaumljós fyrir útskipti kolafilters er hægt að stilla milli 120, 180 eða 240 klukkutíma.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Vifta með tvöfaldri virkni

Kraftmikil loftskipti

Háfurinn er með hágæða miðflótta viftu sem er með sogi á tveimur hliðum. Þessar öflugu einingar tryggja kraftmikil loftskipti öllum stundum auk hámarks sogkrafts. Viftan er þægilega lágvær, þrátt fyrir það hversu öflug hún er.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

ECO mótor

Hjarta hvers háfs

Mótorinn er hjarta og sál hvers háfs. Sumir Miele háfar er með ECO mótor. Hann notar jafnspennu og er orkusparnaður allt að 50% miðað við venjulegan mótor. ECO mótorar eru mjög hljóðlátir en samt eins öflugir og mótorar í öðrum Miele háfum og viftum.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Handgert í Þýskalandi

Hver Miele háfur er einstakur

Næstum allir Miele háfar eru þróaðir og framleiddir í verksmiðju Miele í Arnsberg, Þýskalandi og eru fyrir mestan part handgerðir. Hver háfur er einstakur. Á hverju stigi framleiðslunnar er þörf fyrir ákveðna verkkunnáttu handverksfólks: allt frá því að móta stálið að því að sjóða það saman og slípa. Skuldbinding starfsfólks, kunnátta þeirra, sköpunarkraftur og löngun til að skara fram úr hefur haft mikil áhrif á þá stöðu sem Miele hefur á markaðinum í dag.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Einfalt perlugler – hert gler

Sérstök vörn fyrir háfa úr gleri

Miele háfar sem eru samsettir úr gleri og ryðríu stáli, eru með einföldu hertu öryggisgleri. Ef það skyldi brotna, þá splundrast það í marga litla og bitlausa bita. Eins og við er að búast, tryggir Miele hámarks öryggi skyldi hið ófyrirsjáanlega gerast.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Öryggisvirkni 

Öryggið alltaf sett á oddinn

Háfurinn slekkur sjálfkrafa á sér eftir 10 klukkustundir. Þetta tryggir hámarks öryggi jafnvel ef um stýrivillu er að ræða.