
Litir Portofino línunnar lífga upp á eldhúsið
Innblástur línunnar kemur frá samnefndu þorpi sem er staðsett á jaðri Tigullio flóa á Ítalíu. Helsta kennileiti þorpsins er hrífandi smábátahöfn umkringd ólífutrjám og endurspeglar litapaletta Portofino línunnar þessi blæbrigði Miðjarðarhafsins. Línan einkennist af fullkomnu jafnvægi skærra lita á móti ryðfríu stáli og færir hún bæði rómantík og gleði inn í eldhúsið.

Skapaðu fallega heildarmynd í eldhúsinu
Háfurinn annar fullkomlega eldavél sem er jafn breið og háfurinn sjálfur. Skemmtileg heildarmynd fæst í eldhúsið með því að para háfinn saman við eldavél í sömu línu. Háfurinn er með aflaukandi booster stillingu sem er hægt að velja ef eldamennskan kallar á það. Þá sogar háfurinn til sín mikla lykt og gufu, til dæmis ef verið er að búa til hvissandi wokrétt í pönnu eða lyktarmikinn karrýrétt.

Fitufilterar úr ryðfríu stáli og LED lýsing
Fitufilterar háfsins eru úr ryðfríu stáli, þá er auðvelt að fjarlægja og þrífa í uppþvottavél. Háfurinn er einnig með LED ljósum sem eru endingargóð, hagkvæm og lýsa vinnuflötinn undir háfnum fullkomlega upp. Lýsing háfsins er algerlega óháð viftunni og þar af leiðandi er mögulegt að skapa fallega umhverfislýsingu með háfnum í eldhúsinu.

Breytileg loftrás
Mögulegt er að nota veggháfinn annað hvort til útblásturs eða í hringblæstri. Veggháfur sem er settur upp til útblásturs dregur að sér lykt og gufu sem myndast við matreiðslu og knýr út úr húsinu. Fullkomin loftskipti eiga sér þannig stað í eldhúsinu. Háfnum má breyta í hringrásandi háf með hringrásarsetti og kolafilter. Í hringblæstri dregur háfurinn að sér lykt og gufu, knýr loftið í gegnum kolafilter sem hreinsar það og skilar hreinsuðu loftinu aftur inn í eldhúsið.
