Fara í meginmál

Vörunúmer: KSED95COA

Smeg

Veggháfur - Colonial

Hönnun og glæsileiki eldhússins endurspeglast oft á tíðum í háfnum sem setur punkinn yfir i-ið. Veggháfurinn er 90 cm breiður og passar fullkomlega við 90 cm breið Colonial helluborð og eldavélar.

149.950 kr.

Sérpöntun

Veggháfur - Colonial

Breytileg loftrás

Mögulegt er að nota veggháfinn annað hvort til útblásturs eða í hringblæstri. Veggháfur sem er settur upp til útblásturs dregur að sér lykt og gufu sem myndast við matreiðslu og knýr út úr húsinu. Fullkomin loftskipti eiga sér þannig stað í eldhúsinu. Háfnum má breyta í hringrásandi háf með hringrásarsetti og kolafilter. Í hringblæstri dregur háfurinn að sér lykt og gufu, knýr loftið í gegnum kolafilter sem hreinsar það og skilar hreinsuðu loftinu aftur inn í eldhúsið.

Veggháfur - Colonial

LED lýsing

Háfurinn er með LED ljósum sem eru endingargóð, hagkvæm og lýsa vinnuflötinn undir háfnum fullkomlega upp. Lýsing háfsins er algerlega óháð viftunni og þar af leiðandi er mögulegt að skapa fallega umhverfislýsingu með háfnum í eldhúsinu.