Fara í meginmál

Vörunúmer: KSA600HXE

Smeg

Veggháfur 60 cm

Klassískur 60 cm breiður veggháfur frá Smeg úr ryðfríu stáli. Háfurinn er með hlutlaust útlit og sérstaklega hannaður til þess að passa við fjölbreytt úrval eldhústækja.

76.760 kr.

Sérpöntun

Veggháfur 60 cm

Breytileg loftrás

Mögulegt er að nota veggháfinn annað hvort til útblásturs eða í hringblæstri. Veggháfur sem er settur upp til útblásturs dregur að sér lykt og gufu sem myndast við matreiðslu og knýr út úr húsinu. Fullkomin loftskipti eiga sér þannig stað í eldhúsinu. Háfnum má breyta í hringrásandi háf með hringrásarsetti og kolafilter. Í hringblæstri dregur háfurinn að sér lykt og gufu, knýr loftið í gegnum kolafilter sem hreinsar það og skilar hreinsuðu loftinu aftur inn í eldhúsið.

Veggháfur 60 cm

Öflugur háfur

Háfurinn er með aflaukandi booster stillingu sem er hægt að velja ef eldamennskan kallar á það. Þá sogar háfurinn til sín mikla lykt og gufu, til dæmis ef verið er að búa til hvissandi wokrétt í pönnu eða lyktarmikinn karrýrétt.

Veggháfur 60 cm

LED lýsing

Háfurinn er með LED ljósum sem eru endingargóð, hagkvæm og lýsa vinnuflötinn undir háfnum fullkomlega upp. Lýsing háfsins er algerlega óháð viftunni og þar af leiðandi er mögulegt að skapa fallega umhverfislýsingu með háfnum í eldhúsinu.