Fara í meginmál

Vörunúmer: G7678SCVI XXL

Miele

Uppþvottavél XXL með AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Fjölhæf XXL uppþvottavél til 100% innbyggingar. Vélin er með AutoDos, sjálfvirkri þvottaefnisskömmtun auk þess sem hægt er að nota hefðbundið þvottaefni. Innvols er fjölbreytt; 3D Multiflex hnífaparagrind, hæðarstillanleg efri grind og rúmgóðri neðri grind. Uppþvottavélin er með QuickPowerWash kerfi sem skilar fullkomnum þvotti og þurrkun á innan við 58 mínútum. Einnig er hún sérstaklega hljóðlát.

529.990 kr.

Ekki til á lager

Uppþvottavél XXL með AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Sjálfvirk sápuskömmtun fyrir fullkominn árangur

Tækninýjung: AutoDos með PowerDisk

Frábær árangur: AutoDos er fyrsta sjálfvirka sápuskömmtun í heimi með innbyggðum PowerDisk *. Kerfið hleypir nákvæmlega réttu magni af þvottaefni inn í valið þvottakerfi á nákvæmlega réttum tímapunkti og samstillir þannig uppþvottavélina og sérhæft þvottaefnið. Njóttu frelsisins sem felst í því að nota PowerDisk sem dugar að meðaltali í um það bil 20 þvotta **. Lausn sem skammtar alltaf réttu magni af þvottaefni, sparar þér pening og hjálpar til við að vernda umhverfið á sama tíma.

* Einkaleyfi: EP2850990B1, US9962062B2

** Miðað við ECO 50°C þvottakerfi

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Besta mögulega hreinsun á innan við klukkutíma

QuickPowerWash

Óviðjafnanleg samsetning: QuickPowerWash þvottakerfi og sérhannað þvottaefni frá Miele, All in 1 UltraTabs eða PowerDisk, ná besta mögulega þvotti og þurrki á meðalskítugu leirtaui á 58 mínútum. Þessar sérhönnuðu töflur eru aðeins tvær til þrjár mínútur að leysast upp. Þetta þýðir frábær þrif sem hefjast strax í byrjun þvottar.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Fyrir þurrt leirtau

AutoOpen þurrkun

Dyr uppþvottavélarinnar opnast sjálfkrafa í lok sumra þvottakerfa þannig að lítið bil myndast á milli hurðar og borðplötu. Vifta knýr heitt, rakt loft út úr innanrými vélarinnar, sem gerir það að verkum að jafnvel krefjandi hlutir eins og plastskálar þorna almennilega. Sérstök loftgöng vernda borðplötuna þína gegn raka.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Áhrifaríkt gegn vírusum – vísindalegar prófanir * 

Hreinlæti – staðfest með prófunum 

Áhyggjulaus uppþvottur: Fjarlægðu áreiðanlega meira en 99,9% af vírusum (t.d. corona, influenza eða norovirus) með notkun PowerDisk eða UltraTabs á þvottakerfum Hreinlæti 70°C eða Öflugt þvottakerfi 75°C. Skilvirkni hefur verið staðfest með prófunum Institute for Hygiene and Virology. Rhine-Waal University of Applied Sciences staðfestir einnig ótrúlegt hreinlæti Miele uppþvottavéla. Í hreinlætisprófunum voru meira en 99,99% af bakteríum (Enterococcus faecium) fjarlægðar með notkun AutoDos og PowerDisk á þvottakerfum ECO og QuickPowerWash 65 °C. Þvottakerfi Hreinlæti 70°C minnkaði auk þess magn baktería (Enterococcus faecium eða Micrococcus luteus) töluvert, jafnvel án notkunar þvottaefnis.

* Samkvæmt vottun frá Institute for Hygiene and Virology varðandi fjarlægingu hjúpaðra og óhjúpaðra veira (t.d. kórónaveira, inflúensuveira eða nóróveira) í prófuðum þvottakerfum Hreinlæti 70°C og Öflugt þvottakerfi 75°C, í öllum tilvikum með notkun PowerDisk/UltraTabs. Nánari upplýsingar má nálgast á eftirfarandi slóð www.miele.com/g7000-c.

Uppþvottavél XXL með AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Snjöll stjórnun 

Heimilistækjum stýrt gegnum netið með Miele@home *

Með nýjunginni Miele@home, getur þú fullnýtt þér alla möguleika Miele tækisins þíns og snjallvætt hversdagslífið enn frekar. Öllum Miele snjalltækjum er hægt að stjórna á þægilegan og öruggan hátt í gegnum netið. Notkun fer fram í gegnum WiFi router og Miele skýið.

* Miele@home er sérstök stafræn lausn frá Miele & Cie. KG. Allar snjallaðgerðir eru mögulegar með Miele@home forritinu. Fjölbreytni stillingarmöguleika getur verið mismunandi eftir löndum og gerð tækja. 

Uppþvottavél XXL með AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Besti orkunýtingarflokkur A

Orkunýtingarflokkur A

Orkumiðinn inniheldur upplýsingar um rekstrarkostnað og afköst uppþvottavélarinnar. Miele tæki sameina fullkomin þrif og þurrkun með mjög lágri rafmagns- og vatnsnotkun. Tæki í orkunýtingarflokki A uppfylla allar kröfur varðandi orku- og vatnsnýtingu, sem sparar þér peninga og verndar umhverfið á sama tíma. Frábært val!

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

ComfortClose

Frábær hurðarhönnun

Upplifðu hversu auðveldlega dyrin á Miele uppþvottavélinni opnast og lokast. Til þægindaauka helst hurðin einnig á þeim stað sem að þú vilt að hún haldist.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Litaðir hlutar innvols fyrir þægindi við notkun

FlexAssist litakóðun

FlexAssist litakóðun merkir þá hluta innvolsins sem hægt er að færa til og auðveldar þér að aðlaga grindur uppþvottavélarinnar að þínum þörfum. Lítil tákn, eins og bolli eða vínglas, á litaða innvolsinu gefur til kynna hvernig hægt er að nota svæðið. Auk þess gera handföng merkt með FlexAssist litakóðun þér kleift að aðlaga körfurnar á sem fjölhæfastan hátt með einföldum úlnliðshreyfingum.

Uppþvottavél XXL með AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Hámarks sveigjanleiki

3D MultiFlex hnífaparagrind *

Hnífaparagrindin hefur verið betrumbætt þannig að mögulegt sé að koma ýmsum borðbúnaði fyrir, til dæmis litlum espresso bollum. 3D MultiFlex hnífaparagrindin * er með miðsvæði sem hægt er að lækka niður og tveimur hliðarsvæðum. Vinstra hliðarsvæðinu er hægt að ýta til hægri til þess að búa til rými fyrir há vínglös í efri grind. Dýpt hægra hliðarsvæðis er hægt að stilla auðveldlega og koma þar fyrir bæði fyrirferðameiri áhöldum og smærra leirtaui.

* Einkaleyfi: DE102008062761B3, EP2433549B1

Uppþvottavél með AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Framúrskarandi sveigjanleiki fyrir allar gerðir leirtaus

MaxiComfort

3D MultiFlex hnífaparagrind, FlexCare bollahaldari og niðurfellanlegar teinaraðir bjóða upp á frábæran sveigjanleika. Vínglösum er haldið örugglega á sínum stað með silíkon púðum á FlexCare glös & flöskur vínglasahaldara, en einnig er hægt að nota hann til að skorða af allt að tvær fjölnota flöskur. MultiClip festing festir minni hluti, á meðan XL Assist festing skorðar stærra leirtau af og býr til aukið rými fyrir hleðslu. Fjölnota rör er auk þess hægt að setja í sérstakan StrawClean haldara.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Aukið öryggi

Tvöföld vatnslekavörn (WPS)

Tveir lokar eru í uppþvottavélinni. Ef fyrri lokinn bilar þá lokar sá síðari, segulloki við krana, inntakinu. Hlíf er auk þess á vatnsinntaksslöngunni til öryggis, ef skemmdir verða á innri slöngunni rennur vatn niður hlífina og í gólfbakkann.

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Ný hönnun á innflæði vatns fyrir minni vatnsnotkun

EcoPower tækni 

Vatnsnotkun í ECO þvottakerfi hefur dregist saman og er nú aðeins 8,4 lítrar. Þetta þýðir að minni orku þarf til að hita upp vatnið og þú nýtur góðs af orkunýtnari uppþvottavél. Vatnssparnaður næst með nýrri hönnun varðandi innflæði vatns og nýju mjög áhrifaríku kerfi filtera.  Viðbótareinangrun minnkar einnig hitatap og minnkar þar af leiðandi þá orkuþörf sem þarf til þess að hita upp vatnið.

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Sparneytin uppþvottavél frá Miele

Ferskvatns uppþvottavél

Uppþvottavélin notar einungis ferskvatn og getur þvegið leirtau með einungis 6,0 lítrum af vatni á AUTO þvottakerfi - mun minna en innihald venjulegs vasks. Vegna þessa eiginleika hefur vatnsnotkun í Miele uppþvottavélum minnkað um 85% á seinustu 30 árum. Orkunotkun hefur líka dregist saman og í raun aldrei verið minni: í ECO þvottakerfi er orkunotkun vélarinnar aðeins 0,54 kWh.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Notkun aðlöguð

Hálf vél

Þú getur keyrt uppþvottavélina með góðri samvisku jafnvel þótt hún sé ekki fullhlaðin: í næstum öllum þvottakerfum mælir uppþvottavélin hversu mikið leirtau er í innanrými og aðlagar vatnsnotkun á nákvæman hátt samkvæmt því. Vegna sjálfvirkrar skynjunar vélarinnar á hleðslu, er ekki lengur þörf á því að bíða þar til hún er fullhlaðin.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Orku- og vatnsnotkun alltaf sjáanleg

EcoFeedback

Viltu vernda umhverfið um leið og þú þværð diskana þína? Uppþvottavélin gerir þér auðvelt fyrir: um leið og þú velur þvottakerfi sýnir skjár hennar hversu mikið vatn og rafmagn vélin gerir ráð fyrir að nota. EcoFeedback gerir þér kleift að velja þann kost sem er umhverfisvænastur. Í lok þvottakerfis er síðan hægt að sjá nákvæmar upplýsingar um orku- og vatnsnotkun vélarinnar á skjánum.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Fullkominn glasaþvottur fyrir viðkvæma glervöru

Brilliant GlassCare

Brilliant GlassCare þvær viðkvæma glervöru varlega. Þvottakerfi fyrir viðkvæm glös keyrir á aðeins 45°C hita. Mjúkir silíkonpúðar á FlexCare vínglasarekkum halda vínglösunum varlega en örugglega. Einkaleyfisvarin AutoOpen tækni opnar dyr uppþvottavélarinnar sjálfvirkt í lok þvottakerfis. Glösin verða þurr án þess að þau þurfi að pússa sérstaklega í höndunum – og sérhæfðu þvottaefnin með glerverndarformúlu frá Miele tryggja bestu mögulegu meðhöndlun og endingu.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Besta mögulega þurrkun með minni orkunotkun

SensorDry

SensorDry aðlagar þvottakerfið jafnóðum til þess að ná fullkominni þurrkun og til þess að koma í veg fyrir skemmdir á innréttingu. Skynjari mælir magn leirtaus í uppþvottavélinni auk hitastigs bæði inni í uppþvottavélinni og í herberginu. Uppþvottavélin aðlagar síðan þvottakerfið samkvæmt mælingum, þ.e. með því að aðlaga hitastig lokaskolunar. Markmiðið er að koma í veg fyrir þéttingu vatns á skápum auk þess að minnka orkunotkun og lengd þvottatíma án þess að það komi niður á gæðum þurrkunar.