-min-02943ab4-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
QuickPowerWash
Besta mögulega hreinsun á innan við klukkutíma
Óviðjafnanleg samsetning: QuickPowerWash þvottakerfi og sérhannaðar UltraTabs ná besta mögulega þvotti og þurrki á meðalskítugu leirtaui á 58 mínútum. Þessar sérhönnuðu töflur eru aðeins tvær til þrjár mínútur að leysast upp. Þrif eru þar af leiðandi frábær allt frá fyrstu mínútum þvottar. Niðurstaða: Þvottahæfnisflokkur A.

EcoPower tækni
Ný hönnun á innflæði vatns fyrir minni vatnsnotkun
Vatnsnotkun í ECO þvottakerfi hefur dregist saman og er nú 8,4 lítrar. Þetta skilar sér í minni orkuþörf vegna upphitunar vatns og þú nýtur góðs af orkunýtnari uppþvottavél. Vatnssparnaður næst með nýrri hönnun varðandi innflæði vatns og nýju mjög áhrifaríku kerfi filtera. Viðbótareinangrun minnkar einnig hitatap og minnkar þar af leiðandi þá orkuþörf sem þarf til þess að hita upp vatnið.

Hreinlæti – staðfest með prófunum
Árangurinn sem næst veitir þér algera hugaró
Fjarlægðu áreiðanlega meira en 99,9% af vírusum (t.d. corona, influenza eða norovirus) með notkun PowerDisk eða UltraTab töflum á þvottakerfum Hreinlæti 70°C eða Öflugt þvottakerfi 75°C. Skilvirkni hefur verið staðfest með prófunum Institute for Hygiene and Virology.
Rhine-Waal University of Applied Sciences staðfestir einnig ótrúlegt hreinlæti Miele uppþvottavéla. Í hreinlætisprófunum voru meira en 99,99% af bakteríum (Enterococcus faecium) fjarlægðar með notkun AutoDos og PowerDisk á þvottakerfum ECO og QuickPowerWash 65 °C.
* Nánari upplýsingar má nálgast á eftirfarandi slóð https://www.miele.com/g7000-c

ComfortClose
Besta hurðarhönnun okkar tíma
Upplifðu hversu auðveldlega dyrin á Miele uppþvottavélinni opnast og lokast. Til þægindaauka helst hurðin einnig á þeim stað sem að þú vilt að hún haldist.
-min-240ee3a0-1400x788.jpg&w=3840&q=100)
Ferskvatns uppþvottavél
Sparneytin uppþvottavél frá Miele
Uppþvottavélin notar einungis ferskvatn. Hún getur þvegið leirtau á AUTO þvottakerfi með einungis 6,0 lítrum af vatni sem er mun minna en innihald venjulegs vasks. Vegna þessa eiginleika hefur vatnsnotkun í Miele uppþvottavélum minnkað um 85% á seinustu 30 árum. Orkunotkun hefur líka minnkað og í raun aldrei verið minni.

Tímaseinkun
Keyrðu uppþvottavélina þegar þér hentar
Mögulegt er að stilla ræsingu þvottakerfis allt að 24 klukkustundum fyrr með því að nota valkostinn tímaseinkun. Þetta gerir þér kleift að keyra uppþvottavélina nákvæmlega þegar það hentar þér best.

Eftirstöðvar þvottakerfis sjást á skjá
Allt í augnsýn
Á skjá uppþvottavélarinnar sést hversu langur tími er eftir af þvottatíma, þ.e. eftirstöðvar þvottakerfis. Þetta upplýsir þig um framvindu þvottar í vélinni þinni öllum stundum.
-min-6a8728b0-1400x788.jpg&w=3840&q=100)
Hæðarstillanleg efri grind
Besta nýting á rými
Auðvelt er að hæðarstilla efri grind í öllum Miele uppþvottavélum – jafnvel í hallandi stöðu. Samtals 9 stillingar eru mögulegar. Þetta veitir þér möguleika á því að fullnýta innanrými uppþvottavélarinnar í hvert skipti sem þú notar hana.
-min%2520einungis%2520fr%25C3%25A1%2520Miele-32d7cbc3-1400x788.jpg&w=3840&q=100)
MultiComfort svæði í neðri grind
Hver einasti hlutur hefur sína fullkomnu staðsetningu
MultiComfort svæðið í neðri grind gerir þér kleift að setja diska í mismunandi stærðum, allt að 35 cm í þvermál, í þrjár raðir. Rýmið nýtist einnig vel til þess að koma skurðarbrettum, framreiðsluplöttum, skálum og háum bjórglösum fyrir á þægilegan og auðveldan hátt. Niðurfellanlegu teinaraðirnar mynda að lokum stórt, flatt svæði sem hentar einstaklega vel til þess að koma fyrirferðarmiklum hlutum fyrir, til dæmis stórum pottum og pönnum.
