Fara í meginmál

Vörunúmer: G5590SCVI SL

Miele

Uppþvottavél - 100% innbyggð

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

45cm breið uppþvottavél til 100% innbyggingar. Vélin er með fjölbreytt innvols: Hnífaparagrind, hæðarstillanleg efri grind og rúmgóð neðri grind. Uppþvottavélin er með QuickPowerWash kerfi sem skilar fullkomnum þvotti og þurrkun á innan við 58 mínútum.

324.990 kr.

Ekki til á lager

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Besta mögulega hreinsun á innan við klukkutíma

QuickPowerWash

Óviðjafnanleg samsetning: QuickPowerWash þvottakerfi og sérhannað þvottaefni frá Miele, All in 1 UltraTabs, ná besta mögulega þvotti og þurrki á meðalskítugu leirtaui á 58 mínútum. Þessar sérhönnuðu töflur eru aðeins tvær til þrjár mínútur að leysast upp. Þetta þýðir frábær þrif sem hefjast strax í byrjun þvottar.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Áhrifaríkt gegn vírusum – vísindalegar prófanir * 

Hreinlæti – staðfest með prófunum 

Áhyggjulaus uppþvottur: Fjarlægðu áreiðanlega meira en 99,9% af vírusum (t.d. corona, influenza eða norovirus) með notkun PowerDisk eða UltraTabs á þvottakerfum Hreinlæti 70°C eða Öflugt þvottakerfi 75°C. Skilvirkni hefur verið staðfest með prófunum Institute for Hygiene and Virology. Rhine-Waal University of Applied Sciences staðfestir einnig ótrúlegt hreinlæti Miele uppþvottavéla. Í hreinlætisprófunum voru meira en 99,99% af bakteríum (Enterococcus faecium) fjarlægðar með notkun AutoDos og PowerDisk á þvottakerfum ECO og QuickPowerWash 65 °C. Þvottakerfi Hreinlæti 70°C minnkaði auk þess magn baktería (Enterococcus faecium eða Micrococcus luteus) töluvert, jafnvel án notkunar þvottaefnis.

* Samkvæmt vottun frá Institute for Hygiene and Virology varðandi fjarlægingu hjúpaðra og óhjúpaðra veira (t.d. kórónaveira, inflúensuveira eða nóróveira) í prófuðum þvottakerfum Hreinlæti 70°C og Öflugt þvottakerfi 75°C, í öllum tilvikum með notkun PowerDisk/UltraTabs. Nánari upplýsingar má nálgast á eftirfarandi slóð www.miele.com/g7000-c.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

ComfortClose

Frábær hurðarhönnun

Upplifðu hversu auðveldlega dyrin á Miele uppþvottavélinni opnast og lokast. Til þægindaauka helst hurðin einnig á þeim stað sem að þú vilt að hún haldist.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Litaðir hlutar innvols fyrir þægindi við notkun

FlexAssist litakóðun

FlexAssist litakóðun merkir þá hluta innvolsins sem hægt er að færa til og auðveldar þér að aðlaga grindur uppþvottavélarinnar að þínum þörfum. Lítil tákn, eins og bolli eða vínglas, á litaða innvolsinu gefur til kynna hvernig hægt er að nota svæðið. Auk þess gera handföng merkt með FlexAssist litakóðun þér kleift að aðlaga körfurnar á sem fjölhæfastan hátt með einföldum úlnliðshreyfingum.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Aukið öryggi

Tvöföld vatnslekavörn (WPS)

Tveir lokar eru í uppþvottavélinni. Ef fyrri lokinn bilar þá lokar sá síðari, segulloki við krana, inntakinu. Hlíf er auk þess á vatnsinntaksslöngunni til öryggis, ef skemmdir verða á innri slöngunni rennur vatn niður hlífina og í gólfbakkann.

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Ný hönnun á innflæði vatns fyrir minni vatnsnotkun

EcoPower tækni 

Vatnsnotkun í ECO þvottakerfi hefur dregist saman og er nú aðeins 8,4 lítrar. Þetta þýðir að minni orku þarf til að hita upp vatnið og þú nýtur góðs af orkunýtnari uppþvottavél. Vatnssparnaður næst með nýrri hönnun varðandi innflæði vatns og nýju mjög áhrifaríku kerfi filtera.  Viðbótareinangrun minnkar einnig hitatap og minnkar þar af leiðandi þá orkuþörf sem þarf til þess að hita upp vatnið.

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Sparneytin uppþvottavél frá Miele

Ferskvatns uppþvottavél

Uppþvottavélin notar einungis ferskvatn og getur þvegið leirtau með einungis 6,0 lítrum af vatni á AUTO þvottakerfi - mun minna en innihald venjulegs vasks. Vegna þessa eiginleika hefur vatnsnotkun í Miele uppþvottavélum minnkað um 85% á seinustu 30 árum. Orkunotkun hefur líka dregist saman og í raun aldrei verið minni.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Notkun aðlöguð

Hálf vél

Þú getur keyrt uppþvottavélina með góðri samvisku jafnvel þótt hún sé ekki fullhlaðin: í næstum öllum þvottakerfum mælir uppþvottavélin hversu mikið leirtau er í innanrými og aðlagar vatnsnotkun á nákvæman hátt samkvæmt því. Vegna sjálfvirkrar skynjunar vélarinnar á hleðslu, er ekki lengur þörf á því að bíða þar til hún er fullhlaðin.