Fara í meginmál

Vörunúmer: STFABBL3

Smeg

Undirbyggð uppþvottavél - 50´s Retro Style

FAB uppþvottavél til undirbyggingar undir borðplötu, úr Retro 50´s línu Smeg. Planetarium þvottaspaði skilar bestu mögulegu þvottaniðurstöðum og auðvelt er að stilla innréttinguna eftir hleðsluþörfum. Vélin er hljóðlát, orkunýtin og tekur borðbúnað fyrir 13 manns. Hún er auk þess uppfull af hagnýtum þvottakerfum og öryggi tryggt með tvöfaldri vatnslekavörn.

323.990 kr.

Sérpöntun

Undirbyggð uppþvottavél - 50´s Retro Style

Líflegir litir og ávalar línur mætast í glæsilegum retro tækjum 

Vörur úr Retro 50´s línu Smeg eru elskaðar út um allan heim. Þær eru ítölsk hönnun og framleiðsla, en innblástur línunnar og litaúrval má rekja til tísku tímabilsins um 1950. Hönnunin einkennist af ávölum línum, björtum litum, ásamt krómhúðuðu handfangi og logo. Þessi útlitseinkenni gefa tækjunum skemmtilegan stíl og karakter sem kemur vel út í hvaða rými sem er. 

Undirbyggð uppþvottavél - 50´s Retro Style

50´s uppþvottavél gædd nýjustu tækni

Þvottatækni uppþvottavélarinnar byggist á nýlegri hönnun með Smeg einkaleyfi, Planetarium þvottaspaða. Þvottaarmurinn er tvöfaldur og hefur einkennandi plánetu snúningshreyfingar. Þvottaspaðinn snýst réttsælis kringum einn öxul á meðan undirliggjandi stofn sem spaðinn er festur í snýst rangsælis í kringum annan öxul. Þvottaarmurinn spreyjar vatni jafnt með 360° sveiflu á um það bil 65 rpm hraða. Planetarium þvottaspaðinn tryggir þannig að vatnið komist á alla staði innan uppþvottavélarinnar, lágmarkar orkunotkun og skilar bestu mögulegu þvottaniðurstöðum.

Undirbyggð uppþvottavél - 50´s Retro Style

Þrif eftir veislur og matarboð verður leikur einn 

Uppþvottavélin er rúmgóð, hún tekur borðbúnað fyrir 13 manns og auðvelt er að stilla innréttinguna eftir hleðsluþörfum. Vélin er með glasa- og bollahöldurum, niðurfellanlegum teinum, hæðarstillanlegri milligrind og FlexiDuo hnífaparagrind. Hnífaparagrindin er samsett úr tveimur færanlegum helmingum sem mögulegt er að renna til eða fjarlægja. Þannig má koma stórum hlutum, eins og ausum eða bollum, fyrir í FlexiDuo grindinni. Þessi mikli sveigjanleiki innréttingar einfaldar alla umgengni og gerir hleðslu uppþvottavélarinnar bæði hraðvirka og auðvelda.

Undirbyggð uppþvottavél - 50´s Retro Style

Uppþvottavél fyrir þá sem hafa unun af tísku og hönnun  

FAB uppþvottavélar eru ekki aðeins fallegar, heldur eru þær líka orkunýtnar, hljóðlátar og uppfullar af hagnýtum þvottakerfum. Kerfin spanna allt frá öflugu þvottakerfi fyrir potta og pönnur til þvottakerfis fyrir viðkvæm glös. Hraðþvottakerfi sem tekur aðeins 27 mínútur er til staðar fyrir lítið skítugt leirtau og sjálfhreinsikerfi sem er sérhannað til þess að þrífa og viðhalda vélinni. Hljóðlátt kerfi er einnig til staðar sem minnkar hljóð frá uppþvottavélinni um 2 dB. Ýmsir valkostir auka þægindi við notkun. Dry Assist+ er valkostur sem opnar hurð uppþvottavélarinnar við lok flestra þvottakerfa. Hægt er að þvo hálfa vél þannig að uppþvottavélin aðlagar vatns-, orkunotkun og tímalengd þvottakerfis. Auk þess er mögulegt að keyra uppþvottavélina nákvæmlega þegar það hentar best með valkostinum tímaseinkun. Njóttu skínandi hreinna diska eftir hvern þvott, í uppþvottavél sem vinnur eins vel og hún lítur út.