
UltraPhase – staðfest af Hohenstein Institute
Gæði staðfest af Hohenstein Institute
Þýska stofnunin Hohenstein Institute staðfesti framúrskarandi þvottaárangur sjálfvirkrar tveggja fasa sápuskömmtunar með Miele UltraPhase 1 og UltraPhase 2 þvottaefnisfösum. Atriði sem voru prófuð voru blettahreinsun, hversu hvítur þvottur hélst, hvernig komið var í veg fyrir gránun, nákvæmni skömmtunar og hvernig komið var í veg fyrir hnökrun þvotts.

TwinDos® sjálfvirk sápuskömmtun
Besta sápuskömmtun á fljótandi sápu við fingurgómana
TwinDos® sjálfvirk sápskömmtun með UltraPhase 1 og 2 er ekki aðeins praktísk, heldur tryggir hún líka fullkomin þrif á sama tíma. TwinDos® kerfið skammtar þvottaefnisfösunum UltraPhase 1 og 2 inn í þvottaferlið á besta mögulega tíma og nær þannig hámarks þvottaárangri. TwinDos® skammtar þvottafösunum auk þess með svo mikilli nákvæmni að þú sparar allt að 30% þvottaefni miðað við almenna notkun þvottaefna.

Sensitive þvottaefni – mjög gott fyrir húðina
Verndar viðkvæma húð
Með Miele Sensitive þvottaefni getur þú þvegið fötin þín án þess að hika, jafnvel þótt þú sért með viðkvæma húð. Vegna þess að þvottaefnið skilar djúpri hreinsun þvotts en inniheldur engin ilmefni eða þekkta ofnæmisvalda. Þannig gefur þú viðkvæmri húð þá hvíld sem hún þarfnast og tryggir jafnframt frábæran þvottaárangur.

Fullkominn árangur
Fullkominn árangur í hvert sinn
Besta samspil þvottaefnis og þvottavélar: Einfaldlega fullkominn þvottur með Miele!

UltraPhase – WhiteBooster
Skínandi hvítur þvottur
Miele UltraPhase þvottaefni inniheldur ljósvirk bleikiefni til að halda uppáhalds hvítu flíkunum þínum ljómandi hvítum til lengri tíma litið. Virkni þeirra í sameiningu með TwinDos® skilar framúrskarandi árangri. Sjálfvirka sápuskömmtunin aðlagar magn virks súrefnis sem bætt er við í samræmi við litinn á þvottinum þínum – svo þú getir viðhaldið hvíta þvottinum skínandi hvítum.

UltraPhase – hreinlæti í fyrirrúmi
Hreinn textíll og hreint tæki
Aðeins Miele UltraPhase þvottaefni inniheldur oxandi bleikiefni í formi virks súrefnis. Vetnisperoxíðið brotnar niður í vatn og virkt súrefni í þvottaferlinu. Þetta hefur í för með sér frábæra sótthreinsi- og bakteríudrepandi eiginleika, hjálpar til við að fjarlægja bletti á áhrifaríkan hátt og er á sama tíma gott fyrir umhverfið. Fyrir vikið getur þú notið algerlega hreins þvotts og haldið tromlunni með vaxkökumynstrinu hreinni á sama tíma.

UltraPhase Sensitive – umhverfisvænt
Hart á bletti – mjúkt fyrir umhverfið
Miele UltraPhase Sensitive þvottaefni er ekki bara áhrifaríkt, það er líka umhverfisvænt. Þvottaefnið inniheldur alls ekkert örplast, litarefni né dýraafurðir, sem gerir það algerlega vegan. Það sem meira er, þá inniheldur þvottaefnið yfirborðsvirk efni úr jurtaríkinu sem eru sjálfbær uppspretta. Þvottaefnið er þar af leiðandi frábærlega vistvænt og brotnar auðveldlega niður í náttúrunni.

Miele þvottaefni – áhrifarík og umhverfisvæn
Vegna þess að okkur er annt um umhverfið
Langar þig að þvo þvott á áhrifaríkan máta en á sama tíma á umhverfisvænan hátt? Það er ekkert mál með Miele þvottaefnum! Blettir eru fjarlægðir rækilega með sérstökum afkastamiklum ensímum og það á lágum hitastigum. Meðhöndlun textíls fyrir eða eftir þvott er óþörf sem sparar vatn og verndar þar með umhverfið. Gætileg þrif á fatnaði skilar sér einnig í því að sjaldnar er þörf á því að kaupa nýjar flíkur.

Sjálfbær þvottur
Ráðleggingar varðandi sjálfbæran þvott
Miele þvottaefni eru áhrifarík frá 30°C, en lægri þvottahiti er umhverfisvænni. Fullnýttu hleðslugetu þvottavélarinnar, nema þegar þú þværð viðkvæmar flíkur. Aðlagaðu magn þvottaefnis miðað við vatnshörku og magn óhreininda í þvotti. Þvoðu reglulega 60°C þvottakerfi með stillingum fyrir hvítan þvott. Skildu dyr þvottavélarinnar eftir opnar á milli þvotta. Ef þú eða einhver annar á heimilinu er með rykofnæmi skaltu þvo rúmfötin við að minnsta kosti 60°C.

UltraPhase – virkt súrefni
Mjúk leið til að berjast gegn blettum
Langar þig til að fjarlægja erfiða bletti en þvo þvottinn þinn gætilega? Nú geturðu það með notkun UltraPhase frá Miele. Fljótandi þvottaefnið er með virku súrefni sem er ekki aðeins áhrifaríkt gegn rauðvíns-, kaffi- og teblettum heldur líka gott fyrir umhverfið. Sjálfvirka TwinDos® sápuskömmtunarkerfið tryggir að nákvæmlega réttu magni af virka súrefninu sé bætt í þvottinn þinn. Blettirnir hverfa, en litirnir á fötunum þínum halda áfram að líta vel út.
