Fara í meginmál

Vörunúmer: 11986760

Miele

UltraDark þvottaefni 1,5 L

Þvottaefni í fljótandi formi fyrir dökk og svört textílefni.

  • Tryggir áhrifarík þrif og verndar um leið þræðina í þvottinum
  • Viðheldur styrk lita til lengri tíma litið
  • Varnar því að textíll hnökri og kemur í veg fyrir gránun
  • Inniheldur 7 ensím fyrir hámarks hreinlæti
  • Brúsinn er gerður úr 100% endurunnu plasti - fyrir umhverfið
  • Dugar vel - fyrir allt að 60 þvotta

2.690 kr.

ImpraProtect vatnsþéttiefni 250 ml

Fullkominn árangur

Fullkominn árangur í hvert sinn

Besta samspil þvottaefnis og þvottavélar: Einfaldlega fullkominn þvottur með Miele!

UltraSoft mýkingarefni 1,5 L

100% endurunnið plast

Hjálpumst að við að vernda auðlindir

Markmið Miele er að lágmarka umhverfisálag eins og hægt er. Umbúðirnar á þessari vöru eru þar af leiðandi gerðar úr 100% endurunnu plasti. Plastumbúðirnar er hægt að flokka frá, hreinsa og endurvinna í ný plastkorn eftir að þeim hefur verið fargað af neytendum. Plastkornin má síðan nýta til að búa til nýjar umbúðir. Með því skapast lokuð hringrás hráefnis án þess að þörf sé á að bæta við nýju plasti. Heil hringrás til að vernda umhverfið.

*Hægt er að skila plastumbúðum úr plastflokki 2 í sérstakan gám í Sorpu Sævarhöfða.

UltraDark þvottaefni 1,5 L

UltraDark

Bestu þrif fyrir dökkan og svartan þvott

Svört textílefni þarfnast sérstakrar meðhöndlunar. Miele UltraDark þvottaefnið hefur verið sérsniðið að kröfum dökklitaðs þvotts. Þökk sé litverndandi yfirborðsvirkum efnum eru uppáhalds flíkurnar þínar þrifnar mjúklega og gætilega - án þess að liturinn dofni. Sellulasi fjarlægir bómullarnibba á náttúrulegan hátt og kemur þannig í veg fyrir að þvotturinn hnökri. Þetta gerir þér kleift að njóta hreins þvotts sem hefur fengið góða meðhöndlun. Fyrir föt sem líta út eins og þau gerðu á fyrsta degi.

UltraColor þvottaefni 1,5 L

Blettahreinsun

Fyrir skínandi hreinan þvott

Þvottaefnið er með afkastamiklum, nútíma innihaldsefnum sem tryggja hámarks þvottagæði. Framúrskarandi blettahreinsun næst auk þess á öllum hitastigum þökk sé öflugri formúlu.

UltraColor þvottaefni 1,5 L

Öflug ensím

Framúrskarandi þrif

Miele þvottaefni innihalda allt að sjö öflug ensím fyrir hreinan og blettalausan þvott. Þau tryggja framúrskarandi þrif og áhrifaríka blettahreinsun, jafnvel á lágum hitastigum. Hvert ensím hefur sitt hlutverk: lípasi fjarlægir t.d. fitubletti og pektínasi fjarlægir bletti sem innihalda pektín eins og sultu. Sellulasi kemur á sama tíma í veg fyrir hnökrun og viðheldur björtum litum. Fyrir vikið lítur þvotturinn þinn út eins og nýr í lengri tíma.

UltraColor þvottaefni 1,5 L

Miele þvottaefni – áhrifarík og umhverfisvæn

Vegna þess að okkur er annt um umhverfið

Langar þig að þvo þvott á áhrifaríkan máta en á sama tíma á umhverfisvænan hátt? Það er ekkert mál með Miele þvottaefnum! Blettir eru fjarlægðir rækilega með sérstökum afkastamiklum ensímum og það á lágum hitastigum. Meðhöndlun textíls fyrir eða eftir þvott er óþörf sem sparar vatn og verndar þar með umhverfið. Gætileg þrif á fatnaði skilar sér einnig í því að sjaldnar er þörf á því að kaupa nýjar flíkur.

ImpraProtect vatnsþéttiefni 250 ml

Sjálfbær þvottur 

Ráðleggingar varðandi sjálfbæran þvott

Miele þvottaefni eru áhrifarík frá 30°C, en lægri þvottahiti er umhverfisvænni. Fullnýttu hleðslugetu þvottavélarinnar, nema þegar þú þværð viðkvæmar flíkur. Aðlagaðu magn þvottaefnis miðað við vatnshörku og magn óhreininda í þvotti. Þvoðu reglulega 60°C þvottakerfi með stillingum fyrir hvítan þvott. Skildu dyr þvottavélarinnar eftir opnar á milli þvotta. Ef þú eða einhver annar á heimilinu er með rykofnæmi skaltu þvo rúmfötin við að minnsta kosti 60°C.

UltraColor þvottaefni 1,5 L

ColorProtect

Framúrskarandi litavörn

Textílefni geta blætt litum í þvotti. Þvottaefnið hjálpar þér að viðhalda litunum í þvottinum þínum lengur. Þökk sé sérstökum tálma sem hindrar litaflutning, getur þú komið í veg fyrir mislitun þvotts. Þetta þýðir að þú getur þvegið litaðar flíkur saman án nokkurra vandræða, sem er t.d. fullkomið fyrir marglit efni. Það sem meira er, viðheldur ensímið sellulasi ljómandi litadýrð þvottsins.