Fara í meginmál

Vörunúmer: PRF0080075B

Elica

TUBE PRO

Veggháfur frá Elica úr ryðfríu stáli, með LED lýsingu og einföldu stjórnborði með þrýstitökkum. Háfurinn er einungis 43 cm á breidd og mögulegt er að hafa hann jafnt í útblæstri sem og hringblæstri.

Hönnun: ELICA DESIGN CENTER

139.990 kr.

Ekki til á lager

TUBE PRO

Lítil hætta er á að reka höfuðið í við eldamennsku

STONE er afskaplega nettur og fallegur veggháfur, hann er einungis um 30 cm á breidd og hentar þar af leiðandi sérstaklega vel þar sem pláss er af skornum skammti. Háfurinn er hannaður af Elica Design Center og er fáanlegur annað hvort í ryðfríu stáli eða sem hvítmálaður málmur. Sökum þess hversu fyrirferðarlítill hann er, þarf litlar áhyggjur að hafa af því að reka höfuðið í háfinn við eldamennsku. 


Lýsingu og afli er stjórnað með einföldum þrýstitökkum sem eru staðsettir framan á háfnum. STONE er öflugur og mögulegt er að setja hann upp annað hvort fyrir útblástur eða hringblástur. LED lýsingin gefur náttúrulega og áhrifaríka birtu sem skín beint niður á helluborðið og veitir bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna.


Regluleg þrif háfsins tryggja ekki aðeins hreinlæti í eldhúsinu, heldur einnig lengri líftíma vörunnar. Auðvelt er að fjarlægja bæði fitufilter úr áli og LongLife kolafilter og setja þá aftur á sinn stað. LongLife kolafilter er notaður ef STONE er settur upp fyrir hringblástur. Hann má endurnýta með þrifum í uppþvottavél 2 til 3 hvern mánuð. Líftími kolafiltersins verður allt að þrjú ár með þessu móti og komist verður hjá tíðum og eyðslusömum útskiptum filtera.