
Þvottaumhirða einfölduð
Samansafn þæginda
Njóttu nýstárlegra eiginleika sem gera daglegt líf auðveldara. MotionReact kveikir á þvottavélinni og birtir stóran snertiskjá þegar þú nálgast. Eru hendurnar uppteknar? Það er ekkert mál þökk sé ComfortOpen. Dyrnar opnast auðveldlega um leið og þú snertir handfangið varlega. AmbientLight veitir auk þess sjónræna aðstoð með ljósum og leiðbeinir varðandi notkun vélarinnar. Þvotturinn hefur aldrei verið jafn þægilegur.

Snjallt, sjálfvirkt skömmtunarkerfi / snjöll, sjálfvirk sápuskömmtun
TwinDos® með þvottaefnisgreiningu *
Þú getur sparað allt að 40% þvottaefni með TwinDos® og nýrri þvottatækni. UltraPhase þvottaefni, sem voru þróuð fyrir TwinDos® kerfið, gera þér kleift að ná besta mögulega þvotti fyrir hvít og lituð textílefni. Þvottavélin er með þvottaefnisgreiningu, en snjalltæknin greinir sjálfkrafa þegar Miele þvottaefni í hylki er sett inn og stillir sápuskömmtun eftir gerð þvottaefnis, þvottakerfi og þvottamagni. **
* Einkaleyfi EP 2 784 205
** Sparnaður reiknaður samanborið við handvirka skömmtun og byggt á innri prófunarniðurstöðum. Með áfyllingarílátum (ekki innifalin) er einnig hægt að skammta venjuleg fljótandi þvottaefni eða mýkingarefni sjálfkrafa. Handvirk skömmtun í gegnum þvottaefnisskammtarann er einnig möguleg.

Sparaðu án þess að skerða afköst
QuickPowerWash
Þökk sé PowerWash tækni okkar lágmarkar Spin&Spray kerfið vatnsnotkun á snjallan hátt en viðheldur á sama tíma skilvirkni óháð þvottamagni, sem leiðir til árangursríkra þrifa og er líka gott fyrir veskið. Og það besta, QuickPowerWash þvottakerfið nær þessu öllu á aðeins 49 mínútum. *
* Þetta á við um allar Miele þvottavélar sem gera þér kleift framkvæma ferlið og vélatengdu breyturnar sem kynntar eru í samantekt prófunarskýrslunnar WL 1110/18.

Frískaðu upp á fatnað með gufu og straujaðu allt að 50% minna
SteamCare gufukerfi
SteamCare samanstendur af tveimur þvottakerfum og einum valkost við þvottakerfi: PowerFresh gufukerfið er sérhannað til að fríska upp á og slétta þurran þvott, en gufukerfið forstraujun er fyrir blautar eða nýþvegna flíkur. Kerfin fjarlægja óæskilega lykt (t.d. sígarettureyk) og minnka krumpur um allt að 50%. Forstraujun með gufu er einnig hægt að bæta sem valkosti við ýmis þvottakerfi en þá sléttir vélin úr þvottinum um leið og þvottakerfi er lokið.

Einstaklingsbundin þvottaumhirða eftir þínum þörfum
SmartMatic®
Láttu þvottavélina þína um að velja réttar stillingar. SmartMatic® þvottakerfið aðlagar sig að þvottastærð og tryggir að sama magn af vatni, orku og þvottaefni sé notað fyrir hvert kg af þvotti. Þetta þýðir að þú getur þvegið lítið magn af þvotti á sjálfbæran hátt og með góðri samvisku. Veldu einfaldlega SmartMatic® þvottakerfið og vélin sér um restina. Einfaldasta þvottakerfið og bestu niðurstöðurnar. *
* SmartMatic® þvottakerfið hentar fyrir textílefni sem má þvo á 30 °C og þvottamagns sem er á milli 1-4 kg.

Njóttu uppáhaldsflíkanna þinna lengur
InfinityCare tromla *
Upplifðu varfærna þvottameðhöndlun fyrir þvottinn þinn. Framúrskarandi InfinityCare tromlan er hryggjarlaus og minnkar álagið á þvottinn þinn margfalt. Sérsniðnar þvottahreyfingar sem eru aðlagaðar að tegund þvottar og þvottastærð skila fullkomnum þvottaárangri. Óháð prófunarstofnun hefur staðfest framúrskarandi meðhöndlun textílefna og að litir haldi sér í langan tíma. Með því að minnka slit á þráðum um allt að 50% geturðu notið flíkanna þinna miklu lengur. **
* Einkaleyfisumsókn í vinnslu: EP 4 367 313.
** Prófað á módeli WQ1000 á þvottakerfi Viðkvæmt á 30°C.
-ecbb3b7c-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Áreiðanleiki tryggður
Ábyrgð á Miele mótor
25 ára ábyrgð er á mótorum þvottavéla, þurrkara og þvottavéla-þurrkara frá Miele sem seldir eru hjá Eirvík, þar innifalin tveggja ára lögbundin ábyrgð. *
* Miele tæki sem keypt eru hjá Eirvík eru með 5 ára ábyrgð og því fylgir enginn auka kostnaður. Miele þvottavélar sem keyptar eru hjá Eirvík eftir 1. október 2025 eru auk þess með 25 ára ábyrgð á mótor – skrá þarf tæki á eftirfarandi slóð til að virkja mótorábyrgð: https://www.miele.com/en/com/iceland-eirvik-heimilistaeki-ehf-4514.htm. Professional tæki og ”Litlu risar” eru undanskilin mótorábyrgð.
-f87e922e-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Snjallt alhliða notendaviðmót
M Touch Pro snertiskjár
Upplifðu nýja M Touch Pro snertiskjáinn og fjölhæfni hans. Stóri snertiskjárinn gerir þér kleift að sjá alla valmöguleika sem í boði eru og sækja viðbótarupplýsingar hratt og örugglega. Vistaðu uppáhaldskerfin þín til að nálgast þau á enn skjótari hátt. Ef þú hefur einhverjar spurningar er skjárinn bæði með myndrænar leiðbeiningar og hjálplegar ráðleggingar til aðstoðar.

Hurðaropnun auðvelduð
ComfortOpen sjálfvirk hurðaropnun
Nú er enn auðveldara að setja í Miele þvottavélina og taka úr henni. Ertu með þvottakörfuna í höndunum? Þökk sé snjöllum skynjara opnast dyrnar um leið og þú snertir handfangið varlega. Dyrnar opnast einnig sjálfkrafa þegar krumpuvörn er lokið, svo að þú þarf ekki að kveikja aftur á vélinni. ComfortOpen tryggir áreynslulausa hleðslu og mjög þægilega þvottaupplifun.

Rétt þvottaefni fyrir hvern þvott
CapDos *
Mögulegt er að nota hylki með sérhæfðum þvottaefnum og mýkingarefnum í vélina, eins og ImpraProtect vatnsþéttiefni, CottonRepair bómullarbæti eða Booster hvata fyrir erfiða bletti. Hylkin eru gerð úr 100% endurunnu plasti. Þau innihalda nákvæmlega réttan skammt af efni og byrja að virka um leið og efnin komast í snertingu við vatn. Þetta kemur í veg fyrir notkun of lítils eða of mikils þvottaefnis. Ef nauðsyn krefur, er alltaf mögulegt að opna hylkin með flipa.
* Einkaleyfi EP 2 365 120

Hámarks þrif, lágmarks neysla
PowerWash
Upplifðu nýja tegund af þvotti með PowerWash! Tækninýjungin Spin&Spray tryggir jafna dreifingu vatns og þvottaefnis í tromlunni, sem þýðir að þvotturinn verður bæði skilvirkari og skjótari. Lágmarks vatns-, orku- og þvottaefnisnotkun næst með þessu móti og einnig besti mögulegi þvottaárangur. Skilvirk og fljótleg leið til að ná skínandi árangri.

Valkostur til að fjarlægja bletti
Blettir
Fjarlægðu bletti á auðveldan og þægilegan hátt með því að bæta þeim við þvottakerfið. Vélin aðlagar þvottakerfið sjálfkrafa samkvæmt þeim blettagerðum sem valdar eru og fjarlægir jafnvel erfiða bletti eins og vín, gras og kaffi.

Glæsileiki mætir hagnýtni
Ambient Light
Njóttu glæsileika og þæginda við hverja notkun. AmbientLight skapar tilkomumikla stemningu og er algjör hápunktur þegar kemur að hönnun vélarinnar. ComfortOpen er undirstrikað með upplýstu hurðarhandfangi sem gerir opnun dyrar sérstaklega þægilega. Ljósið í TwinDos® einingunni sýnir þér hvenær þarf að skipta um þvottaefnið í brúsunum. Í þurrkaranum lýsir AmbientLight upp hylkin með ilmefnunum, þannig að þú veist alltaf hversu mikill ilmur er eftir.

Ávallt reiðubúin
MotionReact hreyfiskynjari
Tækið skynjar þegar þú nálgast, þökk sé hreyfiskynjara, og tekur á móti þér með að kveikja á þægilegri lýsingu í tromlunni og virkja stjórnborðið sjálft. Þannig getur þú strax hafist handa og nýtur alveg nýrrar upplifunar þegar kemur að þægindum við hinn daglega þvott.

Snjöll stjórnun gegnum netið
Miele@home *
Njóttu nútíma þæginda með því að tengja þvottavélina við Miele appið og stjóraðu vélinni hvar sem er á heimilinu. Fáðu tilkynningar þegar þvottakerfi er lokið, búðu til sérhæfð þvottakerfi og margt fleira.
* Viðbótar stafræn lausn frá Miele & Cie. KG. Virkni getur verið mismunandi eftir módeli og landi. Þú þarft að samþykkja skilmála og persónuverndarstefnu Miele appsins fyrir stafrænar vörur og þjónustu. Miele áskilur sér rétt til að breyta eða hætta stafrænni lausn hvenær sem er.

Bættu við eða fjarlægðu stakar flíkur
AddLoad
Þú getur bætt við sokki sem gleymdist eða annarri flík á þægilegan hátt á meðan á þvottakerfi stendur, þökk sé AddLoad. Settir þú óvart svarta skyrtu með hvíta þvottinum fyrir mistök? Þá getur þú fjarlægt hana á þægilegan hátt á meðan á þvottakerfi stendur. Valið þvottakerfi mun halda áfram sjálfkrafa eftir það.

Prófað samkvæmt ströngustu hreinlætisstöðlum
Framúrskarandi hreinlæti
Yfirgripsmikið hreinlæti sem hefur verið prófað og unnið til verðlauna frá Institute for Integrative Hygiene and Virology. Árangur hreinlætis hefur verið metinn á ýmsum þvottakerfum með notkun hins einstaka TwinDos® kerfis. Niðurstöður staðfesta að meira en 99,99% af bakteríum og myglusveppum auk þess sem meira en 99,9% af vírusum eru fjarlægðir úr þvottinum og tækinu sjálfu. Rykmaurar og veggjalýs drepast líka á áreiðanlegan hátt. *
* Prófað af háskólanum í Albstadt-Sigmaringen og stofnunin veitti gullmerkið fyrir Integrative Hygiene and Virology (InFluenc_H). Á við um allar þvottavélar með TwinDos® og PowerWash á þvottakerfi Bómull 60°C með valkosti Hygiene plus og í samsetningu með Miele UltraPhase þvottaefni, sem og viðhaldsþvottakerfi Clean machine með Miele IntenseClean hreinsiefni. Þvottakerfin QuickPowerWash 60°C og QuickPowerWash 40°C uppfylla einnig vottaða hreinlætisstaðla þegar þau eru notuð í samsetningu við Miele UltraPhase þvottaefni. Prófaðar bakteríur eru meðal annars E. coli og hjúpaðar veirur (t.d. kórónuveira) og óhjúpaðar veirur (t.d. nóróveirur og adenóveirur). Lýsingu á prófunarviðmiðunum er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.miele.de/media/ex/com/W2_Excellent_hygiene_de_en.pdf

Öryggi þökk sé ströngum hreinlætisstöðlum
Hygiene plus
Veldu Hygiene plus fyrir aukið hreinlæti í þvottinum þínum. Í samvinnu við hið einstaka TwinDos® kerfi er hægt að fjarlægja meira en 99,99% af bakteríum og myglusveppum sem og meira en 99,9% af vírusum á áreiðanlegan hátt úr þvottinum. Rykmaurar og veggjalýs drepast líka. Prófunaraðferðir uppfylla ströngustu hreinlætisstaðla í þvottaiðnaðinum. Miele hefur hlotið Virus Hygiene gullmerkið.*
* Prófað af háskólanum í Albstadt-Sigmaringen og stofnunin veitti gullmerkið fyrir Integrative Hygiene and Virology (InFluenc_H). Á við um allar þvottavélar með TwinDos® og PowerWash á þvottakerfi Bómull 60°C með valkosti Hygiene plus, í samsetningu með Miele UltraPhase þvottaefni. Prófaðar bakteríur eru meðal annars E. coli og hjúpaðar veirur (t.d. kórónuveira) og óhjúpaðar veirur (t.d. nóróveirur og adenóveirur). Lýsingu á prófunarviðmiðunum er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.miele.de/media/ex/com/W2_Hygiene_plus_de_en.pdf

Fyrir heilnæma og hreina þvottavél
Hrein þvottavél
Þvottakerfið Hreinsun þvottavélar fjarlægir meira en 99,99% af bakteríum og myglu, sem og meira en 99,9% af vírusum úr tækinu sjálfu þegar það er keyrt með IntenceClean hreinsiefni fyrir þvottavélar. Þannig heldur þú tækinu hreinu og heilnæmu og fjarlægir auk þess örverur og óæskilega lykt. Prófunaraðferðir uppfylla ströngustu hreinlætisstaðla í þvottaiðnaðinum.*
* Prófað af háskólanum í Albstadt-Sigmaringen og stofnunin veitti gullmerkið fyrir Integrative Hygiene and Virology (InFluenc_H). Á við um allar þvottavélar með TwinDos® og PowerWash í viðhaldsþvottakerfi Clean machine með Miele IntenseClean hreinsiefni. Prófaðar bakteríur eru meðal annars E. coli og hjúpaðar veirur (t.d. kórónuveira) og óhjúpaðar veirur (t.d. nóróveirur og adenóveirur). Lýsingu á prófunarviðmiðunum er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.miele.de/media/ex/com/W2_Clean_machine_de_en.pdf

Engin ástæða til að vera með samviskubit
SingleWash
Þökk sé valkostinum SingleWash, þarf þú ekki aldrei aftur að vera með samviskubit yfir því að þvo staka flík eða einungis tvær flíkur í einu fyrir eitthvað sérstakt tilefni. Valkosturinn hefur verið sérhannaður fyrir þetta verk. Þvottatíminn er styttur og vatns- og orkunotkun minnkuð.

Algjörlega til fyrirmyndar
Orkunýtni
Miele þvottavélar hafa verið hannaðar sérstaklega fyrir lágmarks vatns- og orkunotkun. Þú nýtur góðs af framúrskarandi þvottaniðurstöðum sem eru bæði umhverfisvænar og fara vel með veskið.

Lágmarksneysla, hámarksáhrif
FlexLoad
FlexLoad bestar tímalengd þvottakerfis og vatns- og rafmagnsnotkun. Þvottavélin skynjar nákvæma stærð hleðslu og aðlagar alla parametra sjálfkrafa samkvæmt þyngdinni. Sérhvert þvottakerfi er þar af leiðandi aðeins keyrt jafnlengi og þörf er á, án þess að það skerði þvottaárangur, sem getur stytt þvottatímann um allt að 2 tíma. Þvotturinn er þveginn á skilvirkan hátt, þú sparar tíma og auðlindir, og umhverfið nýtur góðs af minni notkun. *
* Stytting þvottatíma um allt að tvær klukkustundir var mæld með fullri hleðslu og með lágmarks hleðslu á sama þvottakerfi.

Upplýsingar um neyslu tækisins ávallt til staðar
EcoFeedback
Miele þvottavélar með EcoFeedback fylgjast vandlega með orku- og vatnsnotkun, sem gerir þér kleift að aðlaga og besta þvottinn þinn eftir þörfum. Við lok þvottakerfis færð þú ítarlegar upplýsingar varðandi vatns- og rafmagnsnotkun.

Hagkvæmur, öflugur og viðhaldsfrír
ProfiEco mótor *
ProfiEco mótorinn frá Miele er öflugur inverter-mótor sem notar orku á skilvirkan og hljóðlátan hátt. Mótorinn er næstum viðhaldsfrír, þökk sé rafeindastýringu og því að hann er kolalaus. Þessi nýstárlega hönnun tryggir áralanga skilvirka, áhyggjulausa og þægilega þvottameðhöndlun.
* Einkaleyfi EP 2 840 679
%2520WQ1000WPS-2b39c5d7-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Vatnslekavörn (WPS)
Aukið öryggi
Vatnslekavörn (WPS) verndar þvottavélina gegn vatnsskemmdum. Pungurinn á enda inntaksslöngunnar inniheldur tvo inntaksloka, sem stoppa vatnsrennsli strax við kranann. Ef þær aðstæður koma upp að annar inntakslokinn er bilaður, stoppar hinn inntakslokinn vatnsrennslið. Tvöfalda inntaksslangan er með þrýstiþolna innri slöngu og hlífðarbarka utan um hana og veitir mestu mögulegu vörn: ef galli leynist í innri slöngunni er allt vatn sem lekur fætt ofan í svelginn í gegnum hlífðarbarkann. Skynjari fylgist með vatnsrennsli inn á vélina: í tilfelli leka þá lokar þvottavélin á vatnsstreymi inn á sig.
