Fara í meginmál

Vörunúmer: WWG660WCS

Miele

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Miele tæki sem keypt eru hjá Eirvík eru með 5 ára ábyrgð og því fylgir enginn auka kostnaður. Miele þvottavélar sem keyptar eru hjá Eirvík eftir 1. október 2025 eru auk þess með 25 ára ábyrgð á mótor – skrá þarf tæki á eftirfarandi slóð til að virkja mótorábyrgð:


https://www.miele.com/en/com/iceland-eirvik-heimilistaeki-ehf-4514.htm

  • Sparaðu orku í besta orkuflokki A.
  • Nákvæm og sjálfvirk skömmtun á þvottaefni með TwinDos®.
  • Valkosturinn Forstraujun dregur úr krumpum og minnkar þörf á straujun með straubolta um allt að 50%.
  • Honeycomb tromla fyrir fullkomna meðhöndlun þvotts.
  • Fullkomin stjórn á þvottavélinni þinni með appi - Miele@home.

319.990 kr.

Ekki til á lager

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Sjálfvirk sápuskömmtun

TwinDos *

Með þessu einstaka kerfi sparar þú ekki aðeins þvottaefni heldur bætir þú líka þvottaárangur. Þvottaefnin tvö (UltraPhase 1 og UltraPhase 2) voru sérstaklega þróuð fyrir TwinDos® og er þeim vandlega blandað saman eftir þvottamagni og því hvaða þvottakerfi er valið - fyrir sérsniðna þvottameðhöndlun og mesta mögulega hreinlæti. Hefðbundin útdregin skúffa fyrir þvottaefni er einnig til staðar ef þú vilt frekar skammta þvottaefni handvirkt.

* Einkaleyfi EP 2 784 205

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Tromla með vaxkökumynstri fyrir fullkomna meðhöndlun þvotts

Honeycomb tromla

Vaxkökumynstur Miele Honeycomb tromlunnar myndar þunnt lag af vatni á milli tromlu og þvottar. Þvotturinn rennur þar af leiðandi varlega um tromluna sem fer betur með þræði textílefnanna. Holurnar í tromlunni eru einnig minni sem fer betur með þvottinn og kemur í veg fyrir lykkjuföll og þæfingu. Auk þessa lenda aðskotahlutir eins og pappírsklemmur ekki lengur í dælunni. Honeycomb tromlan frá Miele fer betur með textílefni en hefðbundið tromlumynstur.

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Áreiðanleiki tryggður

Ábyrgð á Miele mótor

25 ára ábyrgð er á mótorum þvottavéla, þurrkara og þvottavéla-þurrkara frá Miele sem seldir eru hjá Eirvík, þar innifalin tveggja ára lögbundin ábyrgð. *

* Miele tæki sem keypt eru hjá Eirvík eru með 5 ára ábyrgð og því fylgir enginn auka kostnaður. Miele þvottavélar sem keyptar eru hjá Eirvík eftir 1. október 2025 eru auk þess með 25 ára ábyrgð á mótor – skrá þarf tæki á eftirfarandi slóð til að virkja mótorábyrgð: https://www.miele.com/en/com/iceland-eirvik-heimilistaeki-ehf-4514.htm. Professional tæki og ”Litlu risar” eru undanskilin mótorábyrgð.

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Fullkomin lausn fyrir þvott á sérhæfðum textílefnum

CapDos *

Auðvelt er að þvo sérhæfð textílefni í þvottavélinni með hylkjum frá Miele sem eru einfaldlega sett í hólfið fyrir mýkingarefni. Þvottavélin skammtar innihaldinu úr hylkinu inn í þvottakerfið á réttum tíma – algerlega sjálfvirkt. Þú hefur val um nokkur sértæk þvottaefni (íþróttafatnaður, dúnn, útivistarfatnaður, ullarefni, silki, vatnsþéttiefni), 3 mýkingarefni (Aqua, Nature, Cocoon), auk þvottaefnisaflauka fyrir erfið óhreinindi.

* Einkaleyfi EP 2 365 120

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Algjörlega til fyrirmyndar

Orkunýtni

Miele þvottavélar hafa verið hannaðar sérstaklega fyrir lágmarks vatns- og orkunotkun. Þú nýtur góðs af framúrskarandi þvottaniðurstöðum sem eru bæði umhverfisvænar og fara vel með veskið.

Þvottavél íslenskt stjórnborð 7kg. 1.400rpm - Uppseld

Sjálfvirkt eftirlit með hleðslu í vél 

Aukin skilvirkni og orkunýtni

Þvottavélin er með sjálfvirku eftirliti á hleðslu. Vélin skynjar hleðsluna og notar einungis það vatnsmagn og rafmagn sem nauðsynlegt er fyrir fullkomnar þvotta- og skolunarniðurstöður. Ef lítið magn af þvotti er í vélinni þá minnkar vélin vatns- og orkunotkun sjálfkrafa.

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Allt að 50% minni straujun

Forstraujun með gufu *

Valkosturinn forstraujun minnkar þörf á venjulegri straujun með straubolta um allt að 50%. Fatnaði er velt í rakri og heitri tromlunni í lok þvottar sem minnkar krumpur umtalsvert.

* Einkaleyfi EP 2 088 231

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Snjöll stjórnun gegnum netið

Miele@home *

Njóttu nútíma þæginda með því að tengja þvottavélina við Miele appið og stjóraðu vélinni hvar sem er á heimilinu. Fáðu tilkynningar þegar þvottakerfi er lokið, búðu til sérhæfð þvottakerfi og margt fleira.

* Viðbótar stafræn lausn frá Miele & Cie. KG. Virkni getur verið mismunandi eftir módeli og landi. Þú þarft að samþykkja skilmála og persónuverndarstefnu Miele appsins fyrir stafrænar vörur og þjónustu. Miele áskilur sér rétt til að breyta eða hætta stafrænni lausn hvenær sem er.

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Sveigjanleg hleðsla stórra og smárra textílefna 

AddLoad 

Gallabuxur, blússa eða bara sokkur: Mögulegt er að bæta við þvotti sem hefur gleymst að setja í vélina eftir að þvottakerfi er farið af stað. Þetta er hægt næstum allan þvottatímann eða þangað til stuttu áður en þvottakerfi lýkur. Notkun er auðveld: Þegar ljós logar á “Start / Add laundry” snertitakkanum þarf einungis að snerta hann, hurðin aflæsist við það og þá er mögulegt að bæta þvottinum við. Ef þvottavélin er nettengd er hægt að sjá í appinu hvenær mögulegt er að bæta við þvotti.

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Hagkvæmur, öflugur og viðhaldsfrír

ProfiEco mótor *

ProfiEco mótorinn frá Miele er öflugur inverter-mótor sem notar orku á skilvirkan og hljóðlátan hátt. Mótorinn er næstum viðhaldsfrír, þökk sé rafeindastýringu og því að hann er kolalaus. Þessi nýstárlega hönnun tryggir áralanga skilvirka, áhyggjulausa og þægilega þvottameðhöndlun.

* Einkaleyfi EP 2 840 679

Þvottavél íslenskt stjórnborð 7kg. 1.400rpm - Uppseld

Vatnsvarnarkerfi (WCS)

Öryggi þökk sé viðbótar skynjara

Vatnsvarnarkerfið (WCS) verndar þvottavélina gegn vatnsskemmdum. Skynjari fylgist með vatnsrennsli inn á vélina. Vélin hættir sjálfkrafa að taka inn á sig vatn ef venjuleg vatnshæð næst ekki. Ef vatnsleki verður í vélinni safnast hann í botni sökkulsins, inntakslokinn í vélinni lokast og vatninu á botni sökkulsins er dælt í burtu. Flotrofi í affallsbakka skynjar einnig ef leki á sér stað.