-94593122-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Algerlega til fyrirmyndar
Enn betri orkunýtni
Miele þvottavélar hafa verið hannaðar sérstaklega fyrir lágmarks vatns- og orkunotkun. Þar af leiðandi eru sum módel jafnvel 20% orkunýtnari en þröskuldsgildið (52) fyrir hæsta orkunýtniflokk A. Þú nýtur góðs af framúrskarandi þvottaniðurstöðum sem eru bæði umhverfisvænar og fara vel með veskið.
-67675ee1-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Frábær þvottur á aðeins 49 mínútum
QuickPowerWash
Hvítur þvottur þveginn fullkomlega á 49 mínútum – ótrúlegt en satt. Þvottavélin nær besta mögulega þvotti með QuickPowerWash á ótrúlega stuttum tíma. *
* Þetta á við um allar Miele þvottavélar sem gera þér kleift framkvæma ferlið og vélatengdu breyturnar sem kynntar eru í samantekt prófunarskýrslunnar WL 1110/18.
-834197b0-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Hraðvirkur og þægilegur kostur í stað þess að strauja
SteamCare gufukerfi
Þú getur frískað upp á flíkurnar þínar með sérstökum gufukerfum – án þess að sóa vatni. Gufukerfið “Fríska upp á” lágmarkar óæskilega lykt (t.d., sígarettureyk), á meðan valkosturinn “Forstraujun með gufu” minnkar krumpur í fatnaði, sem sparar þér allt að 50% tíma við straujun. Fljótleg og skilvirk leið til að fríska upp á og slétta uppáhaldsflíkurnar þínar.

Tromla með vaxkökumynstri fyrir fullkomna meðhöndlun þvotts
Honeycomb tromla
Vaxkökumynstur Miele Honeycomb tromlunnar myndar þunnt lag af vatni á milli tromlu og þvottar. Þvotturinn rennur þar af leiðandi varlega um tromluna sem fer betur með þræði textílefnanna. Holurnar í tromlunni eru einnig minni sem fer betur með þvottinn og kemur í veg fyrir lykkjuföll og þæfingu. Auk þessa lenda aðskotahlutir eins og pappírsklemmur ekki lengur í dælunni. Honeycomb tromlan frá Miele fer betur með textílefni en hefðbundið tromlumynstur.
-ecbb3b7c-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Áreiðanleiki tryggður
Ábyrgð á Miele mótor
25 ára ábyrgð er á mótorum þvottavéla, þurrkara og þvottavéla-þurrkara frá Miele sem seldir eru hjá Eirvík, þar innifalin tveggja ára lögbundin ábyrgð. *
* Miele tæki sem keypt eru hjá Eirvík eru með 5 ára ábyrgð og því fylgir enginn auka kostnaður. Miele þvottavélar sem keyptar eru hjá Eirvík eftir 1. október 2025 eru auk þess með 25 ára ábyrgð á mótor – skrá þarf tæki á eftirfarandi slóð til að virkja mótorábyrgð: https://www.miele.com/en/com/iceland-eirvik-heimilistaeki-ehf-4514.htm. Professional tæki og ”Litlu risar” eru undanskilin mótorábyrgð.

Fullkomin lausn fyrir þvott á sérhæfðum textílefnum
CapDos *
Auðvelt er að þvo sérhæfð textílefni í þvottavélinni með hylkjum frá Miele sem eru einfaldlega sett í hólfið fyrir mýkingarefni. Þvottavélin skammtar innihaldinu úr hylkinu inn í þvottakerfið á réttum tíma – algerlega sjálfvirkt. Þú hefur val um nokkur sértæk þvottaefni (íþróttafatnaður, dúnn, útivistarfatnaður, ullarefni, silki, vatnsþéttiefni), 3 mýkingarefni (Aqua, Nature, Cocoon), auk þvottaefnisaflauka fyrir erfið óhreinindi.
* Einkaleyfi EP 2 365 120

Byltingarkennd hagkvæmni í hverjum þvotti
PowerWash
Besta mögulega þvottaniðurstaða næst með PowerWash. Hefðbundin þvottatækni notar meira vatn en þvotturinn getur drukkið í sig. Allt vatnsmagnið þarf að hita upp. Þvottatæknin PowerWash notar aðeins smávegis meira vatn en þvotturinn getur drukkið í sig. Vatnið sem þvotturinn drekkur ekki í sig, hitar upp tromluna og þvottinn. Því er síðan úðað yfir þvottinn aftur og aftur. Þetta minnkar orkunotkun þvottavélarinnar og hún notar auk þess 10% minna af þvottaefni.

Sjálfvirkt eftirlit með hleðslu í vél
Aukin skilvirkni og orkunýtni
Þvottavélin er með sjálfvirku eftirliti á hleðslu. Vélin skynjar hleðsluna og notar einungis það vatnsmagn og rafmagn sem nauðsynlegt er fyrir fullkomnar þvotta- og skolunarniðurstöður. Ef lítið magn af þvotti er í vélinni þá minnkar vélin vatns- og orkunotkun sjálfkrafa.
-fc6ec33f-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Allt að 50% minni straujun
Forstraujun með gufu *
Valkosturinn forstraujun minnkar þörf á venjulegri straujun með straubolta um allt að 50%. Fatnaði er velt í rakri og heitri tromlunni í lok þvottar sem minnkar krumpur umtalsvert.
* Einkaleyfi EP 2 088 231
-26512d53-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Snjöll stjórnun gegnum netið
Miele@home *
Njóttu nútíma þæginda með því að tengja þvottavélina við Miele appið og stjóraðu vélinni hvar sem er á heimilinu. Fáðu tilkynningar þegar þvottakerfi er lokið, búðu til sérhæfð þvottakerfi og margt fleira.
* Viðbótar stafræn lausn frá Miele & Cie. KG. Virkni getur verið mismunandi eftir módeli og landi. Þú þarft að samþykkja skilmála og persónuverndarstefnu Miele appsins fyrir stafrænar vörur og þjónustu. Miele áskilur sér rétt til að breyta eða hætta stafrænni lausn hvenær sem er.
-6cbb262c-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Sveigjanleg hleðsla stórra og smárra textílefna
AddLoad
Gallabuxur, blússa eða bara sokkur: Mögulegt er að bæta við þvotti sem hefur gleymst að setja í vélina eftir að þvottakerfi er farið af stað. Þetta er hægt næstum allan þvottatímann eða þangað til stuttu áður en þvottakerfi lýkur. Notkun er auðveld: Þegar ljós logar á “Start / Add laundry” snertitakkanum þarf einungis að snerta hann, hurðin aflæsist við það og þá er mögulegt að bæta þvottinum við. Ef þvottavélin er nettengd er hægt að sjá í appinu hvenær mögulegt er að bæta við þvotti.

Hagkvæmur, öflugur og viðhaldsfrír
ProfiEco mótor *
ProfiEco mótorinn frá Miele er öflugur inverter-mótor sem notar orku á skilvirkan og hljóðlátan hátt. Mótorinn er næstum viðhaldsfrír, þökk sé rafeindastýringu og því að hann er kolalaus. Þessi nýstárlega hönnun tryggir áralanga skilvirka, áhyggjulausa og þægilega þvottameðhöndlun.
* Einkaleyfi EP 2 840 679
-min-e032f6bf-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Vatnsvarnarkerfi (WCS)
Öryggi þökk sé viðbótar skynjara
Vatnsvarnarkerfið (WCS) verndar þvottavélina gegn vatnsskemmdum. Skynjari fylgist með vatnsrennsli inn á vélina. Vélin hættir sjálfkrafa að taka inn á sig vatn ef venjuleg vatnshæð næst ekki. Ef vatnsleki verður í vélinni safnast hann í botni sökkulsins, inntakslokinn í vélinni lokast og vatninu á botni sökkulsins er dælt í burtu. Flotrofi í affallsbakka skynjar einnig ef leki á sér stað.
