Fara í meginmál

Vörunúmer: TQ1000WP

Miele

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Miele tæki sem keypt eru hjá Eirvík eru með 5 ára ábyrgð og því fylgir enginn auka kostnaður. Miele þurrkarar sem keyptir eru hjá Eirvík eftir 1. október 2025 eru  auk þess með 25 ára ábyrgð á mótor – skrá þarf tæki á eftirfarandi slóð til að virkja mótorábyrgð:


https://www.miele.com/en/com/iceland-eirvik-heimilistaeki-ehf-4514.htm

  • QuickPowerDry gerir þér kleift að þurrka þvott á aðeins 49 mínútum.
  • WoolDry býður upp á varlega þurrkun á ullarefnum í vélinni.
  • SteamCare gufukerfi fríska upp á fatnaðinn þinn og minnka þörf straujun um allt að 50.
  • Stóri M Touch Pro lita- og snertiskjárinn gerir notkun einstaklega þægilega.
  • Þurrkaðu allan þvott sem má þvo á 40°C með DryCare 40.
  • MotionReact kveikir sjálfkrafa á vélinni þegar þú nálgast sem gerir hana tilbúna fyrir notkun.
  • ComfortOpen gerir þér kleift að opna hurðina á auðveldan hátt með því að snerta hana varlega.

699.990 kr.

Ekki til á lager

Þvottavél með TwinDos, PowerWash & CapDos (9kg)

Þvottaumhirða einfölduð

Samansafn þæginda

Njóttu nýstárlegra eiginleika sem gera daglegt líf auðveldara. MotionReact kveikir á þurrkaranum og birtir stóran snertiskjá þegar þú nálgast. Eru hendurnar uppteknar? Það er ekkert mál þökk sé ComfortOpen. Dyrnar opnast auðveldlega um leið og þú snertir handfangið varlega. AmbientLight veitir auk þess sjónræna aðstoð með ljósum og leiðbeinir varðandi notkun vélarinnar. Þvotturinn hefur aldrei verið jafn þægilegur.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Hraðvirka þurrkunarkerfið fyrir þurran þvott

QuickPowerDry

QuickPowerDry þurrkunarkerfið gerir þér kleift að spara dýrmætan tíma og þurrka 4 kg af þvotti á aðeins 49 mínútum – án þess að það komi niður á þvottameðhöndlun. PowerDry kerfið okkar nær réttu hitastigi í tromlu 50% hraðar og styttir tímalengd þurrkunar verulega, hvort sem þú ert að þurrka flíkur úr bómull eða straufríar flíkur. Njóttu aukinna þæginda í þínu daglega lífi án þess að þurfa að bíða lengi. *

* Lengd þvottakerfis getur verið breytileg eftir þvottamagni. Tímamæling er fyrir 4 kg af straufríum þvotti með 30% afgangsraka.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Dúnmjúk og heldur formi sínu – ullin þín í bestu höndum

WoolDry

Miele þurrkarinn er með WoolDry sem fer einstaklega mjúkum höndum um ullarflíkurnar þínar og þurrkar þær á augabragði. Ullin helst mjúk, skeppur ekki saman og þæfist ekki. Langur þurrkunartími er loksins liðin tíð. Njóttu þeirrar frábæru tilfinningar að vita að ullin þín er meðhöndluð varlega og á öruggan hátt og að ullarfötin þín haldast áfram dúnmjúk. *

* Fyrir sérstaklega viðkvæma ull eins og kashmír og angóru mælum við með loftþurrkun eða notkun Miele þurrkgrindar.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Viðkvæmur þvottur þurrkaður varlega

Valkostur DryCare 40

Setjið fötin beint í þurrkarann strax að loknum 40°C þvotti í þvottavél, án þess að þurfa að flokka þau fyrst. Lágur hiti lofts verndar viðkvæmu flíkurnar þegar DryCare 40 valkostinum er bætt við hin ýmsu þvottakerfi. Valkosturinn er fljótleg og þægileg leið til að spara tíma við þvott og þurrkun textílefna sem þola þvott á 40°C, og tryggir hann varfærna þvottameðhöndlun. *

* Þessi valkostur hentar ekki fyrir ull og silki.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Minni þörf fyrir straujun og hraðvirkari árangur

SteamCare gufukerfi

SteamCare gufukerfi frískar upp á og sléttir flíkurnar þínar áreynslulaust: Mögulegt er að velja forstraujun með gufu aukalega og bæta við hin ýmsu þurrkunarkerfi eða velja PowerFresh þurrkunarkerfi sem er stakt gufukerfi. Fyrir bestu niðurstöður er hægt að bæta við DryFresh® ilmefni í hylki, sem Miele er með einkaleyfi á, en það hlutleysir óæskilegri lykt á áreiðanlegan hátt. Lykt frá sígarettum minnkar til dæmis 90% betur heldur en ef flíkurnar eru viðraðar í fersku lofti. *

* Miðað við notkun PowerFresh gufukerfis og notkun DryFresh® ilmefni í hylki. Prófuð lykt: sígarettureykur og matarlykt. Vísindalega staðfest af Háskólanum í Albstadt-Sigmaringen.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Hraðvirk og áhrifarík þurrkun

EcoDry tækni

Þurrkarar með EcoDry tækni þurrka hámarks þvottamagn hratt og með lágmarks orkunotkun. Þar að auki kemur einkaleyfisvarið filterakerfi (einkaleyfi EP 2 455 537) í veg fyrir að ló stífli varmaskiptirinn. Það er með þessu áhrifaríka samspili sem Miele þurrkarar viðhalda afköstum sínum allan þjónustutímann og tryggja ótrúlega stuttan þurrkunartíma.

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Áreiðanleiki tryggður

Ábyrgð á Miele mótor

25 ára ábyrgð er á mótorum þvottavéla, þurrkara og þvottavéla-þurrkara frá Miele sem seldir eru hjá Eirvík, þar innifalin tveggja ára lögbundin ábyrgð. *

* Miele tæki sem keypt eru hjá Eirvík eru með 5 ára ábyrgð og því fylgir enginn auka kostnaður. Miele þvottavélar sem keyptar eru hjá Eirvík eftir 1. október 2025 eru auk þess með 25 ára ábyrgð á mótor – skrá þarf tæki á eftirfarandi slóð til að virkja mótorábyrgð: https://www.miele.com/en/com/iceland-eirvik-heimilistaeki-ehf-4514.htm. Professional tæki og ”Litlu risar” eru undanskilin mótorábyrgð.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Snjallt alhliða notendaviðmót

M Touch Pro snertiskjár

Upplifðu nýja M Touch Pro snertiskjáinn og fjölhæfni hans. Stóri snertiskjárinn gerir þér kleift að sjá alla valmöguleika sem í boði eru og sækja viðbótarupplýsingar hratt og örugglega. Vistaðu uppáhaldskerfin þín til að nálgast þau á enn skjótari hátt. Ef þú hefur einhverjar spurningar er skjárinn bæði með myndrænar leiðbeiningar og hjálplegar ráðleggingar til aðstoðar.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Hurðaropnun auðvelduð

ComfortOpen sjálfvirk hurðaropnun

Nú er enn auðveldara að setja í Miele þurrkarann og taka úr honum. Ertu með þvottakörfuna í höndunum? Þökk sé snjöllum skynjara opnast dyrnar um leið og þú snertir handfangið varlega. Dyrnar opnast einnig sjálfkrafa þegar krumpuvörn er lokið, svo að þú þarf ekki að kveikja aftur á vélinni. ComfortOpen tryggir áreynslulausa hleðslu og mjög þægilega þvottaupplifun.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Gefðu þvottinum sérstæðan ilm

FragranceDos² *

FragranceDos ilmefnaskömmtun gerir þér kleift að gæða þvottinn þinn dásamlegum ilm alveg eins og þér líkar best. Mögulegt er að setja tvo hylki með ilmefnum í þurrkarann svo að þú getur auðveldlega skipt á milli uppáhaldsilmanna þinna. Þú getur valið úr úrvali mismunandi, tímalausra ilma og stillt hversu miklu magni er skammtað yfir þvottinn í hvert skipti.

* Einkaleyfi EP 2 431 516

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Sjálfvirk, nákvæm þurrkun

PerfectDry

Steinefni hafa áhrif á mælingu afgangsraka í þvotti, sem aftur hefur bein áhrif á þurrkunarniðurstöður. PerfectDry mælir núverandi magn steinefna í vatninu og aðlagar þurrkunarferlið í samræmi við það svo að þvotturinn þurrkast fullkomlega – niðurstaðan er hvorki of rakur né of þurr þvottur.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Glæsileiki mætir hagnýtni

AmbientLight

Njóttu glæsileika og þæginda við hverja notkun. AmbientLight skapar tilkomumikla stemningu og er algjör hápunktur þegar kemur að hönnun vélarinnar. ComfortOpen er undirstrikað með upplýstu hurðarhandfangi sem gerir opnun dyrar sérstaklega þægilega. Ljósið í TwinDos® einingunni sýnir þér hvenær þarf að skipta um þvottaefnið í brúsunum. Í þurrkaranum lýsir AmbientLight upp hylkin með ilmefnunum, þannig að þú veist alltaf hversu mikill ilmur er eftir.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Ávallt reiðubúin

MotionReact hreyfiskynjari

Tækið skynjar þegar þú nálgast, þökk sé hreyfiskynjara, og tekur á móti þér með að kveikja á þægilegri lýsingu í tromlunni og virkja stjórnborðið sjálft. Þannig getur þú strax hafist handa og nýtur alveg nýrrar upplifunar þegar kemur að þægindum við hinn daglega þvott.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Snjöll stjórnun gegnum netið

Miele@home *

Njóttu nútíma þæginda með því að tengja þurrkarann við Miele appið og stjóraðu tækinu hvar sem er á heimilinu. Fáðu tilkynningar þegar þurrkunarkerfi er lokið, búðu til sérhæfð þurrkunarkerfi og margt fleira.

* Viðbótar stafræn lausn frá Miele & Cie. KG. Virkni getur verið mismunandi eftir módeli og landi. Þú þarft að samþykkja skilmála og persónuverndarstefnu Miele appsins fyrir stafrænar vörur og þjónustu. Miele áskilur sér rétt til að breyta eða hætta stafrænni lausn hvenær sem er.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Bætið við stórum eða smáum flíkum eftir að kerfi hefur verið sett í gang

AddLoad

Þú getur auðveldlega bætt við þvotti sem hefur gleymst með AddLoad, hvort sem það eru gallabuxur, blússa eða stakur sokkur. Hagnýtur eiginleiki sem þýðir að óþarfi er að þurrka þær flíkur sem gleymast einar og sér.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Treystu hæstu hreinlætisstöðlum

HygieneDry þurrkunarstig

HygieneDry þurrkunarstig fjarlægir meira en 99,99% af bakteríum og myglusveppum sem og meira en 99,9% af vírusum úr þvottinum, þökk sé því að að heitu hitastigi er haldið í sérstaklega langan tíma. Mítlar og veggjalýs drepast líka. HygieneDry hentar fyrir flíkur sem eru með tveimur punktum á þvottamiða. Prófunaraðferðir uppfylla ströngustu hreinlætisstaðla í þvottaiðnaðinum. *

* Prófað af háskólanum í Albstadt-Sigmaringen og stofnunin veitti silfurmerkið fyrir Integrative Hygiene and Virology (InFluenc_H). Prófað í þvottakerfi Bómull á þurrkunarstigi HygieneDry. Prófaðar bakteríur eru meðal annars E. coli og hjúpaðar veirur (t.d. kórónuveira) og óhjúpaðar veirur (t.d. nóróveirur og adenóveirur), að undanskildri lifrarbólgu B. Lýsingu á prófunarviðmiðunum er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.miele.de/media/ex/com/T2_HygieneDry_de_en.pdf

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Hrein og heilnæm þurrkun á sem skemmstum tíma

QuickHygiene þurrkunarkerfi

Einstaka QuickHygiene þurrkunarkerfið frá Miele styttir þurrktíma um meira en klukkustund. Kerfið fjarlægir meira en 99,99% af bakteríum og myglusveppum sem og meira en 99,9% af vírusum úr þvottinum. Mítlar og veggjalýs drepast líka áreiðanlega. QuickHygiene hentar jafnvel fyrir þurran þvott sem er merktur með tveimur punktum á þvottamiða. *

* Stytting þurrkunartíma byggist á samanburði við þurrkunarkerfi Bómull með HygieneDry þurrkunarstigi. Hreinlæti prófað af háskólanum í Albstadt-Sigmaringen og stofnunin veitti silfurmerkið fyrir Integrative Hygiene and Virology (InFluenc_H). Prófaðar bakteríur eru meðal annars E. coli og hjúpaðar veirur (t.d. kórónuveira) og óhjúpaðar veirur (t.d. nóróveirur og adenóveirur), að undanskildri lifrarbólgu B. Lýsingu á prófunarviðmiðunum er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.miele.de/media/ex/com/T2_QuickHygiene_de_en.pdf

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Sérstaklega hljóðlát þurrkun

SilenceDrum *

Þurrkun í þurrkara hefur aldrei verið svona hljóðlát! Sérstök hönnun nýju SilentDrum tromlunnar gerir hana mun hljóðlátari en áður hefur þekkst. Einangrandi ræmur eru hluti af tromluhönnun og minnka þær skröltandi hljóð verulega mikið og alla truflun sem af hljóðunum hlýst. Þar af leiðandi getur þú haft þurrkarann í gangi, jafnvel nálægt vistarverum þínum, án þess að af því hljótist verulegt ónæði.

* Einkaleyfi EP 4 163 433

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Samstilltu þurrkara við þvottavél

Wash2Dry *

Þvottavélin þín notar Wash2Dry til að senda gögn yfir í þurrkarann að loknu þvottakerfi. Þurrkarinn velur sjálfkrafa rétta þurrkun eftir upplýsingunum. Eina sem þú þarft að gera er að taka þvottinn úr þvottavélinni, flytja hann yfir í þurrkarann, kveikja á þurrkaranum og velja Wash2Dry. Þú getur hlakkað til fatnaðar sem hefur verið þurrkaður á fullkominn hátt.

*Til þess að nota Wash2Dry valkost á þurrkaranum þarf bæði þurrkarinn og þvottavélin að vera tengd við WiFi (Miele@home).

Þurrkari með PerfectDry & FragranceDos (8kg)

Þægilegt frárennsli vatns

Innbyggt frárennsli fyrir þétt vatn

Allir Miele þurrkarar með varmadælu eru með innbyggðri affallsslöngu fyrir þétt vatn. Þú getur þar af leiðandi dælt þétta vatninu í vask eða affall og sparað þér fyrirhöfnina við að tæma tankinn fyrir affallsvatnið.

Þurrkari með PerfectDry & FragranceDos (8kg)

Varfærin meðhöndlun textílefna

Varmadælu tækni

Þurrkarar með varmadælu eru þekktir fyrir að vera orkunýtnir. Lágt hitastig verndar bæði textílþræðina í þvottinum þínum, sem og minnkar kostnað við þurrkun. Þetta þýðir að þú getur þurrkað viðkvæmar flíkur án þess að hafa áhyggjur af skemmdum og óþarfa sliti.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Meiri ferskleiki – minni óæskileg lykt

DryFresh®

Viltu fríska upp á uppáhaldsflíkina þína? DryFresh þurrkunarkerfið fjarlægir óæskilega lykt úr flíkinni við þurrkun – án þvottar. Þetta er þökk sé lengra ferli loftunar sem fer varlega með viðkvæm textílefni. Notaðu DryFresh® ilmefni í hylki fyrir bestu mögulegu niðurstöður. Einstaka ilmefnið frá Miele, hlutleysir lykt og skilur eftir sig þægilegan ilm í fatnaðinum.

Þurrkari með PerfectDry & FragranceDos (8kg)

Stöðugt lág orkunotkun

Viðhaldsfrír varmaskiptir

Í Miele þurrkurum með varmadælu er varmaskiptirinn vel varinn með áhrifaríkri filtrun og er þar af leiðandi viðhaldsfrír. Þetta tryggir stöðugt lága orkunotkun út allan þjónustutíma þurrkarans. Ekki bara fyrstu árin sem þú átt hann.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Upplýsingar um neyslu tækisins ávallt til staðar

EcoFeedback

Miele þurrkarar með EcoFeedback fylgjast vandlega með orkunotkun, sem gerir þér kleift að aðlaga og besta þurrkun eftir þörfum. Við lok þurrkunarkerfis færð þú ítarlegar upplýsingar varðandi rafmagnsnotkun, þar sem upplýsingar varðandi seinasta þurrkunarkerfi eru sérstaklega útlistaðar.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Besta vörn fyrir heimilið þitt

Mesta skilvirkni þéttingar

Allir þurrkarar frá Miele ná bestu mögulegu gildum varðandi lekavörn og þar af leiðandi besta mögulega þéttingarafkastaflokki A. Þetta þýðir að aðeins lágmarks rakt og heitt loft sleppur út úr tækinu. Módel í þéttingarafkastaflokki B losa allt að 320 ml meiri raka út í umhverfið – tvöfalt meira en módel í flokki A. Gæði lekavarnar þurrkarans tryggir vernd fyrir herbergið og innréttinguna með því að koma í veg fyrir rakamyndun á veggjum og myglu.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Sjálfbærni mætir tímasparnaði

EcoSpeed

EcoSpeed gerir þér kleift að þurrka þvottinn á sérstaklega hraðvirkan hátt, en á sama tíma með bestu mögulegu orkunýtni. Fullkomin blanda af hagkvæmni og styttri tímalengd þurrkunarkerfa, bæði gott fyrir umhverfið og veskið. Þökk sé viðhaldsfrírri varmadælu tækni og rafeindastýrðum mótor sem aðlagar hraða eftir þyngd, getur þú notað EcoSpeed til að stytta þurrkunartíma um allt að 20 mínútur. *

* Tímasparnaður reiknaður miðað við Miele þurrkara án EcoSpeed með sömu þvottahleðslu og sambærilegri orkunýtni. Prófað á þurrkunarkerfi Bómull með fullri hleðslu.

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Orkunýtin þurrkun

Orkunýtni

Miele þurrkarar eru hannaðir með lágmarks orkunotkun að leiðarljósi. Þú nýtur góðs af framúrskarandi þurrkun sem er bæði umhverfisvæn og fer vel með veskið.

Þvottavél með TwinDos & CapDos (9kg)

Hagkvæmur, öflugur og viðhaldsfrír

ProfiEco mótor *

ProfiEco mótorinn frá Miele er öflugur inverter-mótor sem notar orku á skilvirkan og hljóðlátan hátt. Mótorinn er næstum viðhaldsfrír, þökk sé rafeindastýringu og því að hann er kolalaus. Þessi nýstárlega hönnun tryggir áralanga skilvirka, áhyggjulausa og þægilega þvottameðhöndlun.

* Einkaleyfi EP 2 840 679