Fara í meginmál

Vörunúmer: CS7612FL

Miele

Spanhelluborð - SmartLine raðeining

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

SmartLine raðeining frá Miele með 2 spanhellum. Raðeiningin er um það bil 40 cm á breidd og með extra aflauka. Hvor hellan fyrir sig er með sitt eigið talnaborð sem kviknar sjálfvirkt á þegar pottur er settur á helluna og einungis svæðið undir pottinum hitnar. Mögulegt er að tengja fremri og aftari helluna saman í stórt PowerFlex eldunarsvæði, raðeiningin getur haldið mat heitum, er með minni, mögulegt er að pása eldun og láta hellu slökkva sjálfkrafa á sér að ákveðnum tíma liðnum. SmartLine raðeiningum er hægt að raða upp á mismunandi hátt eins og hentar vegna þess að þær samþættast fullkomlega. Raðeininguna er bæði hægt að fella niður í borðplötu og hafa yfirfellda.

399.990 kr.

Sérpöntun

Spanhelluborð - SmartLine raðeining

Skynjar potta og stærð þeirra

Besta mögulega orkunýting

Ef pottur er staðsettur á eldunarsvæði kviknar sjálfkrafa á tilheyrandi talnarunu þegar kveikt er á helluborðinu. Óþarfi er að kveikja handvikt á eldunarsvæðinu. Þetta tryggir bestu mögulegu orkunýtingu.

Spanhelluborð - SmartLine raðeining

SmartSelect

Auðveld notkun með SmartSelect

Aflstillingar og tíma er hægt að stilla með ótrúlega auðveldum og hröðum hætti með SmartSelect. Hvert eldunarsvæði hefur sitt eigið talnaborð með gulu ljósi sem er auðvelt álestrar frá hvaða sjónarhorni sem er. Tímastillingar eru auðveldari með SmartSelect, þar sem "Tímastilli" og "Hella slekkur á sér sjálfvirkt" er hægt að stilla inn sitt í hvoru lagi.

Spanhelluborð - SmartLine raðeining

PowerFlex

Tilvalið fyrir stóra potta

PowerFlex eldunarsvæðin eru mjög fjölbreytt og sveigjanleg. Þú getur notað allt svæðið án vandræða, hvort sem um ræðir einstakann pott eða sérstaklega stóra ofnpönnu. Booster aflauki allt að 7.3 kW veitir óviðjafnanlegan hraða við upphitun. PowerFlex eldunarsvæðin eru að sjálfsögðu líka með extra-aflauka sem næst með Miele TwinBooster tækni.

Spanhelluborð - SmartLine raðeining

TwinBooster

Aflauki fyrir hraða upphitun 

Samansafnað afl fyrir hraðari upphitun! Með TwinBooster extra aflauka frá Miele, getur þú sameinað afl tveggja eldunarsvæða og notað á einu eldunarsvæði. Þú getur einnig dreift aflinu mismikið á sitthvora helluna fyrir enn meiri sveigjanleika við eldun.

Spanhelluborð - SmartLine raðeining

Öryggisvirkni 

Fyrir aukið öryggi og fullvissu 

Besta vörnin í öllum aðstæðum: öryggislæsing helluborðsins veitir áhrifaríka vörn gegn því að óvart sé breytt um stillingar á meðan helluborðið er í notkun. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, en það minnir þig á að snerta ekki eldunarsvæði sem eru ennþá heit viðkomu.

Tepan Yaki spanhelluborð - SmartLine raðeining

Keramikgler 

Auðvelt í þrifum

Keramikgler er mjög auðvelt í þrifum. Skvettur og önnur óhreinindi eru fjarlægð á einfaldan og þægilegan hátt, þökk sé sléttu yfirborðinu. Þrif spanhelluborða eru sérstaklega auðveld þar sem yfirborð þeirra helst tiltölulega kalt og matur brennur þar af leiðandi mjög sjaldan við þau.