
Con@ctivity
Snjöll stjórnun
Með Con@ctivity getur þú einbeitt þér algerlega að eldamennskunni. Það er vegna þess að viftan og helluborðið eiga samskiptum við hvort annað. Helluborðið sendir upplýsingar um stillingar í rafeindabúnað viftunnar, sem aðlagar sogkraft sjálfkrafa samkvæmt þeim. Ekki er lengur nauðsynlegt að muna að slökkva á viftunni að eldamennsku lokinni. Con@ctivity er staðalbúnaður í öllum Miele TwoInOne helluborðum.

PowerFlex XL
Tilvalið fyrir stóra potta
Sveigjanlegt og þægilegt: PowerFlex XL eldunarsvæði bjóða upp á enn meira rými fyrir eldamennsku. Auðvelt er að setja tvo stóra potta á svæðið, einn fyrir aftan hinn eða mynda stórt eldunarsvæði með því að tengja hellurnar tvær saman. Með því að tengja hellurnar saman getur þú til dæmis komið sérstaklega stórri ofnpönnu fullkomlega fyrir. PowerFlex XL eldunarsvæðin eru með extra-aflauka sem næst með Miele TwinBooster tækni. Aflaukinn er allt að 7.3 kW og veitir óviðjafnanlegan hraða við upphitun.

TwinBooster
Aflauki fyrir hraða upphitun
Samansafnað afl fyrir hraðari upphitun! Með TwinBooster extra aflauka frá Miele, getur þú sameinað afl tveggja eldunarsvæða og notað á einu eldunarsvæði. Þú getur einnig dreift aflinu mismikið á sitthvora helluna fyrir enn meiri sveigjanleika við eldun.

ComfortSelect White
Hvítur töluskjár fyrir auðvelda og fágaða stjórnun
Öllum eldunarsvæðum og viftu er stjórnað með vönduðum, miðlægum ComfortSelect White snertiskjá. Það hefur aldrei verið þægilegra að stjórna helluborðinu. Hvítt ljósið er sérstaklega fágað, en þegar slökkt er á helluborðinu er töluskjárinn ekki sýnilegur – allt fyrir minimalískt útlit.

Skynjar potta og stærð þeirra
Besta mögulega orkunýting
Ef pottur er staðsettur á eldunarsvæði kviknar sjálfkrafa á tilheyrandi talnarunu þegar kveikt er á helluborðinu. Óþarfi er að kveikja handvikt á eldunarsvæðinu.

CleanCover
Auðveld og örugg þrif á innrarými
Miele CleanCover er staðsett bak við fitufilter: engin hætta er á að komast í snertingu við beittar brúnir málma, raflagnir eða mótor. CleanCover yfirborðið bak við filterinn er viðloðunarfrítt, einstaklega slétt og fellt og þar af leiðandi mjög auðvelt í þrifum. Ótrúlega þægilegt og öruggt.

Eiginleikar sem auka þægindi notanda
Aukin þægindi
Aukin þægindi við eldun: Mögulegt er að skreppa örstutt frá eldamennskunni með því að ýta á "Pásu" stillingu, en þá er afl allra eldunarsvæða minnkað niður í aflstillingu 1. Stillingin "Halda heitu" heldur nýelduðum mat við kjörhitastig til framreiðslu. Einnig er mögulegt að stilla í hversu langan tíma eldunarsvæði á að vera í gangi og láta helluna slökkva á sér að þeim tíma liðnum. Stillingin "Minni"tryggir að ef óvart er slökkt á helluborðinu eru stillingarnar þínar vistaðar í 10 sekúndur.

Niðurfelld vifta
Gufusog upp á sitt besta
Fáguð hönnun: Niðurfellda viftan í spanhelluborðinu er bæði varfærin og fáguð lausn, sem stenst hæstu kröfur þegar kemur að fagurfræði og virkni. Hönnun sem gerir þér kleift að færa potta og pönnur til á helluborðinu með auðveldum hætti – án nokkurra hindranna.

ECO mótor
Hjarta hvers háfs
Mótorinn er hjarta og sál hvers háfs. Sumir Miele háfar er með ECO mótor. Hann notar jafnspennu og er orkusparnaður allt að 50% miðað við venjulegan mótor. ECO mótorar eru mjög hljóðlátir en samt eins öflugir og mótorar í öðrum Miele háfum og viftum.

Öryggisvirkni
Fyrir aukið öryggi og fullvissu
Besta vörnin í öllum aðstæðum: öryggislæsing helluborðsins veitir áhrifaríka vörn gegn því að óvart sé breytt um stillingar á meðan helluborðið er í notkun. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, en það minnir þig á að snerta ekki eldunarsvæði sem eru ennþá heit viðkomu.
