
Con@ctivity
Snjöll stjórnun
Með Con@ctivity getur þú einbeitt þér algerlega að eldamennskunni. Það er vegna þess að viftan og helluborðið eiga samskiptum við hvort annað. Helluborðið sendir upplýsingar um stillingar í rafeindabúnað viftunnar, sem aðlagar sogkraft sjálfkrafa samkvæmt þeim. Ekki er lengur nauðsynlegt að muna að slökkva á viftunni að eldamennsku lokinni. Con@ctivity er staðalbúnaður í öllum Miele TwoInOne helluborðum.

ComfortSelect Plus
Stjórnborð fyrir miðju
Nett og þægilegt: mögulegt er að stjórna öllum eldunarsvæðum og viftu á skýran hátt með ComfortSelect Plus. Eitt sameiginlegt talnaborð fyrir allar hellur á miðju borði þar sem aflstilling er valin.

Fitufilter úr ryðfríu stáli
Fagurfræði og góð hönnun
Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli, þarf af eru ystu lög og rammi úr hágæða ryðfríu stáli. Þegar fitufilterinn er þrifinn í uppþvottavél verður engin sjáanleg litabreyting á honum og heldur filterinn hágæða útliti sínu í langan tíma.

FlexZone
Besta nýting á rými
Sveigjanlegt og þægilegt: FlexZone eldunarsvæði bjóða upp á enn meira rými fyrir eldamennsku. Auðvelt er að setja tvo stóra potta á svæðið, einn fyrir aftan hinn eða mynda stórt eldunarsvæði með því að tengja hellurnar tvær saman. Með því að tengja hellurnar saman getur þú til dæmis komið Miele ofnpönnu, Miele grillpönnu eða Miele Tepan Yaki fullkomlega fyrir. FlexZone eldunarsvæðin eru með extra-aflauka, allt að 7.3 kW, sem veitir óviðjafnanlegan hraða við upphitun.

CleanCover
Auðveld og örugg þrif á innrarými
Miele CleanCover er staðsett bak við fitufilter: engin hætta er á að komast í snertingu við beittar brúnir málma, raflagnir eða mótor. CleanCover yfirborðið bak við filterinn er viðloðunarfrítt, einstaklega slétt og fellt og þar af leiðandi mjög auðvelt í þrifum. Ótrúlega þægilegt og öruggt.

Niðurfelld vifta
Gufusog upp á sitt besta
Fáguð hönnun: Niðurfellda viftan í spanhelluborðinu er bæði varfærin og fáguð lausn, sem stenst hæstu kröfur þegar kemur að fagurfræði og virkni. Hönnun sem gerir þér kleift að færa potta og pönnur til á helluborðinu með auðveldum hætti – án nokkurra hindranna.

Skynjar potta og stærð þeirra
Besta mögulega orkunýting
Ef pottur er staðsettur á eldunarsvæði kviknar sjálfkrafa á tilheyrandi talnarunu þegar kveikt er á helluborðinu. Óþarfi er að kveikja handvikt á eldunarsvæðinu.

Eiginleikar sem auka þægindi notanda
Aukin þægindi
Aukin þægindi við eldun: Mögulegt er að skreppa örstutt frá eldamennskunni með því að ýta á "Pásu" stillingu, en þá er afl allra eldunarsvæða minnkað niður í aflstillingu 1. Stillingin "Halda heitu" heldur nýelduðum mat við kjörhitastig til framreiðslu. Einnig er mögulegt að stilla í hversu langan tíma eldunarsvæði á að vera í gangi og láta helluna slökkva á sér að þeim tíma liðnum. Stillingin "Minni"tryggir að ef óvart er slökkt á helluborðinu eru stillingarnar þínar vistaðar í 10 sekúndur.

Afþurrkunarvörn
Fjarlægðu óhreinindi á öruggan hátt
Með því að snerta "Þurrka af" snertitakka er mögulegt að læsa stillingum helluborðsins í 20 sekúndur. Allar stillingar halda sér og niðurtalning afþurrkunartíma sést greinilega í tímaglugga. Þannig er mögulegt að færa potta til og þrífa helluborðið án vandræða án þess að stillingar breytist.

Öryggisvirkni
Fyrir aukið öryggi og fullvissu
Besta vörnin í öllum aðstæðum: öryggislæsing helluborðsins veitir áhrifaríka vörn gegn því að óvart sé breytt um stillingar á meðan helluborðið er í notkun. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, en það minnir þig á að snerta ekki eldunarsvæði sem eru ennþá heit viðkomu.
