Fara í meginmál

Vörunúmer: KMDA7272-1 FL U

Miele

Spanhelluborð með háfi - TwoInOne

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Spanhelluborð með háfi fyrir hringblástur eða útblástur, hljóðlátur mótor og 4 hellur. Plug & Play aukahlutasett og kolafilter fyrir hringblástur fylgja með.

  • Hljóðlátt TwoInOne frá Miele - Silence Mótor  
  • Sveigjanleg uppsetning – Útblástur, hringblástur með Plug&Play eða hringblástur með loftræstistokk  
  • Nægt rými - 4 kringlótt eldunarsvæði  
  • Sjálfvirk stýring sogkrafts - Con@ctivity 
  • Nett og þægilegt stjórnborð fyrir miðju - ComfortSelect Plus

679.990 kr.

Ekki til á lager

Spanhelluborð með háfi - TwoInOne

Con@ctivity

Snjöll stjórnun

Með Con@ctivity getur þú einbeitt þér algerlega að eldamennskunni. Það er vegna þess að viftan og helluborðið eiga samskiptum við hvort annað. Helluborðið sendir upplýsingar um stillingar í rafeindabúnað viftunnar, sem aðlagar sogkraft sjálfkrafa samkvæmt þeim. Ekki er lengur nauðsynlegt að muna að slökkva á viftunni að eldamennsku lokinni. Con@ctivity er staðalbúnaður í öllum Miele TwoInOne helluborðum.

Spanhelluborð með háfi - TwoInOne

ComfortSelect Plus 

Stjórnborð fyrir miðju 

Nett og þægilegt: mögulegt er að stjórna öllum eldunarsvæðum og viftu á skýran hátt með ComfortSelect Plus. Eitt sameiginlegt talnaborð fyrir allar hellur á miðju borði þar sem aflstilling er valin.

Spanhelluborð með háfi - TwoInOne

Fitufilter úr ryðfríu stáli

Fagurfræði og góð hönnun

Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli, þarf af eru ystu lög og rammi úr hágæða ryðfríu stáli. Þegar fitufilterinn er þrifinn í uppþvottavél verður engin sjáanleg litabreyting á honum og heldur filterinn hágæða útliti sínu í langan tíma.

Spanhelluborð með háfi - TwoInOne

CleanCover 

Auðveld og örugg þrif á innrarými

Miele CleanCover er staðsett bak við fitufilter: engin hætta er á að komast í snertingu við beittar brúnir málma, raflagnir eða mótor. CleanCover yfirborðið bak við filterinn er viðloðunarfrítt, einstaklega slétt og fellt og þar af leiðandi mjög auðvelt í þrifum. Ótrúlega þægilegt og öruggt.

Spanhelluborð með háfi - TwoInOne

Niðurfelld vifta

Gufusog upp á sitt besta 

Fáguð hönnun: Niðurfellda viftan í spanhelluborðinu er bæði varfærin og fáguð lausn, sem stenst hæstu kröfur þegar kemur að fagurfræði og virkni. Hönnun sem gerir þér kleift að færa potta og pönnur til á helluborðinu með auðveldum hætti – án nokkurra hindranna.

Spanhelluborð með háfi - TwoInOne

Skynjar potta og stærð þeirra 

Besta mögulega orkunýting

Ef pottur er staðsettur á eldunarsvæði kviknar sjálfkrafa á tilheyrandi talnarunu þegar kveikt er á helluborðinu. Óþarfi er að kveikja handvikt á eldunarsvæðinu.

Spanhelluborð með háfi - TwoInOne

Eiginleikar sem auka þægindi notanda  

Aukin þægindi

Aukin þægindi við eldun: Mögulegt er að skreppa örstutt frá eldamennskunni með því að ýta á "Pásu" stillingu, en þá er afl allra eldunarsvæða minnkað niður í aflstillingu 1. Stillingin "Halda heitu" heldur nýelduðum mat við kjörhitastig til framreiðslu. Einnig er mögulegt að stilla í hversu langan tíma eldunarsvæði á að vera í gangi og láta helluna slökkva á sér að þeim tíma liðnum. Stillingin "Minni"tryggir að ef óvart er slökkt á helluborðinu eru stillingarnar þínar vistaðar í 10 sekúndur.

Spanhelluborð með háfi - TwoInOne

Öryggisvirkni 

Fyrir aukið öryggi og fullvissu 

Besta vörnin í öllum aðstæðum: öryggislæsing helluborðsins veitir áhrifaríka vörn gegn því að óvart sé breytt um stillingar á meðan helluborðið er í notkun. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, en það minnir þig á að snerta ekki eldunarsvæði sem eru ennþá heit viðkomu.