
Einstök lýsing og vandað efnisval
SHINING þróaðist náttúrulega út frá verðlaunaháfnum EDITH. Háfurinn er hannaður af FABRIZIO CRISÀ, líkt og fyrirmyndin, og tilheyrir línu nýju EVOLUTION háfanna frá Elica. Fallegar útlínur háfsins minna á lampa og passar hann inn í margs konar umhverfi, allt frá iðnaðar eða vintage rýma til klassískra eða nútímalegra rýma. Þrenns konar kúplar eru fáanlegir; Peltrox sem hefur útlit unnins málms sem hefur veðrast, Cast iron sem er pottjárnslitur með sínu tæknilega og sterka útliti og að lokum Rust eða ryðlitur með sínum sterka karakter. Lýsingin er hvað mest einkennandi fyrir háfinn. Mjög falleg LED lýsing skín niður á helluborðið undan glerkúpli og veitir bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. Eftirtektarverður háfur sem verður auðveldlega í brennidepli í eldhúsinu.
-5185a13e-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Hljóðlátur háfur fyrir opin rými
Samhliða vinsældum opinna rýma þar sem eldhús eru tengd við setustofu, hefur orðið vinsælla að setja upp háfa sem skyggja sem minnst á útsýnið. Uppsetningarmöguleikar SHINING eru tvenns konar. Annars vegar er hægt að hengja hann upp á vegg og hins vegar er hægt að hafa hann hangandi í vírum niður úr loftinu. Hangandi háfar eru mjög léttir á að líta og sóma sér þar af leiðandi mjög vel uppsettir yfir helluborði á eyju í eldhúsinu. Ekki spillir fyrir hversu hljóðlátur háfurinn er og einkar ánægjulegt að geta átt samræður í nágrenninu við hámarks sogkraft án þess að háfurinn ónáði. Háfurinn er hringrásandi, stjórnborð með snertitökkum er einfalt í notkun og fjórar aflstillingar í boði. Til þæginda, fylgir auk þess með fjarstýring sem stýrir öllum stillingum háfsins.

Jaðarsog og LongLife kolafilter
Regluleg þrif háfsins tryggja ekki aðeins hreinlæti í eldhúsinu, heldur einnig lengri líftíma vörunnar. SHINING er með jaðarsogi og eru filterar staðsettir fyrir ofan stílhreinan glerskjöld. Aðgengi að bæði fitufilterum úr áli og LongLife kolafilterum er einfalt, auðvelt er að fjarlægja filterana og setja þá aftur á sinn stað. LongLife kolafiltera má endurnýta með því að þrífa þá í uppþvottavél 2 til 3 hvern mánuð. Líftími kolafiltersins verður allt að þrjú ár með þessu móti og komist verður hjá tíðum og eyðslusömum útskiptum filtera.
