Fara í meginmál

Vörunúmer: 18093F

Magimix

Safa- og berjapressa með rifjárnum - Juice Expert 5

Afskaplega fjölhæf, sterkbyggð og afkastamikil safapressa frá Magimix. Eitt tæki sem getur gengt fimm hlutverkum. Vélin er með sítruspressu fyrir ferskan safa úr sítrusávöxtum, safapressu til að töfra fram 100% hreina og tæra grænmetis- og ávaxtasafa, auk berjapressu sem er fullkomin fyrir viðkvæm ber og eldaða ávexti og grænmeti. Vélin kemur með stórri XL skál og í henni er hægt að sneiða og rífa grænmeti með rifjárnum eða nota Spiral expert til að gera tagliatelle, spaghetti eða fusilli úr grænmeti.

129.990 kr.

Ekki til á lager

Safa- og berjapressa með rifjárnum - Juice Expert 5

5 in 1

Magimix hannaði eitt tæki til þess að búa til hvers konar heimagerða djúsa og safa. Tækið er í raun þrjár pressur í einni, það er safapressa, sítruspressa og berjapressa. Auk þess er hægt að rífa og sneiða grænmeti fyrir dýrindis ávaxta- og grænmetissalöt og búa til spagettí, tagliatelle eða fusilli úr grænmeti. Juice Expert 5 er tilvalin til að töfra fram 100% hreina safa úr öllum ávöxtum, berjum og grænmeti og er gædd margvíslegri tækni sem Magimix er með einkaleyfi fyrir. Hægari snúningur á safapressu lágmarkar froðumyndun og pressun á köldum safa viðheldur mörgum góðum eiginleikum ávaxta og grænmetis. Juice Expert nær allt að 96% safa, 85% af vítamínum og 95% af andoxunarefnum úr hráefninu við pressun.

Safa- og berjapressa með rifjárnum - Juice Expert 5

Ferskur appelsínusafi

Sítruspressan er fyrir appelsínur, sítrónur og grape og fylgja tvær stærðir af keilum fyrir stóra og litla sítrusávexti. Njóttu fersks appelsínusafa án steina í morgunsárið.

Safa- og berjapressa með rifjárnum - Juice Expert 5

Hreinir og tærir safar

XL Juice Filter safapressa pressar hreina og tæra safa úr ávöxtum og grænmeti. Magimix er með einkaleyfi fyrir tækninni og eru gæði hreina safans greinileg. Mjög góð nýting er á hráefni og mjög lítil froða í safa. Safapressan hentar til að mynda fyrir epli, gulrætur, hvítkál og sellerí. 

Safa- og berjapressa með rifjárnum - Juice Expert 5

Smoothies og mjúkir safar

Extra Press XL berjapressa pressar safa úr mjúkum eða elduðum ávöxtum og grænmeti. Magimix er með einkaleyfi fyrir tækninni, nýting á hráefni er mjög góð og gæði safans greinileg. Berjapressan hentar til að mynda fyrir hráefni eins og jarðaber, banana og tómata.

Safa- og berjapressa með rifjárnum - Juice Expert 5

Salat út ávöxtum og grænmeti

Búðu til holl og góð salöt úr grænmeti og ávöxtum fyrir allt að 6 manns í einu. Sneið- og rifjárnin skera hráefnið fullkomlega jafnt og endar það beint ofan í sterkri XL skál úr polycarbonate.

Safa- og berjapressa með rifjárnum - Juice Expert 5

Spagettí úr grænmeti

Breyttu til og búðu til frumlegt spagettí, tagliatelle og fusilli úr grænmeti með Spiral Expert. Þrjár keilur mynda mismunandi spírala og endar hráefnið beint ofan í sterkri XL skál úr polycarbonate.

Safa- og berjapressa - Juice Expert 3

Sterkbyggð, hljóðlát og auðveld í þrifum

Juice Expert safapressan er framleidd í Frakklandi. Sterkur iðnaðarmótorinn er með 30 ára ábyrgð frá framleiðanda* og aðlagar sjálfur hraða sinn að verkinu. Safapressan er mjög hljóðlát og hefur fengið Quiet Mark verðlaun því til staðfestingar. Miðflóttaaflsvindan er úr ryðfríu stáli og tryggir hámarksafköst við safapressun. Þrif eru einstaklega auðveld. Hægt er að taka alla hluta sem komast í snertingu við safa af vélinni og þvo þá í uppþvottavél. Meðfylgjandi spaði auðveldar þrif á miðflóttaaflsvindu og hana má taka sérstaklega í sundur. Magimix safapressur eru sterkbyggðar fyrir lengri endingu.

*Ábyrgð miðast við venjulega heimilisnotkun