Fara í meginmál

Vörunúmer: SUFF0H

Miele

Ryksuga Guard L1 Brilliant hvít

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Öflug | HEPA AirClean filter | tilvalin fyrir fólk með ofnæmi

  • Veldu á milli 4 stillinga og upplifðu fullkomið afl fyrir hvert verkefni
  • Fótstigsrofar fyrir hagnýta ryksugun sem verndar bakið
  • HEPA Airclean filter fjarlægir 99.999 % rykagna og ofnæmisvaka
  • Hæðarstillanlegt ryksugurör og þægilegt Comfort handfang
  • Innbyggður 2-in-1 áklæðabursti og kverkastútur fyrir áreynslulaus þrif
  • ComfortCable - rafmagnssnúra rúllast upp í ryksuguna öll í einu 
  • ComfortFit – hönnun sem skilar sér í hámarks hreinlæti
  • Einstaklega falleg hönnun 

79.990 kr.

Ekki til á lager

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Tækninýjungar leiða til meiri nákvæmni

Öflug þrif 

Miele Guard ryksugan sameinar hámarks sogkraft og ótakmarkaðan notkunartíma - fullkomið fyrir stór svæði. Gagnger þrif eru tryggð með öflugri viftu, ákjósanlegri loftrás og ryksuguhaus. Ný ComfortFit tækni við festingu ryksugupoka ásamt öflugum útblástursfilterum, skila sér í fyrsta flokks frammistöðu og hreinlæti - og þú nýtur góðs af áreiðanlegum og öflugum þrifum.

Ryksuga Guard L1 Títaníum

“Made in Germany” táknar áreiðanleika sem þú getur treyst

Gæði

“Made in Germany” er ímynd yfir fyrsta flokks verkfræði og yfirburði. Mikil gæði, áreiðanleiki og góð ending einkenna allar Miele vörur. Til þess að tryggja það að ryksugurnar uppfylli gæðakröfur, eru þær prófaðar fyrir 20 ára endingu að jafnaði* sem þýðir að þú getur treyst afkastagetunni.

* Á meðan á þróunarfasa Guard ryksugulínunnar stóð, prófaði Miele módel og lykilíhluti á mismunandi aflstillingum fyrir 750 klukkutíma notkun (=37,5 tímar á ári). Meira: miele.com/20years

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Hámarks hreinlæti 

Kerfi filtera með ComfortFit

Tækninýjungar bæði á filterum og ryksugupokum gera þér kleift að njóta alhliða hreinlætis á heimilinu - þar sem afköst filtrunar eru 99,99% *. ComfortFit gerir það að verkum að sérstaklega auðvelt er að setja ryksugupoka í vélina. Örugg lokun á milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar tryggir að ekkert ryk sleppur fram hjá og að hægt sé að skipta um ryksugupoka á einstaklega hreinlátan hátt. Auk þess eru nýju ryksugupokarnir gerðir úr meira en 80% endurunnu efni.

* Samkvæmt IEC 62885-2 við notkun Miele tækis með AirClean filter 

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Engin þörf á að beygja sig

Sjálfvirk upprúllun rafmagnssnúru með einni snertingu

Auðvelt er að rúlla rafmagnssnúru ryksugunnar upp með fótstigsrofa og óþarfi að grúfa yfir henni. Ekki er þörf á að halda inni fótstigsrofanum, heldur er nóg að stíga einu sinni á hann til þess að rúlla allri rafmagnssnúru ryksugunnar upp.

Ryksuga Guard L1 Obsidian svört

Þægilegt og auðvelt í notkun

Comfort handfang

Comfort handfang með innbyggðum afþurrkunarbursta býður upp á einstaklega hraðvirk og auðveld þrif ef minniháttar óhöpp koma upp.

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Fjölhæf þrif með einu verkfæri 

Innbyggður 2-in-1 áklæðabursti og kverkastútur

Miele Guard L1 er með innbyggðum 2-in-1 stúti sem gerir þér kleift að skipta hratt og auðveldlega á milli verkefna. Stúturinn sameinar sérstaklega breiðan áklæðabursta sem hentar fyrir þrif á áklæðum og kverkastút sem er hannaður fyrir þrif á svæðum sem erfitt er að ná til. Stúturinn er staðsettur í aftari hluta ryksugunnar og því alltaf við höndina.

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Sogkraftur stilltur á þægilegan hátt

Plús-/mínus - Fótstýring

Njóttu hámarks þæginda við notkun með þægilegri fótstýringu. Hún gerir þér kleift að stjórna sogkraftinum með fætinum án þess að þurfa að beygja þig niður. Grafísk tákn auðvelda þér að velja rétt afl fyrir svæðið sem þú ætlar að ryksuga.

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Fjölhæfur ryksuguhaus fyrir hvers kyns verkefni

AllTeQ alhliða ryksuguhaus

Auðvelt er að stilla ryksuguhausinn eftir því hvers konar gólfefni er verið að ryksuga sem gerir ryksugun einstaklega áreynslulausa og tryggir nútímaleg hönnun hans frábært sog bæði á teppum og hörðum gólfum. Stórt gúmmíhjól og stillanlegir burstar sem ganga inn og út úr hausnum að neðanverðu koma í veg fyrir rispur á hörðum gólfefnum og fjarlægja auk þess hár af gólfi á skilvirkan hátt.

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Viðeigandi ryksugupokar

HyClean Pure TU

HyClean Pure TU ryksugupokarnir eru hannaðir til að passa fullkomlega í Guard L1 ryksuguna og tryggja framúrskarandi afköst og skilvirkni. ComfortFit tækni tryggir örugga lokun milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar þegar ryksugupokinn er festur í vélina. Tæknin sér til þess að allt ryk haldist inni í kerfinu sem aftur tryggir hámarks filtrun.

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Filter sem hentar fyrir fólk með ofnæmi

HEPA AirClean filter

Filterar Guard ryksugunnar fanga allt að 99,999% rykagna og er útblástur hennar þar af leiðandi jafnvel hreinni en herbergisloftið. Filtrun ryksugunnar er marglaga og inniheldur HEPA filter sem fangar fínt ryk og ofnæmisvaka. Þetta gerir Guard að hinni fullkomnu ryksugu fyrir fólk sem er með ofnæmi*.

* 99.999 % samkvæmt IEC 62885-2:2021 / HEPA samkvæmt EN 1822:2019