Fara í meginmál

Vörunúmer: SQLL0B

Miele

Ryksuga DuoFlex HX1

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Öflug | sjálfvirk aflstýring | hægt að breyta úr einu tæki í annað

  • Lithium-ion batterí – allt að 55 mín gangtími á stakri hleðslu
  • Jafn öflug og hefðbundnar Miele ryksugur – Vortex tækni
  • Létt og nett – 3,1 kg / 0,3 L tankur fyrir ryk
  • Rafmagnsryksuguhaus með sjálfvirkri aflstýringu
  • Hygiene filter fjarlægir 99.99% rykagna og ofnæmisvaka
  • Sveigjanleiki – nota með skafti fyrir gólf eða PowerUnit stakt t.d. fyrir bílinn 

79.990 kr.

Ekki til á lager

Ryksuga DuoFlex HX1

Löng ending rafhlöðu fyrir daglega notkun

Gangtími

Dagleg þrif verða áreynslulaus þökk sé afkastamikilli Lithium-ion rafhlöðu. Gangtími er allt að 55 mínútur á MIN stillingu með PowerUnit eingöngu án rafmagnsryksuguhauss. Á MAX stillingu með rafmagnsryksuguhaus nær Duoflex HX1 gangtíma sem er um það bil 12 mínútur á hörðu gólfefni. Tilvalið fyrir svæði sem eru allt að 60 m² að stærð.

Ryksuga DuoFlex HX1

Fyrir hvaða gólfefni sem er: hagnýtt, snjallt, skilvirkt

MultiFloor rafmagnsryksuguhaus

Þökk sé nýstárlegri tækni greinir snjalli MultiFloor rafmagnsryksuguhausinn sjálfkrafa gerð gólfefnis og aðlagar hraða rúlluburstans eftir yfirborðinu - skilvirkur sogkraftur og bestu mögulegu þrif hvar sem þú ert.

Ryksuga DuoFlex HX1

Öflugur sogkraftur

Digital Efficiency Mótor

Stöðug skilvirkni og mikill kraftur: Nýjasta tæknin á bak við Digital Efficiency Mótorinn tryggir framúrskarandi sogkraft með lágmarks orkunotkun. Þægilega léttur mótorinn mun heilla þig með afburða þrifum á öllum gerðum gólfefna.

Ryksuga DuoFlex HX1

Sveigjanleiki í daglegri notkun

Sveigjanleg notkun

Mögulegt er að aðlaga Miele Duoflex ryksuguna eftir þörfum með að nota fjölbreytt úrval fylgihluta og með því að breyta samsetningu ryksugunnar. Notaðu Duoflex með rafmagnsryksuguhaus til að ryksuga gólfið eða PowerUnit með sogröri til þess að þrífa loftið. Einnig er hægt að nota PowerUnit eitt og sér til dæmis til þess að þrífa húsgögn. Duoflex býður upp á lausn á hvaða áskorun sem er.

Ryksuga DuoFlex HX1

Tæming með einum takka

Auðvelt í þrifum

Afar einfalt er að tæma tankinn fyrir grófa rykið, þökk sé Click2open. Eina sem þarf að gera er að ýta á takka og tankurinn tæmist neðan frá ofan í fötu sem sem sett er undir. Hreinlæti er sérstaklega mikið vegna þess að engin snerting á sér stað við rykið á  meðan á tæmingu stendur.

Ryksuga DuoFlex HX1

Óaðfinnanleg samþætting við þína innanhússhönnun

Hönnun fyrir lífið

Duoflex HX1 er ekki bara öflug ryksuga, hún er líka einstaklega fögur allt niður í minnstu smáatriði. Þökk sé þessari fallegu og nútímalegu hönnun er vel við hæfi að finna ryksugunni áberandi stað á heimilinu. Að finna stað til að fela ryksuguna er liðin tíð. Nútímalegir, stílhreinir litir og gæði áferðar yfirborðs gera Miele Duoflex HX1 skaftryksuguna að sannkölluðum hönnunargrip sem sómir sér vel hvar sem er á heimilinu.