Fara í meginmál

Vörunúmer: MONN100084

Schock

Quartz vaskur, yfirfelldur - MONO N-100

Yfirfelldur, svartur quarts vaskur frá Schock sem er 57 cm breiður.

74.990 kr.

Ekki til á lager

Quartz vaskur, yfirfelldur - GREENWICH N-100L

Yfirfelldur vaskur

Uppsetning yfirfelldra vaska er klassísk, fljótleg og auðveld. Í sumum tilfellum, fer eftir efnisgerð borðplötu, er jafnvel hægt að gera úrtak fyrir vaskinum á staðnum við uppsetningu eldhússins. Yfirfelldur vaskur er byggður inn í borðplötuna ofan frá. Vaskurinn liggur þá ofan á borðplötunni, með öðrum orðum liggur brún vasksins ofan á vinnufletinum. 

Quartz vaskur flush - GREENWICH N-100

CRISTADUR®

Quartz vaskurinn er úr CRISTADUR®, hráefni sem var sérstaklega þróað af Schock og fyrirtækið er með einkaleyfi á. Vaskurinn er framleiddur í Bæjaralandi í Þýskalandi og er uppistaða hans allt að 75% quartz sandur frá svæðinu. Quartz sandur er hart efni frá náttúrunnar hendi og leikur þar af leiðandi lykilhlutverk í því hversu sterkbyggður og endingargóður vaskurinn er. Quarts vaskar úr CRISTADUR® hafa einstaka eiginleika og standast fyllilega allar kröfur sem gerðar eru í eldhúsinu. Vaskurinn hrindir frá sér óhreinindum, dregur ekki í sig lykt og er einstaklega öruggur þegar kemur að meðhöndlun matvæla. Yfirborð vasksins er mjög slétt, þar af leiðandi bakteríufrítt og engin leið fyrir bakteríur að grassera í vaskinum. Vaskurinn er ekki viðkvæmur fyrir hita og í lagi að setja heitan pott beint ofan í hann. Auk þess er vaskurinn með góðu bletta- og höggþoli.