Fara í meginmál

Vörunúmer: GREN100084FB

Schock

Quartz vaskur flush - GREENWICH N-100

Niðurfellanlegur, svartur quarts vaskur frá Schock sem er 45 cm breiður.

79.990 kr.

Ekki til á lager

Quartz vaskur flush - GREENWICH N-100

Niðurfelldur vaskur

Niðurfelldir vaskar eru töfrandi kostur fyrir fagurkera og bjóða upp á slétt yfirborð frá vinnuborði yfir brúnir vasks. Þrif eru einstaklega auðveld, engin misfella er til staðar milli vasks og borðplötu og þar af leiðandi er enginn staður fyrir óhreinindi eða vatn til að safnast fyrir. Til þess að tryggja að niðurfelldur vaskur passi fullkomlega í borðplötu úr hráefnum eins og náttúrusteini eða gegnheilum við, þarf að nota sérstakar vélar og gæta ýtrustu varúðar við úrtöku. Áríðandi er að leita til fagmanna til þess að framkvæmd verði farsæl.

Quartz vaskur flush - GREENWICH N-100

CRISTADUR®

Quartz vaskurinn er úr CRISTADUR®, hráefni sem var sérstaklega þróað af Schock og fyrirtækið er með einkaleyfi á. Vaskurinn er framleiddur í Bæjaralandi í Þýskalandi og er uppistaða hans allt að 75% quartz sandur frá svæðinu. Quartz sandur er hart efni frá náttúrunnar hendi og leikur þar af leiðandi lykilhlutverk í því hversu sterkbyggður og endingargóður vaskurinn er. Quarts vaskar úr CRISTADUR® hafa einstaka eiginleika og standast fyllilega allar kröfur sem gerðar eru í eldhúsinu. Vaskurinn hrindir frá sér óhreinindum, dregur ekki í sig lykt og er einstaklega öruggur þegar kemur að meðhöndlun matvæla. Yfirborð vasksins er mjög slétt, þar af leiðandi bakteríufrítt og engin leið fyrir bakteríur að grassera í vaskinum. Vaskurinn er ekki viðkvæmur fyrir hita og í lagi að setja heitan pott beint ofan í hann. Auk þess er vaskurinn með góðu bletta- og höggþoli.