Fara í meginmál

Vörunúmer: M7244TCR

Miele

Örbylgjuofn með Quartz grilli - DirectSensor S

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Innbyggður örbylgjuofn frá Miele með DirectSensor S snertitökkkum. Ofninn er með stóru 46 lítra innanrými, snúningsdiski sem er 40 cm í þvermál og LED lýsingu. Örbylgjuofninn er með innbyggðu quartz grilli sem tryggir jafna brúnun, sjálfvirkum kerfum sem skila fullkominni afþýðingu og eldun auk örbylgjukerfis fyrir poppkorn sem er sett af stað með einni snertingu.

399.990 kr.

Sérpöntun

Örbylgjuofn með Quartz grilli - DirectSensor S

XL ofnrými 

Stórt ofnrými fyrir sveigjanleika við notkun

Miele örbylgjuofnar með stjórntækjum á topppanel og nýtilegu 46 lítra ofnrými, veita allt það rými og sveigjanleika sem þú þarft til þess verða skapandi í eldhúsinu.

Örbylgjuofn með Quartz grilli - EasyControl

Quick MW 

Hámarksafl með einum takka á stjórnborði

Hraðvalstakki fyrir örbylgjukerfi: þessi valkostur veitir skjótan aðgang að hámarksörbylgjuafli. Með því að ýta 1, 2, eða 3 sinnum á takkann, getur þú sett tækið af stað í 30, 60 eða 120 sekúndur. Að því loknu slekkur tækið sjálfkrafa á sér. Auðvelt er að endurstilla fyrirfram ákveðnar tímalengdir sem kerfið býður upp á eftir þínum þörfum - til dæmis, ef þú vilt hita upp tebolla á kvöldin eða hita upp barnamat.

Örbylgjuofn með Quartz grilli - EasyControl

Ofnrými úr ryðfríu stáli 

Hagnýtt út í gegn

Hafðu gagn af fjölbreyttri virkni: innanrými Miele örbylgjuofna er gert úr ryðfríu stáli. Þetta tryggir árangursríka dreifingu örbylgja. Og gerir þrif einstaklega auðveld.

Örbylgjuofn með Quartz grilli - EasyControl

Quartz grill 

Fullkomin brúnun

Sjáanlegt bragð: innbyggða Quartz grillið brúnar matvælin jafnt og fljótt með aðstoð snúningsdisks – fullt afl næst eftir einungis nokkrar sekúndur. Þetta fullkomnar til dæmis lokaútkomu rétta sem eru toppaðir með kartöflum auk ákveðinna eftirrétta og tryggir að þeir bragðist eins vel og þeir líta út.

Örbylgjuofn með Quartz grilli - EasyControl

Combi eldunarkerfi

Hámarkaðu árangurinn

Tvö skref í einu: núna getur þú eldað og brúnað matvæli í stöku eldunarkerfi, Örbylgju + Quartz grill. Þú getur eldað dásamlegar bökur, pizzur eða stökka kjúklingaleggi með Combi eldunarkerfi án þess að þurfa að breyta stillingum eða athuga matvælin í miðju eldunarferli.

Örbylgjuofn með Quartz grilli - EasyControl

Sjálfvirk örbylgjukerfi

Sláðu ávallt í gegn

Þægilegt og streitu-frítt: sjálfvirk örbylgjukerfi elda fyrir þig. Veldu einfaldlega eldunarkerfið sem þú vilt og stilltu inn t.d. þyngd matvælanna. Tækið finnur sjálfkrafa út úr aflstillingu og tímalengd eldunar. Óþarfi er að stilla nokkuð annað eða fylgjast með ferlinu. Árangursrík eldun í hvert skipti næst með sjálfvirkum örbylgjukerfum fyrir frosin og/eða þiðin matvæli.

Örbylgjuofn með Quartz grilli - EasyControl

LED ljóskastari 

Besta mögulega lýsing 

Þökk sé viðhaldsfríum eiginleikum, lýsir LED ljóskastarinn ofnrýmið fullkomlega upp á endingargóðan hátt. Hann er líka sérstaklega orkunýtinn.

Örbylgjuofn með Quartz grilli - DirectSensor S

Poppkornskerfi 

Ferskt poppkorn með einni snertingu 

Hvernig yrði góð bíómynd án poppkorns? Með sjálfvirka poppkornskerfinu getur þú búið til dásamlegt poppkorn í örbylgjuofninum heima hjá þér með einni snertingu á takka á stjórnborði. Tímalengd og wött eru miðuð við 100 g poka af örbylgjupoppi. Ef þú vilt stökkt poppkorn, getur þú aðlagað tímalengd að þínum þörfum.

Örbylgjuofn með Quartz grilli - DirectSensor S

SoftOpen & SoftClose 

Mjúkar hurðarhreyfingar

Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.