Fara í meginmál

Vörunúmer: PRF0094744

Elica

OM AIR

Veggháfur frá Elica sem er 75 cm breiður. Háfurinn er úr svörtu gleri, með LED lýsingu og stjórnborði með snertitökkum. Halli háfsins gerir hann einstaklega notendavænan og litlar áhyggjur þarf að hafa af því að reka höfuðið í hann við eldamennsku.

Hönnun: ELICA DESIGN CENTER

379.990 kr.

Sérpöntun

OM AIR

Lítil hætta er á að reka höfuðið í við eldamennsku

OM AIR veggháfurinn einkennist af fáguðum en einföldum formum hrings og ferhyrnings. Hann er hannaður af Elica Design Center sem endurbætt útgáfa klassíska veggháfsins OM. Halli háfsins gerir hann einstaklega notendavænan og litlar áhyggjur þarf að hafa af því að reka höfuðið í hann við eldamennsku.

OM AIR

Öflugur háfur með LED lýsingu

Lýsingu og afli er stjórnað með einföldum snertitökkum sem eru staðsettir framan á háfnum. OM AIR er öflugur og mögulegt er að setja hann upp annað hvort fyrir útblástur eða hringblástur. LED lýsingin gefur náttúrulega og áhrifaríka birtu sem skín beint niður á helluborðið og veitir bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. 

OM AIR

Jaðarsog og LongLife kolafilter

Regluleg þrif háfsins tryggja ekki aðeins hreinlæti í eldhúsinu, heldur einnig lengri líftíma vörunnar. OM AIR er með jaðarsogi og eru filterar staðsettir fyrir aftan stílhreinan glerskjöld. Glerskjöldurinn opnast vel upp á við sem einfaldar aðgengi að bæði fitufilter úr áli og LongLife kolafilter. Auðvelt er að fjarlægja filterana og setja þá aftur á sinn stað. LongLife kolafilter er notaður ef OM AIR er settur upp fyrir hringblástur. Hann má endurnýta með þrifum í uppþvottavél 2 til 3 hvern mánuð. Líftími kolafiltersins verður allt að þrjú ár með þessu móti og komist verður hjá tíðum og eyðslusömum útskiptum filtera.