Fara í meginmál

Vörunúmer: SIM3644D

Smeg

Niðurfellt spanhelluborð

Niðurfellanlegt spanhelluborð frá Smeg. Helluborðið er með keramikplötu, snertitökkum, 4 hellum með aflauka og er um það bil 60 cm á breidd. Mögulegt er að tengja fremri og aftari hellurnar saman í tvö stór MultiZone eldunarsvæði.

205.520 kr.

Ekki til á lager

Niðurfellt spanhelluborð

Snjöll stjórnun 

Einbeittu þér algerlega að eldamennskunni: með Auto-vent tækni er óþarfi að stilla háfinn sérstaklega. Háfurinn bregst sjálfkrafa við um leið og kveikt eða slökkt er á helluborðinu. Sogkraftur er einnig aðlagaður sjálfkrafa að því sem er að gerast á helluborðinu, sem tryggir þægilegt andrúmsloft öllum stundum. Athugið að bæði helluborð og háfur þurfa að vera með Auto-Vent tækni.

Niðurfellt spanhelluborð

Multizone eldunarsvæði og aflauki

Spanhelluborð gefa möguleika á mjög nákvæmri hitastjórnun sem hentar vel fyrir flókna eldamennsku, til dæmis ef réttur þarf að krauma eða malla í lengri tíma. Aflauki er á öllum hellum og þannig mögulegt að ná upp suðu á skömmum tíma. Helluborðið er auk þess með sveigjanlegum MultiZone eldunarsvæðum. Þú getur notað MultiZone svæði sem tvær sjálfstæðar hellur eða sameinað í eitt stórt svæði, og þannig komið fyrir hvort heldur stökum potti eða stórri ofnpönnu. Keramikglerið er auðvelt í þrifum, mikill kostur að matarslettur sem lenda á yfirborði helluborðsins brenna ekki við það og einfalt að þurrka þær í burtu að eldamennsku lokinni.

Niðurfellt spanhelluborð

Öryggi og þægindi við notkun 

Mögulegt að stilla í hversu langan tíma eldunarsvæði á að vera í gangi og láta helluna slökkva á sér að þeim tíma liðnum. Einnig er hægt að sjá hversu lengi hefur verið kveikt á hellu. Stillingin "Halda heitu" heldur nýelduðum mat við kjörhitastig til framreiðslu. Auk þess er mögulegt að skreppa örstutt frá eldamennskunni með því að ýta á "Pásu" stillingu, en þá er afl allra eldunarsvæða minnkað niður í aflstillingu 1. Eftir að slökkt hefur verið á helluborðinu sýna gaumljós hvaða hellur eru ennþá heitar. Yfirhitavörn slekkur á hitun eldunarsvæða ef álag verður of mikið og áður en keramikglerið eða aðrir hlutar helluborðsins ofhitna. Auk þess slekkur helluborðið á hellu ef kveikt er á henni á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma.