
Skynjar potta og stærð þeirra
Settu pönnuna á helluborðið og byrjaðu að elda. Allt sem þú þarft að gera er að kveikja á helluborðinu. Hiti myndast beint í botni pönnunnar þegar hún kemst í snertingu við hellu sem kveikt er á, spanhelluborðið skynjar stærð hennar sjálfkrafa og tryggir þannig lágmarks orkunotkun.

Notendavænt helluborð með aflauka
Spanhelluborð gefa möguleika á mjög nákvæmri hitastjórnun sem hentar vel fyrir flókna eldamennsku, til dæmis ef réttur þarf að krauma eða malla í lengri tíma. Aflauki er á öllum hellum og þannig mögulegt að ná upp suðu á skömmum tíma. Keramikglerið er auðvelt í þrifum, mikill kostur er að matarslettur sem lenda á yfirborði helluborðsins brenna ekki við það og einfalt að þurrka þær í burtu að eldamennsku lokinni.

Aukin þægindi og örugg notkun
Mögulegt að stilla í hversu langan tíma eldunarsvæði á að vera í gangi og láta helluna slökkva á sér að þeim tíma liðnum. Einnig er hægt að sjá hversu lengi hefur verið kveikt á hellu. Stillingin "Halda heitu" heldur nýelduðum mat við kjörhitastig til framreiðslu. Auk þess er mögulegt að skreppa örstutt frá eldamennskunni með því að ýta á "Pásu" stillingu, en þá er afl allra eldunarsvæða minnkað niður í aflstillingu 1. Eftir að slökkt hefur verið á helluborðinu sýna gaumljós hvaða hellur eru ennþá heitar. Yfirhitavörn slekkur á hitun eldunarsvæða ef álag verður of mikið og áður en keramikglerið eða aðrir hlutar helluborðsins ofhitna. Auk þess slekkur helluborðið á hellu ef kveikt er á henni á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma.
