Fara í meginmál

Vörunúmer: KM8565FL

Miele

Niðurfellt spanhelluborð

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

620 mm | PowerFlex eldunarsvæði | M Sense ready

  • 4 hellur sem hægt er að sameina í 2 öflug PowerFlex eldunarsvæði
  • Nákvæmar stillingar með 4 MultiSlide talnasleðum og snjallri nettengingu
  • M Sense ready - Hægt að nota M Sense potta og pönnur með eldunar- og steikingaraðstoð
  • Styttri upphitunartími þökk sé Booster aflauka
  • 620 mm breidd - hentar fyrir yfirfellda - eða niðurfellda uppsetningu

359.990 kr.

Ekki til á lager

Niðurfellt spanhelluborð

Ekkert brennur við eða sýður upp úr með M Sense pottum og pönnum

M Sense tækni

M Sense pottar og pönnur voru hannaðir til að auðvelda þér lífið og tryggja að ekkert brenni við þá eða sjóði upp úr. Til dæmis er mögulegt að elda pasta í potti með lokinu á, án þess að það sjóði upp úr. Einnig er hægt að velja úr fyrir fram skilgreindum hjálpar prógrömmum sem þú getur valið beint á pönnunum eða pottunum sjálfum. Þökk sé samstillingu við helluborðið, er ekki þörf á frekari stillingum.

Niðurfellt spanhelluborð

Aukaafl fyrir hraða og fjölhæfa eldun

PowerFlex

Hvort sem þú notar einstaka potta eða sérstaklega stóra ofnpönnu, geturðu skipt aflaukanum sem er allt að 7,3 kW á milli einstakra potta eða sameinað það allt fyrir stóru ofnpönnuna til dæmis. PowerFlex eldunarsvæðið tryggir einstaklega hraða upphitun réttanna þinna og býður upp á gott rými.

Niðurfellt spanhelluborð

Snjalltækni sem gerir vinnuna auðveldari

Snjöll skynjun potta og panna

Snjöll skynjun potta og panna gerir það að verkum að stjórnborð helluborðsins er aðeins sýnilegt þegar pottur eða panna er á helluborðinu. Þessi virkni gefur helluborðinu stílhreint og glæsilegt útlit þegar það er ekki í notkun. Þegar þú færir potta og pönnur til á helluborðinu, fylgir stjórnborðið þessum hreyfingum, sem gerir notkun bæði auðvelda og sveigjanlega. Að auki skynjar helluborðið stærð potta og panna sem stuðlar að meiri orkunýtni.

Niðurfellt spanhelluborð

Eldaðu á enn þægilegri hátt þökk sé viðbótar stillingum

Eiginleikar sem auka þægindi notanda

Dyrabjallan hringir á meðan þú ert að elda kvöldmatinn? Notaðu Stop&Go “Pásu” stillingu til að lækka allar hellur niður í aflstig 1 og yfirgefðu helluborðið í stutta stund með góðri samvisku. “Hella slekkur á sér sjálfvirkt” er stilling sem gerir þér kleift að stilla í hversu langan tíma eldunarsvæði á að vera í gangi og láta helluna slökkva á sér sjálfkrafa að þeim tíma liðnum, og “Halda heitu” stilling tryggir að maturinn haldist við fullkomið framreiðslu hitastig. Notaðu stillinguna “Minni” sem vistar allar stillingar í 10 sekúndur, ef óvart slokknar á helluborðinu.

Niðurfellt spanhelluborð

Stjórnaðu helluborðinu þínu á einfaldan og snjallan hátt

MultiSlide

Matreiðsla er enn auðveldari með snjöllum MultiSlide stjórntækjum. Með stjórntækjunum getur þú séð allar afl- og tímastillingar fyrir hvern pott og pönnu á augabragði. Hverjum og einum potti og pönnu er stjórnað með sínum eigin talnasleða.

Niðurfellt spanhelluborð

Fyrir aukið öryggi á helluborðinu

Öryggisvirkni  

Öryggislæsing helluborðsins, sem veitir áreiðanlega vörn gegn því að stillingum helluborðsins sé breytt óvart eða með vilja, býður upp á meira öryggi við eldamennsku. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, til að koma í veg fyrir að þú brennir þig.