
Aukaafl fyrir hraða og fjölhæfa eldun
PowerFlex XL
Hvort sem þú notar einstaka potta eða sérstaklega stóra ofnpönnu, geturðu skipt aflaukanum sem er allt að 7,3 kW á milli einstakra potta eða sameinað það allt fyrir stóru ofnpönnuna til dæmis. PowerFlex XL eldunarsvæðið tryggir einstaklega hraða upphitun réttanna þinna og býður upp á gott rými.

Settu pönnuna á helluborðið og byrjaðu að elda
Skynjar potta og stærð þeirra
Helluborðið skynjar potta og pönnur um leið og þú kveikir á því, hvort sem um ræðir lítinn pott eða stóra pönnu. Tengd stjórntæki virkjast í samræmi við það. Þetta þýðir að þú þarft ekki lengur að kveikja á einstökum eldunarsvæðum sérstaklega. Þökk sé sjálfvirkri skynjun á stærð pottsins eða pönnunnar geturðu eldað á þægilegan hátt og aðeins notað þá orku sem þú þarft í raun.

Eldaðu á enn þægilegri hátt þökk sé viðbótar stillingum
Eiginleikar sem auka þægindi notanda
Dyrabjallan hringir á meðan þú ert að elda kvöldmatinn? Notaðu Stop&Go “Pásu” stillingu til að lækka allar hellur niður í aflstig 1 og yfirgefðu helluborðið í stutta stund með góðri samvisku. “Hella slekkur á sér sjálfvirkt” er stilling sem gerir þér kleift að stilla í hversu langan tíma eldunarsvæði á að vera í gangi og láta helluna slökkva á sér sjálfkrafa að þeim tíma liðnum, og “Halda heitu” stilling tryggir að maturinn haldist við fullkomið framreiðslu hitastig. Notaðu stillinguna “Minni” sem vistar allar stillingar í 10 sekúndur, ef óvart slokknar á helluborðinu.

Miðlægt stjórntæki fyrir öll eldunarsvæði
SingleSlide
SingleSlide býður upp á miðlægt stjórnborð á meðan þú eldar eða steikir. Miðlægur talnasleði gerir þér kleift að stjórna öllu afli og eldunarsvæðum nákvæmlega. Að auki eru stillingar fyrir hvern pott og pönnu birtar sérstaklega. Þetta þýðir að þú hefur alltaf fullkomna yfirsýn, jafnvel þegar þú útbýrð flókna rétti sem krefjast margra potta og panna.

Fyrir aukið öryggi á helluborðinu
Öryggisvirkni
Öryggislæsing helluborðsins, sem veitir áreiðanlega vörn gegn því að stillingum helluborðsins sé breytt óvart eða með vilja, býður upp á meira öryggi við eldamennsku. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, til að koma í veg fyrir að þú brennir þig.
