Fara í meginmál

Vörunúmer: KM8462FL

Miele

Niðurfellt spanhelluborð

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

620 mm | Stakar hellur og  PowerFlex eldunarsvæði

  • 4 hellur þar af tvær sem hægt er að sameina í öflugt PowerFlex eldunarsvæði
  • Nákvæm stilling með miðlægu SingleSlide stjórntæki og snjallri nettengingu
  • Styttri upphitunartími þökk sé Booster aflauka
  • 620 mm breidd - hentar fyrir yfirfellda - eða niðurfellda uppsetningu

299.990 kr.

Ekki til á lager

Niðurfellt spanhelluborð

Aukaafl fyrir hraða og fjölhæfa eldun

PowerFlex

Hvort sem þú notar einstaka potta eða sérstaklega stóra ofnpönnu, geturðu skipt aflaukanum sem er allt að 7,3 kW á milli einstakra potta eða sameinað það allt fyrir stóru ofnpönnuna til dæmis. PowerFlex eldunarsvæðið tryggir einstaklega hraða upphitun réttanna þinna og býður upp á gott rými.

Niðurfellt spanhelluborð

Settu pönnuna á helluborðið og byrjaðu að elda

Skynjar potta og stærð þeirra

Helluborðið skynjar potta og pönnur um leið og þú kveikir á því, hvort sem um ræðir lítinn pott eða stóra pönnu. Tengd stjórntæki virkjast í samræmi við það. Þetta þýðir að þú þarft ekki lengur að kveikja á einstökum eldunarsvæðum sérstaklega. Þökk sé sjálfvirkri skynjun á stærð pottsins eða pönnunnar geturðu eldað á þægilegan hátt og aðeins notað þá orku sem þú þarft í raun.

Niðurfellt spanhelluborð

Eldaðu á enn þægilegri hátt þökk sé viðbótar stillingum

Eiginleikar sem auka þægindi notanda

Dyrabjallan hringir á meðan þú ert að elda kvöldmatinn? Notaðu Stop&Go “Pásu” stillingu til að lækka allar hellur niður í aflstig 1 og yfirgefðu helluborðið í stutta stund með góðri samvisku. “Hella slekkur á sér sjálfvirkt” er stilling sem gerir þér kleift að stilla í hversu langan tíma eldunarsvæði á að vera í gangi og láta helluna slökkva á sér sjálfkrafa að þeim tíma liðnum, og “Halda heitu” stilling tryggir að maturinn haldist við fullkomið framreiðslu hitastig. Notaðu stillinguna “Minni” sem vistar allar stillingar í 10 sekúndur, ef óvart slokknar á helluborðinu.

Niðurfellt spanhelluborð

Miðlægt stjórntæki fyrir öll eldunarsvæði

SingleSlide

SingleSlide býður upp á miðlægt stjórnborð á meðan þú eldar eða steikir. Miðlægur talnasleði gerir þér kleift að stjórna öllu afli og eldunarsvæðum nákvæmlega. Að auki eru stillingar fyrir hvern pott og pönnu birtar sérstaklega. Þetta þýðir að þú hefur alltaf fullkomna yfirsýn, jafnvel þegar þú útbýrð flókna rétti sem krefjast margra potta og panna.

Niðurfellt spanhelluborð

Fyrir aukið öryggi á helluborðinu

Öryggisvirkni  

Öryggislæsing helluborðsins, sem veitir áreiðanlega vörn gegn því að stillingum helluborðsins sé breytt óvart eða með vilja, býður upp á meira öryggi við eldamennsku. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, til að koma í veg fyrir að þú brennir þig.