Masahiro BWH Utility 15 cm.
MASAHIRO – Japanskur nytjahnífur 15 cm
Vandaður japanskur nytjahnífur frá Masahiro, framleiddur í Seki í Japan. Fjölhæfur hnífur sem hentar sérstaklega vel til að skera ávexti, grænmeti og önnur hráefni af nákvæmni. Stærðin gerir hann tilvalinn fyrir verkefni þar sem kokkahnífur er of stór og flysjunarhnífur of lítill. Blaðið er úr hágæða MBS-26 ryðfríu stáli, handbrýnt með 80/20 ósamhverfri skurðbrún sem tryggir einstaka skerpu og góða endingu.
Helstu eiginleikar:
- Blaðlengd: 15 cm
- Stál: MBS-26, hersla 58–59 HRC
- Handfang: Svartur viður
- Framleiddur í Japan
Umhirða: Handþvoið og þurrkið vel eftir notkun. Geymið í hnífablokk eða á segulrönd til að vernda eggina.
15.900 kr.
Ekki til á lager
