Fara í meginmál

Vörunúmer: 66L6SK3

Lodge

Lodge Panna 23 cm

LODGE – Vandaðar steypujárnspönnur

Lodge steypujárnspönnurnar eru endingargóðar og halda einstaklega vel hita. Þær henta á alla hitagjafa, þar á meðal spanhellur, og má einnig nota í ofni og á grilli. Pönnurnar eru tilvaldar til steikingar við háan hita og henta sérstaklega vel til að fullkomna sous vide-eldun með fallegri, stökkri skorpu á kjötinu.

Pönnurnar eru forhertar með olíu við framleiðslu og með tímanum myndast náttúruleg viðloðunarfrí húð.

Notkun og umhirða:

  • Þrífið með heitu vatni og bursta, mild sápa er leyfileg.
  • Þurrkið vel eftir þvott og berið þunnt lag af matarolíu á yfirborðið, helst repju- eða sólblómaolíu.
  • Forðist langvarandi eldun á sýruríkum matvælum.
  • Notið ávallt ofnhanska við meðhöndlun þar sem pannan og handfangið verða mjög heit.

10.900 kr.