Fara í meginmál

Vörunúmer: KM6520FR

Miele

Keramikhelluborð með stálkanti

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Keramikhelluborð frá Miele með stálkanti sem er um það bil 60 cm á breidd. Hellurnar eru 4 þar af 1 stækkanleg. Borðið er með einu sameiginlegu talnaborði fyrir allar hellur á miðju borði til þæginda. Helluborðið er með minni, mögulegt er að pása eldun og láta hellu slökkva sjálfkrafa á sér að ákveðnum tíma liðnum.

149.990 kr.

Ekki til á lager

Keramikhelluborð með stálkanti

Sveigjanleg eldunarsvæði

Gagnlegt fyrir hversdags notkun

Lögun og stærð eldunarsvæða á Miele helluborðum er mismunandi, sem gerir þér kleift að nota potta og pönnur af mismunandi stærðum og gerðum. Mörg helluborð eru auk þess með stækkanleg eldunarsvæði.

Keramikhelluborð með stálkanti

Eiginleikar sem auka þægindi notanda 

Aukin þægindi

Aukin þægindi við eldun: Mögulegt er að skreppa örstutt frá eldamennskunni með því að ýta á "Pásu" stillingu, en þá er afl allra eldunarsvæða minnkað niður í aflstillingu 1. Einnig er mögulegt að stilla í hversu langan tíma eldunarsvæði á að vera í gangi og láta helluna slökkva á sér að þeim tíma liðnum. Stillingin "Minni"tryggir að ef óvart er slökkt á helluborðinu eru stillingarnar þínar vistaðar í 10 sekúndur.

Keramikhelluborð með stálkanti

Sjálfvirk upphitun

Sparar meira en orku

Þessi sjálfvirka stilling lækkar hitann frá stilltu afli í upphafi (fyrir hraða upphitun) niður í lægra hitastig (fyrir áframhaldandi eldun). Á þennan hátt gleymist ekki að lækka hitann á réttum tíma og maturinn brennur ekki við.

Niðurfellt spanhelluborð með TempControl

Öryggisvirkni 

Fyrir aukið öryggi og fullvissu 

Besta vörnin í öllum aðstæðum: öryggislæsing helluborðsins veitir áhrifaríka vörn gegn því að óvart sé breytt um stillingar á meðan helluborðið er í notkun. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, en það minnir þig á að snerta ekki eldunarsvæði sem eru ennþá heit viðkomu.

Keramikhelluborð með stálkanti

Yfirhitavörn

Fyrir langan endingartíma tækis

Hvert eldunarsvæði er með yfirhitavörn. Vörnin slekkur á hitun eldunarsvæða ef álag verður of mikið og áður en keramikglerið eða aðrir hlutar helluborðsins ofhitna. Helluborðið slekkur líka sjálfkrafa á sér ef það er einhver hlutur eða vökvi á stjórnborðinu