Fara í meginmál

Vörunúmer: OKES1750

Liebherr

Kæliskápur til notkunar utanhúss

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Kæliskápur til notkunar utandyra sem hægt er að nota frístandandi eða byggja inn undir borðplötu. Kælirinn er gerður fyrir umhverfishita á bilinu +2 °C til +35 °C og tryggja þarf að hann sé í skjóli frá beinu sólarljósi, rigningu og roki. Skápurinn er tilvalinn fyrir geymslu á drykkjum og matvælum fyrir útieldhúsið og innréttingin einstaklega þægileg og notendavæn.

624.990 kr.

Ekki til á lager

Kæliskápur til notkunar utanhúss

Frístandandi kæliskápur til notkunar utanhúss

Útieldhús sem er með kæliskáp veitir óviðjafnanleg þægindi og skapar auk þess fullkomnar aðstæður fyrir geymslu matvæla utandyra. Skápinn er hægt að nota frístandandi en einnig byggja hann inn undir borðplötu allt eftir þörfum. Tryggja þarf að skápurinn sé staðsettur þannig að hann sé í skjóli frá beinu sólarljósi, rigningu og roki. Kælirinn er gerður fyrir umhverfishita á bilinu +2 °C til +35 °C, en ef hitastig fellur niður fyrir +2°C slekkur kælirinn sjálfkrafa á sér til öryggis. Umhverfishiti þar sem skápurinn er geymdur yfir vetrartíma má að sama skapi ekki fara niður fyrir 0°C. Kæliskápurinn er sterkbyggður, gerður úr hágæða hráefni og er auk þess auðveldur í þrifum. Innbyggður lás veitir ómæld þægindi og tryggir að innihaldið helst öruggt öllum stundum.

Kæliskápur til notkunar utanhúss

Sveigjanlegt og notendavænt innanrými fyrir aukin þægindi 

Kæliskápurinn er tilvalinn fyrir geymslu á drykkjum og matvælum eins og grilluðu grænmeti, sósum og kjöti. Mögulegt er að aðlaga innréttinguna eftir stærð flaska, íláta og matvæla og hitastigið í kælirýminu er stillanlegt frá +2 °C til +14 °C, allt eftir þörfum. Tvær hillur eru í hurðinni og henta þær einstaklega vel fyrir smærri hluti eins og krukkur og dósir. Matvælum af mismunandi stærðum og gerðum er einnig hægt að koma fyrir á tveimur hæðarstillanlegum glerhillum í skápnum sjálfum eða þriðju glerhillunni sem situr á mjúkum útdraganlegum brautum. Vínflöskum er hægt að koma þægilega fyrir í botni skápsins, en auk þess er hægt að geyma stærri eða opnar flöskur í uppréttri stöðu í skápnum vegna þess að ein glerhillan er í tveimur helmingum sem hægt er að renna einum undir annan.