
Frístandandi kæliskápur
Skápurinn er frístandandi og sómir sér vel stakur. Hönnun er einföld, klassísk og hafin yfir tískustrauma. Glansandi hvítmálað yfirborð skápsins er auk þess harðgert og auðvelt í þrifum. Skápinn er einnig hægt að setja inn í 60 cm breiðan innréttingarskáp. Einungis hurð skápsins stendur þá fram úr innréttingunni sem tryggir gott aðgengi að innfellda handfanginu og rétta opnun. Skápurinn kemur hægri hengdur en mögulegt er að skipta um hurðaropnun.

EasyFresh skúffa
EasyFresh er skúffa í kælirými með stillanlegu loki. Mögulegt er að stjórna rakastigi í skúffunni með lokinu og þar með lengja endingu grænmetis og ávaxta. Skúffan er loftþétt þegar lok er í lokaðri stöðu sem, ásamt ferskmetinu sem þar er geymt, eykur rakastigið í skúffunni. Rakanum er síðan hleypt út með því að opna lokið. EasyFresh skúffan er hálf útdraganleg sem gerir skúffuna bæði þægilega í notkun og tryggir góðan sýnileika matvæla. Auðvelt er að fjarlægja skúffuna út úr skápnum við 90°hurðaropnun.

Snertiskjár
Snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðkælingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

BLU performance
Viltu að kæliskápurinn þinn sé öflugur og þægilegur, en líka sjálfbær? Þá er Liebherr fullkominn fyrir þig. Allri kælitækni BLU Performance skápanna hefur verið þjappað saman í sökkulbotni þeirra, en það auk nákvæmrar elektrónískrar hitastýringar skilar sér í betri orkunýtni, auknu nothæfu innanrými, betri kæligetu og hljóðlátari skápum.

Innfellt grip
Auðvelt er að opna skápinn með innfelldu gripi sem liggur lóðrétt eftir hlið skápsins. Nútímaleg og hrein hönnun skápsins passar pannig mjög vel inn í höldulaus eldhús.

Útdraganleg VarioSafe geymsluskúffa
VarioSafe skúffan hjálpar til við skipulag í skápnum og veitir góða yfirsýn yfir hlutina sem þar eru geymdir. Útdraganlega skúffan er fullkominn staður til þess að geyma minni hluti, t.d. pinkla, túbur og krukkur. Mögulegt er að hæðarstilla geymsluskúffuna á tvo mismunandi staði og stjórna þannig dýpt hennar eftir hentugleika.

LED lýsing
Skápurinn er með LED loftljósi sem lýsir innanrýmið upp á jafnan og fallegan hátt. Ljósið er staðsett fyrir miðju, fyrir framan glerhillurnar og tryggir þannig góða lýsingu niður allan skápinn. Matvælin eru sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis þar með tryggðar.

Stílhreint innanrými
Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með fallegum ryðfríum öryggislista á fremri brún. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri og fallegur ryðfrír listi er á plastslánum sem varna því að matvara detti út úr þeim. Stillanlegt skilrúm er auk þess í flöskuhillu sem tryggir að flöskur og dósir haldast kyrrar á sínum stað. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur, jafnvel þegar matvæli eru til staðar og nægt rými er í skápnum til þess að setja bökunarplötu beint inn við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

Einstök þægindi
Hitastýring skápsins er elektrónísk og tryggir blásturvifta í kælirými jafna, hringrásandi dreifingu kælingar. Þar af leiðandi er hægt að fullnýta skápinn og geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Fresh Air kolafilter hreinsar hringrásandi loftið og eyðir óæskilegri lykt úr kælirýminu. Auk þess er skápurinn einstaklega hljóðlátur.

SuperCool hraðkæling
Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.
