Fara í meginmál

Vörunúmer: FAB10HLWH6

Smeg

Kæliskápur fyrir drykki - 50's Retro Style

FAB skápar úr Retro 50´s línu Smeg heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun. Þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.

FAB 10H er snarl- og drykkjakælir sem er um það bil 97 cm á hæð og 54 cm á breidd. Skápurinn er í brennidepli í því rými sem hann stendur og hentar einstaklega vel þegar setja á punktinn yfir i-ið í innanhússhönnun. Hurðarlamir eru staðsettar vinstra megin og skápurinn þar af leiðandi með vinstri opnun.

229.950 kr.

Sérpöntun

Kæliskápur með frystihólfi - 50's Retro Style

Líflegir litir og ávalar línur mætast í glæsilegum retro tækjum 

Vörur úr Retro 50´s línu Smeg eru elskaðar út um allan heim. Þær eru ítölsk hönnun og framleiðsla, en innblástur línunnar og litaúrval má rekja til tísku tímabilsins um 1950. Hönnunin einkennist af ávölum línum, björtum litum, ásamt krómhúðuðu handfangi og logo. Þessi útlitseinkenni gefa tækjunum skemmtilegan stíl og karakter sem kemur vel út í hvaða rými sem er. 

Kæliskápur fyrir drykki - 50's Retro Style

Svalasti litli snarl- og drykkjakælir sem til er

Hitasvið FAB 10H drykkjakælisins er fullkomið til að geyma t.d. gosdrykki, íste, djús, bjór, freyðivín og rósavín. Auk þess að kæla drykki, hentar skápurinn einstaklega vel til þess að geyma vörur í neytendaumbúðum og snarl t.d. osta og súkkulaði. Skápurinn er með útdraganlegri flöskuskúffu fyrir allt að 10 flöskur og tveim færanlegum flöskurekka úr krómi fyrir samtals 4 flöskur. Dósir er síðan hægt að skorða af á þægilegan hátt á tveimur færanlegum hillum úr hertu öryggisgleri. Þrjár hillur eru í hurðinni; ein fyrir stórar flöskur og tvær aðrar fyrir minni drykki eða snarl. Auðvelt er að aðlaga innvols skápsins að persónulegum þörfum og mögulegt að koma töluverðu magni drykkja fyrir í rúmgóðu 135 lítra innanrýminu.

Kæliskápur fyrir drykki - 50's Retro Style

Kæliskápar fyrir þá sem hafa unun af tísku og hönnun 

FAB 10H er í brennidepli í því rými sem hann stendur og hentar einstaklega vel þegar setja á punktinn yfir i-ið í innanhússhönnun. Meira geymslurými er til staðar í FAB 10H drykkjakælinum en hefðbundnum drykkjakælum, kælitækni skápsins tryggir mjög lága orkunotkun, hann er hljóðlátur og ekki skemmir auðkennandi retro útlitið fyrir. Skápurinn er þar af leiðandi fullkomin lausn inn í vinnuumhverfi eins og fundarherbergi og skrifstofur, eða í raun inn í hvaða rými sem er sem þarfnast snarl- og drykkjakælis. FAB kæliskápar heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun, þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.