
Frístandandi kæli- og frystiskápur
Ísskápar hættu að vera einsleit hvít eldhústæki fyrir löngu síðan. Nú þegar borðstofur, stofur og eldhús eru ekki lengur greinilega aðskilin rými, gegnir hönnun æ mikilvægara hlutverki. Hönnun Liebherr kæli- og frystiskápa ber merki svonefndrar hreinstefnu; einfaldar og fallegar línur auk fágaðs og glæsilegs yfirborðs einkennir skápana. Útlit þeirra er þar af leiðandi klassískt og vandað sem gerir það að verkum að skáparnir blandast óaðfinnanlega inn í hvaða nútíma eldhús sem er, en eru jafnframt áberandi.

BioFresh Professional skúffur með kaldri gufu
Kældu eins og atvinnumatreiðslumaður. HydroBreeze myndar kalda gufu í efri BioFresh skúffunni. Þessi kalda gufa, ásamt 0°C hitastigi sem er í skúffunni, tryggir enn lengri endingu ferskmetis auk þess að skapa ósvikin og heillandi sjónræn áhrif. HydroBreeze virkjast á 90 mínútna fresti í 4 sekúndur í senn og í 8 sekúndur þegar hurðin er opnuð. Við Þessar fullkomnu geymsluaðstæður viðheldur ferskvara vítamínum, ilmi, bragði og girnilegu útliti umtalsvert lengur en í hefðbundnum kæliskáp. BioFresh Professional skúffurnar sitja á mjúkum útdraganlegum brautum og eru með mjúklokun. Mögulegt er að draga skúffurnar alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja þær við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg.

VarioTemp
Mjög mikið svigrúm við geymslu matvæla: þökk sé VarioTemp getur þú stillt hitastig frystihluta skápsins á nákvæman hátt og notað rýmið með mismunandi hætti. Auk þess að geta notað rýmið sem venjulegan frysti á hitasviðinu -15°C til -26°C, er mögulegt að stilla hitasviðið á bilið -2°C til +9°C og nota t.d. undir drykki og forrétti ef halda á veislur. Einnig er hægt að stilla frystihlutann á +14°C og nota rýmið sem búrhólf undir matvörur sem eru viðkvæmar fyrir kulda, eins og kartöflur og lauka. Breytilegt hitastig – allt eftir hentugleika.

Vatnsvél
Innfelld InfinitySpring vatnsvél gerir þér kleift að nálgast ferskt og kalt vatn í skápnum þegar þér hentar. Aðgengi er mjög þægilegt, hún er staðsett í góðri hæð í innanverðri hliðinni og flæðir vatnið út þegar ýtt er á panelinn án þess að dropar leki út frá bununni. Auðvelt er að fylla á glös og vatnskönnur af ýmsum stærðum og skilar fullkomin síun vatnsfilters hreinu, bragðgóðu vatni við hverja notkun.

Klakavél
Klakavélin framleiðir fullkomna klaka jafn óðum, toppar undirliggjandi skúffu og tryggir þar með nægt framboð. Hún er beintengd sem þýðir að vatnið kemur beint úr krananum. Klakaframleiðslu er hægt að auka með MaxIce stillingu og framleiða allt að 1,5 kg af klökum á sólarhring. Mögulegt er að stilla stærð klakaskúffunnar eftir hentugleika með færanlegu skilrúmi, en þannig má t.d. nota vinstri helming undir klaka og hægri undir ísbox eða alla skúffuna undir klaka. Hvort sem þig langar í kaldan drykk eða ætlar að halda stóra samkomu, tryggir klakavélin að ferskir og brakandi klakar eru til reiðu fyrir þig hvenær sem er.

Touch & Swipe snertiskjár
TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðkælingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

BluPerformance
Kælitækni BluPerformance skápanna hefur allri verið þjappað saman í sökkulbotni þeirra, en það auk nákvæmrar elektrónískrar hitastýringar skilar sér í betri orkunýtni, auknu nothæfu innanrými, betri vinnuvistfræði frystirýmis og hljóðlátari skápum.

SmartSteel
Skápurinn er með SmartSteel yfirborði og passar virkilega vel inn í fjölbreyttar gerðir eldhúsa. Lárétt pússun dregur ryðfría stálið fram, gefur skápnum silkigljáa og þægilega viðkomu. Sérstök húðun lágmarkar fingraför og gerir yfirborðið þolið gagnvart rispum. Þannig að ekkert truflar hágæða ytra byrði skápsins.

SoftSystem mjúklokun
SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum.

Mjög fullkomin LED lýsing
LED ljós er staðsett hringinn í kringum blástursviftu í kælirými og myndar einstaklega fallega umhverfislýsingu. Tvær innfelldar ljósasúlur í sitthvorri hlið kælirýmis lýsa það upp á jafnan og fallegan hátt og LED ljós fyrir ofan BioFresh skúffur tryggir góða lýsingu niður á ferskmetið í skúffunum. Innihald frystirýmis er auk þess vel upplýst með LED ljósi sem er staðsett beint fyrir ofan frystiskúffurnar og lýsir niður í þær. Matvælin eru vel sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. Allsumlykjandi lýsing sem skapar einstaka upplifun þegar skápurinn er opnaður.

Glæsilegt innanrými
Fágaðir panelar úr ryðfríu stáli með SmartSteel yfirborði þekja bakhlið og innanverða hurð skápsins. Ryðfrítt stál er þrifalegt, öruggt fyrir matvæli og passar einkar vel í kælirýminu. Fullkomin hringrás lofts á sér stað á milli plastsins og SmartSteel panelsins í bakhliðinni, sem tryggir að ryðfríi panellinn helst þurr, raki flyst ekki yfir á matvöru og matvæli fjósa ekki við bakhliðina. Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með fallegum ryðfríum öryggislista með satín áferð á fremri brún. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri með fallegum ryðfríum slám sem varna því að matvara detti út úr þeim. Stillanlegt skilrúm er auk þess í flöskuhillu sem tryggir að flöskur og dósir haldast kyrrar á sínum stað. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur, jafnvel þegar matvæli eru til staðar og nægt rými er í skápnum til þess að setja bökunarplötu beint inn við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

Flex system
FlexSystem er sveigjanlegt skipulagskerfi sem er einfalt í notkun. Notaðu boxin til þess að flokka og aðskilja matvæli í uppáhalds BioFresh skúffunni þinni, t.d. aðskilja ávexti og grænmeti með greinilegum hætti eða geyma matvæli eftir því hvenær þau renna út. FlexSystem er auðvelt í þrifum og má fara í uppþvottavél.

Útdraganleg VarioSafe geymsluskúffa
VarioSafe skúffan hjálpar til við skipulag í skápnum og veitir góða yfirsýn yfir hlutina sem þar eru geymdir. Útdraganlega skúffan er fullkominn staður til þess að geyma minni hluti, t.d. pinkla, túbur og krukkur. Mögulegt er að hæðarstilla geymsluskúffuna á tvo mismunandi staði og stjórna þannig dýpt hennar eftir hentugleika.

VarioBox í hurð
Auðvelt er að halda skipulagi á matvælum í hurð skápanna með VarioBox geymsluboxum. Aðgengi er bæði öruggt og þægilegt, boxin eru útdraganleg með öryggisstoppi og þau er gagnsæ sem veitir notandanum fullkomna yfirsýn yfir innihaldið. Geymsluboxin henta einkar vel til þess að flokka og geyma lítil matvæli, mögulegt er að fjarlægja þau alveg úr hurðinni og þvo í uppþvottavél.

Sveigjanlegt frystirými
Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

Nytsamleg flöskuhilla
Skápurinn er með nytsamlegri flöskuhillu sem er staðsett fyrir ofan BioFresh skúffurnar. Mögulegt er að staðsetja flöskuhilluna bæði fyrir ofan og neðan glerhilluna. Þannig má nota hana annað hvort til þess að geyma flöskur eða sem venjulega hillu, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.

Einstök þægindi
Skápurinn er með tveimur nákvæmum og aðskildum kælikerfum. Hitastýring er elektrónísk og hægt er að stilla svæði óháð hvoru öðru. Engin loftskipti eru á milli kælis og frystis sem kemur bæði í veg fyrir að lykt smitist á milli rýma og að matvæli þorni upp. Blástursvifta í kælirými tryggir jafna, hringrásandi dreifingu kælingar og að hægt sé að fullnýta skápinn með því að geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Fresh Air kolafilter hreinsar hringrásandi loftið og eyðir óæskilegri lykt úr kælirýminu. NoFrost kælitækni dreifir kældu hringrásandi lofti um frystirýmið og knýr hvers kyns raka út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Auk alls sem er ofantalið eru skápurinn einstaklega hljóðlátur.

SuperCool hraðkæling og SuperFrost hraðfrysting
Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skáparnir hafa verið hlaðnir eftir matarinnkaup. Skáparnir kæla sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni. Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skáparnir kæla sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.
