Fara í meginmál

Vörunúmer: MBBSDI9556

Liebherr

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

Væntanlegur!

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Frístandandi kæli- & frystiskápur með franskri opnun frá Liebherr. Skápurinn er úr svöru stáli, með tveimur útdregnum frystiskúffum og klakavél. InfinitySpring vatnsvél gerir þér kleift að nálgast kalt drykkjarvatn hvenær sem er, BioFresh skúffur tryggja lengri endingu ferskmetis og NoFrost frysti þarf ekki að afþýða.


1.419.990 kr.

Ekki til á lager

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

Glæsilegur kæli- og frystiskápur með franskri opnun 

Skápurinn er úr töfrandi og ótrúlega heillandi svörtu stáli sem gefur skápnum hátækni yfirbragð og óvenjulega dýpt hvað varðar áferð. Innfelld handföng eru á bæði hurðum og skúffum sem passar fullkomlega inn í nútímaleg, höldulaus eldhús. Innfelldu handföngin á frystiskúffunum eru auk þess með einstakri MoodLight umhverfislýsingu sem skapar dásamlega stemningu í rýminu. Kæli- og frystiskápurinn er mikið augnayndi hvar sem hann stendur.

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

BioFresh Professional skúffur með kaldri gufu 

Kældu eins og atvinnumatreiðslumaður. HydroBreeze myndar kalda gufu í efri BioFresh skúffunni. Þessi kalda gufa, ásamt 0°C hitastigi sem er í skúffunni, tryggir enn lengri endingu ferskmetis auk þess að skapa ósvikin og heillandi sjónræn áhrif. HydroBreeze virkjast á 90 mínútna fresti í 4 sekúndur í senn og í 8 sekúndur þegar hurðin er opnuð. Við Þessar fullkomnu geymsluaðstæður viðheldur ferskvara vítamínum, ilmi, bragði og girnilegu útliti umtalsvert lengur en í hefðbundnum kæliskáp. BioFresh Professional skúffurnar eru með loftþéttu loki og er hægt að nota þær annað hvort fyrir kjöt, fisk og mjólkurvöru eða ávexti og grænmeti. Lokaðu loftþétta lokinu á BioFresh skúffunum ef þú vilt geyma ávexti og grænmeti í þeim, þetta eykur rakastigið í skúffunum og tryggir ferskleika í lengri tíma. Kjöt og fiskur geymast best í skúffunum við lægra rakastig þegar lokið er í opinni stöðu. BioFresh Professional skúffurnar sitja á mjúkum útdraganlegum brautum og eru með mjúklokun. Mögulegt er að draga skúffurnar alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja þær við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg.

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

Klakavél 

Klakavélin framleiðir fullkomna klaka jafn óðum, toppar undirliggjandi skúffu og tryggir þar með nægt framboð. Hún er beintengd sem þýðir að vatnið kemur beint úr krananum. Hvort sem þig langar í kaldan drykk eða ætlar að halda stóra samkomu, tryggir klakavélin að ferskir og brakandi klakar eru til reiðu fyrir þig hvenær sem er. Og ef fleiri gestir mæta heldur en þú gerðir ráð fyrir má alltaf auka klakaframleiðslu með SuperFrost.

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

Útdraganlegar frystiskúffur

Mjög auðvelt er að opna frystiskúffurnar. Þær sitja á útraganlegum brautum sem tryggja bæði mjúka og jafna hreyfingu án minnstu vandræða. Það skiptir ekki máli hvar þú grípur skúffuna til að opna hana – til vinstri, til hægri eða fyrir miðju. Skúffurnar lokast líka alveg jafn mjúklega og áreynslulaust.

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

Touch & Swipe snertiskjár

TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Veldu einfaldlega aðgerðir eins og SuperCool á litaskjánum með því að snerta og swipe-a. Hitastigi er stjórnað alveg jafn auðveldlega. Og ef þú ert ekki að nota skjáinn þá sýnir hann raunhitastig skápsins öllum stundum.

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

Ótrúlega tilkomumikil LED lýsing 

LED ljós er staðsett hringinn í kringum blástursviftu í kælirými og myndar einstaklega fallega umhverfislýsingu. Tvær innfelldar ljósasúlur í sitthvorri hlið kælirýmis lýsa það upp á jafnan og fallegan hátt og LED ljós fyrir ofan BioFresh skúffur tryggir góða lýsingu niður á ferskmetið í skúffunum. Innihald frystirýmis er vel upplýst með LED ljósi beint fyrir ofan frystiskúffur sem lýsir niður í þær. Matvælin eru vel sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. Allsumlykjandi lýsing sem skapar einstaka upplifun þegar skápurinn er opnaður.

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

Glæsilegt innanrými & InfinitySpring vatnsvél

Fágaður panell úr svörtu ryðfríu stáli með SmartSteel yfirborði þekur bakhlið skápsins. Ryðfrítt stál er þrifalegt, öruggt fyrir matvæli og passar einkar vel í kælirýminu. Fullkomin hringrás lofts á sér stað á milli plastsins og SmartSteel panelsins í bakhliðinni, sem tryggir að ryðfríi panellinn helst þurr, raki flyst ekki yfir á matvöru og matvæli fjósa ekki við bakhliðina. Innfelld InfinitySpring vatnsvél gerir þér kleift að nálgast ferskt og kalt vatn í skápnum þegar þér hentar. Aðgengi er mjög þægilegt, hún er staðsett í góðri hæð í innanverðri hliðinni og flæðir vatnið út þegar ýtt er á panelinn án þess að dropar leki út frá bununni. Auðvelt er að fylla á glös og vatnskönnur af ýmsum stærðum og skilar fullkomin síun vatnsfilters hreinu, bragðgóðu vatni við hverja notkun. Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með satín áferð og fallegir listar með svörtu stáli prýða fremri brún þeirra. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri og slár sem varna því að matvara detti út úr þeim með fallegum lista með svörtu stáli. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur bæði í skáp og hurð, jafnvel þegar matvæli eru til staðar, og koma þannig fyrir misstórum hlutum fyrir á öruggan og aðgengilegan hátt. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

BLU Performance tækni

Kælitækni BLU Performance skápanna hefur allri verið þjappað saman í sökkulbotni þeirra, en það auk nákvæmrar elektrónískrar hitastýringar skilar sér í betri orkunýtni, auknu nothæfu innanrými, betri vinnuvistfræði frystirýmis og hljóðlátari skápum.

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

SoftSystem mjúklokun 

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum.

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

Hentugt skilrúm í hurðarhillu

Mögulegt er að setja skilrúm í hurðarhillu skápsins sem er einstaklega hentugt. Skilrúmið skiptir hillunni upp og er fullkomið fyrir t.d. flöskur, snyrtivörur og litlar dósir. Hægt er að setja skilrúmið auðveldlega í hvaða hurðarhillu sem er fyrir örugga og þægilega geymslu.

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

Hurðarhilla sem hægt er að halla

Mjóar hurðarhillur eru staðsettar neðst á hurðum skápsins fyrir framan BioFresh skúffurnar. Þær henta einstaklega vel til þess að geyma minni matvæli eins og túpur eða litlar flöskur. Mögulegt er að halla þessum hurðarhillum fram sem gerir þér kleift að nálgast innihaldið á auðveldan hátt.

Kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél, vatnsvél & BioFresh Professional - Prime

Nytsamleg flöskuhilla

Skápurinn er með nytsamlegri flöskuhillu sem er staðsett fyrir ofan BioFresh skúffurnar. Mögulegt er að staðsetja flöskuhilluna bæði fyrir ofan og neðan glerhilluna. Þannig má nota hana annað hvort til þess að geyma flöskur eða sem venjulega hillu, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með EasyFresh & NoFrost - Pure

SuperCool hraðkæling og SuperFrost hraðfrysting  

Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni. Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.