Fara í meginmál

Vörunúmer: CND5203

Liebherr

Kæli- & frystiskápur með EasyFresh & NoFrost - Pure

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Kæli- & frystiskápur úr Pure línu Liebherr. Skápurinn er með LED lýsingu, aðskildum kæli- og frystikerfum, NoFrost frysti þarf ekki að affrysta og EasyFresh skúffu sem tryggir lengri endingu grænmetis og ávaxta. Skápurinn tilheyrir kynslóð BluPerformance skápa, en þeir eru með enn stærra innanrými, minni orkunotkun og eru hljóðlátari en aðrir sambærilegir skápar.

329.990 kr.

Sérpöntun

Kæliskápur - Plus

Frístandandi kæli- og frystiskápur

Ísskápar hættu að vera einsleit hvít eldhústæki fyrir löngu síðan. Nú þegar borðstofur, stofur og eldhús eru ekki lengur greinilega aðskilin rými, gegnir hönnun æ mikilvægara hlutverki. Hönnun Liebherr kæli- og frystiskápa ber merki svonefndrar hreinstefnu; einfaldar og fallegar línur auk fágaðs og glæsilegs yfirborðs einkennir skápana. Útlit þeirra er þar af leiðandi klassískt og vandað sem gerir það að verkum að skáparnir blandast óaðfinnanlega inn í hvaða nútíma eldhús sem er, en eru jafnframt áberandi. Þökk sé InteriorFit kemur auk þess mjög vel út að byggja skápinn inn í innréttingu. Skápurinn passar inn í 60 cm djúpa gróp, loftop á milli veggja skápsins og aðliggjandi innréttingar eru óþörf og einungis hurðin stendur fram úr innréttingunni.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með EasyFresh & NoFrost - Pure

EasyFresh skúffa 

EasyFresh er skúffa í kælirými með stillanlegu loki. Mögulegt er að stjórna rakastigi í skúffunni með lokinu og þar með lengja endingu grænmetis og ávaxta. Skúffan er loftþétt þegar lok er í lokaðri stöðu sem, ásamt ferskmetinu sem þar er geymt, eykur rakastigið í skúffunni. Rakanum er síðan hleypt út með því að opna lokið. EasyFresh skúffan er hálf útdraganleg sem gerir skúffuna bæði þægilega í notkun og tryggir góðan sýnileika matvæla. Auðvelt er að fjarlægja skúffuna út úr skápnum við 90°hurðaropnun.

Innbyggður kæliskápur - Pure

Snertiskjár 

Snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðkælingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

Kæli- & frystiskápur með BioFresh - Premium

BluPerformance 

Kælitækni BluPerformance skápanna hefur allri verið þjappað saman í sökkulbotni þeirra, en það auk nákvæmrar elektrónískrar hitastýringar skilar sér í betri orkunýtni, auknu nothæfu innanrými, betri vinnuvistfræði frystirýmis og hljóðlátari skápum. 

Innbyggður kæliskápur - Pure

LED lýsing 

Skápurinn er með LED loftljósi sem lýsir innanrýmið upp á jafnan og fallegan hátt. Ljósið er staðsett fyrir miðju, fyrir framan glerhillurnar og tryggir þannig góða lýsingu niður allan skápinn. Matvælin eru sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis þar með tryggðar.

Innbyggður kæliskápur - Pure

Stílhreint innanrými 

Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með fallegum ryðfríum öryggislista á fremri brún. Ein hillan kemur í tveimur pörtum, hægt er að renna öðrum hluta hennar undir hinn og mynda grynnri hillu. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri og fallegur ryðfrír listi er á plastslánum sem varna því að matvara detti út úr þeim. Stillanlegt skilrúm er auk þess í flöskuhillu sem tryggir að flöskur og dósir haldast kyrrar á sínum stað. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur, jafnvel þegar matvæli eru til staðar og nægt rými er í skápnum til þess að setja bökunarplötu beint inn við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Sveigjanlegt frystirými 

Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með vatnsvél, klakavél & BioFresh Professional - Peak

Einstök þægindi 

Skápurinn er með tveimur nákvæmum og aðskildum kælikerfum. Hitastýring er elektrónísk og hægt er að stilla svæði óháð hvoru öðru. Engin loftskipti eru á milli kælis og frystis sem kemur bæði í veg fyrir að lykt smitist á milli rýma og að matvæli þorni upp. Blástursvifta í kælirými tryggir jafna, hringrásandi dreifingu kælingar og að hægt sé að fullnýta skáp með því að geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Fresh Air kolafilter hreinsar hringrásandi loftið og eyðir óæskilegri lykt úr kælirýminu. NoFrost kælitækni dreifir kældu hringrásandi lofti um frystirýmið og knýr hvers kyns raka út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Auk alls sem er ofantalið er skápurinn einstaklega hljóðlátur. 

Innbyggður kæli- & frystiskápur með EasyFresh & NoFrost - Pure

SuperCool hraðkæling og SuperFrost hraðfrysting

Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skáparnir hafa verið hlaðnir eftir matarinnkaup. Skáparnir kæla sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni. Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skáparnir kæla sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.