
Frístandandi kæli- og frystiskápur
Ísskápar hættu að vera einsleit hvít eldhústæki fyrir löngu síðan. Nú þegar borðstofur, stofur og eldhús eru ekki lengur greinilega aðskilin rými, gegnir hönnun æ mikilvægara hlutverki. Hönnun Liebherr kæli- og frystiskápa ber merki svonefndrar hreinstefnu; einfaldar og fallegar línur auk fágaðs og glæsilegs yfirborðs einkennir skápana. Útlit þeirra er þar af leiðandi klassískt og vandað sem gerir það að verkum að skáparnir blandast óaðfinnanlega inn í hvaða nútíma eldhús sem er, en eru jafnframt áberandi. Þökk sé InteriorFit kemur auk þess mjög vel út að byggja skápinn inn í innréttingu. Skápurinn passar inn í 60 cm djúpa gróp, loftop á milli veggja skápsins og aðliggjandi innréttingar eru óþörf og einungis hurðin stendur fram úr innréttingunni.
%2520ICBND5163-9a93663f-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
BioFresh skúffur
BioFresh skúffur tryggja fullkomin geymsluskilyrði fyrir ferskvöru. Matvælin eru geymd við hitastig rétt yfir 0°C og ákjósanlegt rakastig. Ferskvara viðheldur þannig vítamínum, ilmi, bragði og girnilegu útliti umtalsvert lengur en í hefðbundnum kæliskáp. DrySafe skúffa hentar sérstaklega vel til þess að geyma kjöt, fisk og mjólkurvörur á meðan hátt rakastig í HydroSafe skúffu kemur í veg fyrir að ávextir og grænmeti þorni upp. BioFresh skúffurnar sitja á mjúkum útdraganlegum brautum og eru með mjúklokun. Mögulegt er að draga skúffurnar alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja þær við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg.

VarioTemp
Mjög mikið svigrúm við geymslu matvæla: þökk sé VarioTemp getur þú stillt hitastig frystihluta skápsins á nákvæman hátt og notað rýmið með mismunandi hætti. Auk þess að geta notað rýmið sem venjulegan frysti á hitasviðinu -15°C til -26°C, er mögulegt að stilla hitasviðið á bilið -2°C til +9°C og nota t.d. undir drykki og forrétti ef halda á veislur. Einnig er hægt að stilla frystihlutann á +14°C og nota rýmið sem búrhólf undir matvörur sem eru viðkvæmar fyrir kulda, eins og kartöflur og lauka. Breytilegt hitastig – allt eftir hentugleika.

Touch & Swipe snertiskjár
TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðkælingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

BluPerformance
Kælitækni BluPerformance skápanna hefur allri verið þjappað saman í sökkulbotni þeirra, en það auk nákvæmrar elektrónískrar hitastýringar skilar sér í betri orkunýtni, auknu nothæfu innanrými, betri vinnuvistfræði frystirýmis og hljóðlátari skápum.

EasyTwist klakar - tengt í vatnstank
Hvort sem þig langar í kaldan drykk eða ætlar að halda stóra samkomu, getur þú útbúið klaka með EasyTwist á hraðvirkan og auðveldan hátt – án þess að tengja skápinn við í vatnsinntak. Fylltu einfaldlega á vatnstankinn, bíddu eftir að klakarnir frjósi, losaðu þá síðan með einfaldri snúningshreyfingu og þú getur boðið upp á kalda drykki. Auðvelt í þrifum og heilnæm klakaframleiðsla tryggð hvenær sem er.

SmartSteel
Skápurinn er með SmartSteel yfirborði og passar virkilega vel inn í fjölbreyttar gerðir eldhúsa. Lárétt pússun dregur ryðfría stálið fram, gefur skápnum silkigljáa og þægilega viðkomu. Sérstök húðun lágmarkar fingraför og gerir yfirborðið þolið gagnvart rispum. Þannig að ekkert truflar hágæða ytra byrði skápsins.

SoftSystem mjúklokun
SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum.

Mjög fullkomin LED lýsing
Tvær innfelldar ljósasúlur í sitthvorri hlið kælirýmis lýsa það upp á jafnan og fallegan hátt. LED ljós er fyrir ofan BioFresh skúffur sem tryggir góða lýsingu niður á ferskmetið í skúffunum. Innihald frystirýmis er auk þess vel upplýst með LED ljósi beint fyrir ofan frystiskúffurnar sem lýsir niður í þær. Matvælin eru vel sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis tryggðar.

Glæsilegt innanrými
Fágaður panell úr ryðfríu stáli með SmartSteel yfirborði þekur bakhlið skápsins. Ryðfrítt stál er þrifalegt, öruggt fyrir matvæli og passar einkar vel í kælirýminu. Fullkomin hringrás lofts á sér stað á milli plastsins og SmartSteel panelsins í bakhliðinni, sem tryggir að ryðfríi panellinn helst þurr, raki flyst ekki yfir á matvöru og matvæli fjósa ekki við bakhliðina. Hillur skápanna eru úr hertu öryggisgleri með fallegum ryðfríum öryggislista með satín áferð á fremri brún. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri með fallegum ryðfríum slám sem varna því að matvara detti út úr þeim. Stillanlegt skilrúm er auk þess í flöskuhillu sem tryggir að flöskur og dósir haldast kyrrar á sínum stað. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur, jafnvel þegar matvæli eru til staðar og nægt rými er í skápnum til þess að setja bökunarplötu beint inn við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

Útdraganleg VarioSafe geymsluskúffa
VarioSafe skúffan hjálpar til við skipulag í skápnum og veitir góða yfirsýn yfir hlutina sem þar eru geymdir. Útdraganlega skúffan er fullkominn staður til þess að geyma minni hluti, t.d. pinkla, túbur og krukkur. Mögulegt er að hæðarstilla geymsluskúffuna á tvo mismunandi staði og stjórna þannig dýpt hennar eftir hentugleika.

VarioBox í hurð
Auðvelt er að halda skipulagi á matvælum í hurð skápsins með VarioBox geymsluboxum. Aðgengi er bæði öruggt og þægilegt, boxin eru útdraganleg með öryggisstoppi og þau er gagnsæ sem veitir notandanum fullkomna yfirsýn yfir innihaldið. Geymsluboxin henta einkar vel til þess að flokka og geyma lítil matvæli, mögulegt er að fjarlægja þau alveg úr hurðinni og þvo í uppþvottavél.

Sveigjanlegt frystirými
Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

Nytsamleg flöskuhilla
Skápurinn er með nytsamlegri flöskuhillu sem er staðsett fyrir ofan BioFresh skúffurnar. Mögulegt er að staðsetja flöskuhilluna bæði fyrir ofan og neðan glerhilluna. Þannig má nota hana annað hvort til þess að geyma flöskur eða sem venjulega hillu, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.

Einstök þægindi
Skápurinn er með tveimur nákvæmum og aðskildum kælikerfum. Hitastýring er elektrónísk og hægt er að stilla svæði óháð hvoru öðru. Engin loftskipti eru á milli kælis og frystis sem kemur bæði í veg fyrir að lykt smitist á milli rýma og að matvæli þorni upp. Blástursvifta í kælirými tryggir jafna, hringrásandi dreifingu kælingar og að hægt sé að fullnýta skáp með því að geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Fresh Air kolafilter hreinsar hringrásandi loftið og eyðir óæskilegri lykt úr kælirýminu. NoFrost kælitækni dreifir kældu hringrásandi lofti um frystirýmið og knýr hvers kyns raka út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Auk alls sem er ofantalið er skápurinn einstaklega hljóðlátur.

SuperCool hraðkæling og SuperFrost hraðfrysting
Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skáparnir hafa verið hlaðnir eftir matarinnkaup. Skáparnir kæla sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni. Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skáparnir kæla sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.
