
Líflegir litir og ávalar línur mætast í glæsilegum retro tækjum
Vörur úr Retro 50´s línu Smeg eru elskaðar út um allan heim. Þær eru ítölsk hönnun og framleiðsla, en innblástur línunnar og litaúrval má rekja til tísku tímabilsins um 1950. Hönnunin einkennist af ávölum línum, björtum litum, ásamt krómhúðuðu handfangi og logo. Þessi útlitseinkenni gefa tækjunum skemmtilegan stíl og karakter sem kemur vel út í hvaða rými sem er.

50´s skápur gæddur nýjustu tækni
Stafrænt hitastig í kæli- og frystirými er hægt að stilla á fallegu innfelldu LED stjórnborði. FAB 38 skápurinn er með tveimur nákvæmum og aðskildum kælikerfum sem tryggir að engin loftskipti eigi sér stað á milli rýma. Þetta kemur bæði í veg fyrir að lykt smitist á milli þeirra og að matvæli þorni upp. Nákvæm elektrónísk hitastýring viðheldur stöðugu hitastigi í innanrými og blástursvifta tryggir jafna hringrásandi dreifingu kælingar. Auðvelt er að fullnýta skápinn þar af leiðandi og geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Skápurinn er einnig með 0°C skúffu sem hentar fullkomlega til þess að varðveita viðkvæm matvæli eins og fisk, osta og kjöt. Bestu geymsluaðstæður fyrir ferskmeti, eins og ávexti, grænmeti og salat eru síðan í rakastýrðri grænmetisskúffu. Auk alls þessa tryggir NoFrost kælitækni langtíma ferskleika matvæla í frysti, hraðfrystihólf gerir þér kleift að frysta þiðinn mat án þess að draga frost úr öðrum vörum og handvirk klakavél sér til þess að nægt framboð ferskra og brakandi klaka er alltaf mögulegt.

Rúmgóður kæliskápur fyrir þá sem hafa unun af tísku og hönnun
Mögulegt er að koma miklu magni af ferskmeti og frosnum matvælum fyrir í FAB 38 kæliskápnum. Hann er 70 cm breiður og því einstaklega rúmgóður. Auk þess er auðvelt að færa til hillur í skápnum og aðlaga hann að persónulegum geymsluþörfum. Kælirýmið er vel upplýst með björtum LED súlum í sitthvorri hlið skápsins. Lýsingin tryggir að matvælin séu vel sýnileg hvar sem þau eru staðsett, sem auðveldar leit í fullhlöðnum skápnum. 50´s Retro skápar eru ekki aðeins hagnýtir, heldur eru þeir líka einstaklega fallegir. Innanrými FAB 38 er glæsilegt framhald af ytra byrði skápsins og endurspegla fágaðar króm áherslur klassískt retro 50´s útlit. FAB kæliskápar heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun, þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.

Alþjóðleg verðlaun
Kæli- og frystiskápurinn FAB 38 hefur fengið góðar viðtökur og unnið til alþjóðlegra verðlauna, Good Design Awards.
